Fréttablaðið - 02.10.2020, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 02.10.2020, Blaðsíða 28
Sameiginlegt markmið þess­ara snjalltækja er að einfalda okkur mannfólkinu lífið. Tækjunum er stjórnað á einfaldan hátt með snjallsímanum eða jafn­ vel tölvunni. „Snjallvörur hafa verið í boði í ELKO í nokkur ár og áhuginn á þeim fer sífellt vaxandi,“ segir Dagný Kolbeinsdóttir vörustjóri í Hljóði og mynd hjá ELKO. Hjá ELKO er hægt að fá snjall­ perur, snjallöryggiskerfi, snjall­ dyrabjöllur, snjallofnastilla og snjallhátalara, svo eitthvað sé nefnt. Dagný segir algengt að þegar fólk stígur sín fyrstu skref í snjall­ væðingu heimilisins byrji það á lýsingunni. Snjalllýsing „Philips Hue er gífurlega vinsælt merki, enda notendavænt og býður upp á stuðning fyrir mörg önnur snjallkerfi. Ljósaperurnar tengjast með annað hvort WiFi eða Blue­ tooth og þeim er síðan stjórnað með snjallsíma. Hægt er að stilla ljósstyrk, liti og fleira í símanum til þess að lýsingin í rýminu sé einmitt eins og þú vilt hafa hana,“ segir hún. „Vinsælt er að tengja hreyfi­ skynjara við ljósin, hvort sem það er utan­ eða innandyra. Þegar skynjarinn nemur hreyfingu, þá geturðu valið að ákveðin ljós kvikni í ákveðinn tíma. Sem dæmi gætirðu stillt það þannig að öll ljósin slökkva á sér sjálfkrafa þegar þú yfirgefur herbergi eða að forstofuljósin kvikni þegar þú rennir í hlaðið.“ Dagný útskýrir að ný kynslóð Philips Hue ljósaperanna bjóði nú upp á Bluetooth­tengingu, auk WiFi. Hægt er að stjórna allt að tíu perum með Bluetooth. „Þessi brú sem hefur alltaf þurft áður er því ekki nauðsynleg fyrr en komnar eru fleiri en tíu perur. Þegar brúin er komin þá getur hún stjórnað allt að 50 perum.“ Snjallöryggiskerfi Í dag er lítið mál að sérsníða sitt eigið snjallöryggiskerfi. Kerfin geta samanstaðið af myndavélum, hreyfiskynjurum, hurðaskynj­ urum, raka­ og hitaskynjurum og mörgu fleiru. „Meira að segja dyrabjallan þín getur verið snjöll. Þú ert svo með beina tengingu við kerfið þitt í gegnum snjallsímann hvar sem er og hvenær sem er,“ segir Dagný. „Ef tækin nema eitthvað óeðli­ legt heima fyrir, þá færðu tilkynn­ ingu. Öryggiskerfið má svo tengja við til dæmis snjalllýsinguna eða jafnvel snjallhátalara. Ef svo hurðarskynjarinn nemur að útidyrnar eru opnaðar, þá gætu ljósin blikkað rauðu og hátalarar heimilisins spilað sírenuhljóð eða bara uppáhaldslagið þitt. Mögu­ leikarnir eru endalausir.“ SmartThings frá Samsung býður upp á myndavélar og margar gerðir skynjara sem tala saman á einfaldan hátt. „Við bjóðum líka upp á vörur frá Arlo sem er þekkt og vinsælt merki í snjallöryggiskerfum. Þar er hægt að fá kerfi sem inniheldur móður­ stöð og tvær öryggismyndavélar og svo er hægt að bæta stökum öryggismyndavélum inn á kerfið. Einnig erum við með Ring og D­ Link sem eru líka vinsæl merki,“ útskýrir Dagný. „Það sem er sérstaklega skemmti legt við SmartThings eru allir skynjararnir sem hægt er að bæta við. Auk hurðaskynjarans er meðal annars hægt að fá vatns­ Hoppaðu á snjalllestina með ELKO Snjallheimili er hugtak yfir tæki heimilisins sem tengjast hvert öðru í gegnum þráðlaust net. Öryggiskerfi, lýsingu, hljómgræjur, ofnastilla og jafnvel heimilistækin er allt hægt að snjallvæða. Dagný Kol- beinsdóttir, vörustjóri í Hljóði og mynd hjá ELKO, segir áhugann á snjallvörum fara vaxandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI Hjá ELKO fást ýmis snjall- öryggiskerfi, meðal annars snjalldyra- bjöllur frá Ring. lekaskynjara sem er til dæmis hægt að hafa í þvottahúsinu og þá færðu tilkynningu í símann ef eitthvað fer að leka þar. Þannig geturðu brugðist hratt við í stað þess að koma heim úr ferðalaginu að heimilinu ónýtu af vatns­ skemmdum.“ Hurðar­, leka­ og hreyfiskynjar­ arnir hafa allir innbyggðan hita­ skynjara að auki. Hitaskynjarinn nemur breytingar á hitastigi og ef það snöggkólnar eða ­hitnar fær notandinn tilkynningu. „Til dæmis ef þú gleymir að loka svalahurðinni og það er frost úti, þá færðu tilkynningu um það.“ Öryggismyndavélarnar skynja hreyfingu og byrja á upptöku þegar þær nema óvenjulega hreyf­ ingu. Dagný útskýrir að flestar skynji þær þó mun á því hvort gluggatjöld hreyfist eða gæludýr labbi fram hjá eða hvort um sé að ræða manneskju. „Þess vegna ertu ekki að fá óþarfa tilkynningu í símann þinn þó að kötturinn þinn labbi inn og út,“ segir hún. 10 KYNNINGARBLAÐ 2 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RFYRSTA HEIMILIÐ - SNJALLHEIMILIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.