Fréttablaðið - 02.10.2020, Page 2
Veður
Breytileg átt 3-10 og úrkomulítið,
en rigning austast, og dálitlar
skúrir við vesturströndina. Bætir
í úrkomu og fer að rigna á austur-
helmingi landsins um kvöldið.
SJÁ SÍÐU 18
Helluð stemning
- heimur fágaðra möguleika
www.modern.is
FAXAFEN 10 · 108 REYKJAVÍK · 534 7777
- ALLT AÐ 20% AFSLÁTTUR AF PÖNTUNUM
SVO ÞÚ FÁIR HÚSGÖGNIN ÖRUGGLEGA HEIM FYRIR JÓLIN
dagur
til jóla!1
Hellur voru lagðar í sólskini á Hafnartorgi í miðbæ Reykjavíkur en svæðið var fólki til ama þegar illa viðraði. Þar voru lausar hellur og þegar rigndi átti
vatn til að frussast upp úr og rennbleyta grandalausa vegfarendur. Hellulagning hefur lengi fylgt manninum en einhverja elstu vegi heims má finna í
Írak þar sem áður var Mesópótamía. Þeir eru um sex þúsund ára gamlir og eflaust aðeins bugðóttari en gengur og gerist í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Áður var miðað við tvo metra.
COVID -19 Smitrakningarteymi
sóttvarnalæknis og almannavarna
miðar nú almennt við einn metra í
samræmi við almennar nálægðar-
takmarkanir í samfélaginu en fram
að þessu hefur verið miðað við tvo
metra þegar ákvarðað er hverjir
skulu sendir í sóttkví komi upp
COVID-19 smit.
Smitaðir einstaklingar hafa verið
beðnir að gera lista yfir þá einstakl-
inga sem þeir hafi verið í minna en
tveggja metra fjarlægð við í 15 mín-
útur eða meira og þeir einstaklingar
svo sendir í sóttkví. Fréttablaðinu
er kunnugt um að við smitrakningu
á nýlegum COVID-19 tilfellum hafi
verið gengið út frá því að miða við
tvo metra við rakningu í ákvörð-
unum um sóttkví.
Jóhann Björn Skúlason, yfirmað-
ur smitrakningarteymisins, segir í
svari við fyrirspurn Fréttablaðsins
að reynt sé að meta hvert tilvik
fyrir sig og að margir þættir spili
inn í niðurstöðu. „Nálægð, ítrekuð
samskipti yfir daginn, sameigin-
legir snertifletir, dvöl í sama í rými
í lengri tíma og fleira,“ segir Jóhann.
„Byggt er á ráðleggingum sótt-
varnalæknis og bestu upplýsingum
á hverjum tíma, þannig geta áhrifa-
þættir verið mismunandi milli til-
vika,“ bætir hann við. – bdj
Miða við einn
metra þegar
sóttkví er metin
Við smitrakningu á
nýlegum smitum hafi
fyrirvaralaust verið gengið
út frá að miða við tvo metra
MENNING Gjörningurinn Í leit að
töfrum fer fram með pompi og prakt
í Listasafni Reykjavíkur á morgun
en þar verða allar 114 greinar nýju
stjórnarskrártillögunnar frá 2011
f luttar í tónlistarformi. Höfundar
verksins eru myndlistarmennirnir
Libia Castro og Ólafur Ólafsson auk
Töfrateymisins.
„Textinn sem verður f luttur er
ritaður til að verða stjórnarskrá og
vakti heimsathygli fyrir framsýni
fyrir rúmlega áratug. Síðar í ferlinu
strandaði hann og er nú orðinn bar-
áttumál fjölda fólks,“ segir Ólafur
um dýnamískt ferli textans.
Í kringum 120 manns taka þátt
í gjörningnum ásamt myndlistar-
tvíeykinu en líkt og við gerð nýju
stjórnarskrárinnar þótti mikil-
vægt að sem flestir fengju sæti við
borðið. „Við sáum alltaf fyrir okkur
að þetta yrði stórt og umfangsmikið
verkefni líkt og ritun nýju stjórnar-
skrárinnar var,“ segir Ólafur.
Á annan tug tónskálda frá Íslandi,
Danmörku, Noregi, Ítalíu, Græn-
landi og Bandaríkjunum voru
fengin til að semja tónlist við hverja
grein stjórnarskrárinnar fyrir sig
en töluvert f leiri koma að flutningi
verksins.
„Verkið er samstarf myndlistar-
manna, tónlistarfólks og almennra
borgara sem öll taka þátt í að gera
verkið að einni heild,“ bendir Libia
á. Gjörningurinn á sér ekki aðeins
stað innan veggja listasafnsins held-
ur flæðir út á götur miðbæjarins og
umbreytist síðar í kröfugöngu sem
lýkur fyrir framan Alþingi.
„Skilin á milli áhorfenda og flytj-
enda hverfa alveg og enginn kemst
hjá því að vera virkur gerandi í verk-
inu,“ segir Ólafur. Aðkoma almenn-
ings sé einkar viðeigandi ef horft sé
til þess að krafan um ritun stjórnar-
skrárinnar hafi upphaflega komið
frá fólkinu í landinu.
Þrátt fyrir að stjórnarskráin hafi
verið samþykkt í þjóðaratkvæða-
greiðslu árið 2012 hafi lítið breyst
á síðastliðnum átta árum. „Þessi
barátta hefur verið kæfð,“ ítrekar
Libia. „Það er nauðsynlegt að fólk
muni eftir því að þessi stjórnarskrá
hafi verið skrifuð og það sé minnt á
innihald hennar.“
Til greina kom að fresta gjörn-
ingnum vegna COVID-19 farald-
ursins og fjöldatakmarkana en
þess þurfti ekki þar sem verkið
verður aðgengilegt eftir að það
hefur verið framkvæmt. „Það mun
því lifa áfram sem vídeóverk og í
tengslum við verkið verður einnig
gefin út bók.“ Verkið verður einnig
sýnt í Hafnarhúsinu og í Ríkisút-
varpinu auk þess sem hluti þess
mun hljóma í útvarpi. „Enginn ætti
því að missa af þessum viðburði.“
kristlin@frettabladid.is
Nýja stjórnarskráin
sungin í heild sinni
Yfir hundrað manns munu syngja allar greinar nýju stjórnarskrárinnar í
Hafnarhúsinu á morgun þar sem myndlist og pólitík sameinast í gjörningi.
Tónskáld víðs vegar um heim voru fengin til að semja tónlist við hverja grein.
Meira á frettabladid.is
Ólafur Ólafsson og Libia Castro í Hafnarhúsinu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Það er nauðsynlegt
að fólk muni eftir
því að þessi stjórnarskrá
hafi verið skrifuð og það sé
minnt á innihald hennar.
Libia Castro
COVID-19 Þrettán liggja á Land-
spítala og þar af tvö á gjörgæslu í
öndunarvél vegna COVID-19. Páll
Matthíasson, forstjóri Landspítal-
ans, segir meðalaldur inniliggjandi
rúmlega fimmtugt en sjúklingar eru
frá þrítugu upp í sjötugsaldur.
Landspítali er á hættustigi vegna
COVID-19. Viðbragðsáætlun Land-
spítala vegna farsótta hefur verið
virkjuð og funda viðbragðsstjórn
og farsóttanefnd daglega.
Aðspurður um viðbragðsáætlun
Landspítalans í farsótt segir Páll
hana ganga ágætlega upp.
„Við erum búin að finna upp hjól-
ið varðandi mjög margt sem kom
okkur á óvart þó að við þyrftum að
hugsa mjög hratt til að geta brugðist
við.“ – ilk
Tvö á gjörgæslu
Meðalaldur inniliggj-
andi á Landspítala er rúm-
lega fimmtíu ár.
2 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð