Fréttablaðið - 02.10.2020, Síða 18
Ætli ástríðan hafi
ekki farið á flug
eftir að hafa tekið kúrsa í
súkkulaðigerð og brauð-
bakstri í MK og stuttu
seinna flutt að heiman
og farið að grúska í mínu
eigin eldhúsi.
Guðrún Ýr heldur úti síðunni dodlurogsmjor.is og Instagramsíðunni @ dodlurog
smjor þar sem hún deilir með
þjóðinni kræsingum úr eldhúsinu
sínu og því sem á daga hana drífur.
„Það hefur alltaf blundað í mér
áhugi á matargerð og bakstri,
alveg frá því að ég var ung. Ég hef
fengið ófáar spurningar af hverju
ég hafi ekki farið út í þetta af meiri
alvöru en ég hef haft einhverja
þörf að hafa þetta eingöngu sem
áhugamál. En það að fara af stað
með heimasíðu sem heldur utan
um allar mínar uppskriftir hefur
þó verið draumur hjá mér í mörg
ár. Stundum tekur tíma að manna
sig upp í eitthvað líkt og þetta
og taka af skarið. Sem ég gerði í
byrjun þessara árs og sé ekki eftir
því. Ótrúlega skemmtilegt að geta
miðlað uppskriftum til annarra og
ég er ábyggilega sú sem baka mest
upp af henni sjálf.“
„Ætli ástríðan hafi ekki farið á
f lug eftir að hafa á menntaskóla
árum tekið kúrsa í súkkulaðigerð
og brauðbakstri í MK og stuttu
seinna flutt að heiman og farið að
grúska í mínu eigin eldhúsi.“
„Ástríðan skilaði sér síðar inn í
eldhús Kruðerís, bakarí Kaffitárs,
þar sem ég kom að vöruþróun og
naut þess í botn og á sama tíma
var ég að skrifa sem lausapenni
hjá Gestgjafanum og í framhaldi
starfaði ég þar í stuttan tíma, tók
eina önn í það meðan ég pústaði
og dreif mig af stað í að skrifa
meistararitgerðina mína í Menn
ingarstjórnun.
Síðan þá, 2017, hef ég bara notið
þess að baka fyrir mitt nánasta
og eldað góðan mat. Í lok árs 2019
var ég búin að peppa mig nægi
lega mikið upp í það að stökkva
út í djúpu laugina og fara af stað
með síðu. Ég hef lært helling á
þessu ári, bakað mikið og eldað.
Lært á tæknilegu hliðina á þessu
og fikrað mig áfram í ljósmyndun,
allt ótrúlega gefandi.“
Hvaðan er nafnið Döðlur og
smjör komið?
„Það er skemmtilegt að segja
frá því og hef ég lítið farið út í
að útskýra það, einhverra hluta
vegna. Nafnið vísar til þessara
tveggja hráefna sem mér þykja
ómissandi í hvert eldhús. Döðlur
og smjör er að mínu mati hægt að
nota í hvaða matseld og bakstur
sem er. Bæði hráefnin eiga heima
í sætum bakstri og yfir í dýrindis
máltíð. Enda var það algjör til
viljun að ég fór að fókusa á sætmeti
á síðunni minni. Hugmyndin var
alltaf að setja allan mat þar inn og
munu einhverjar góðar matarupp
skriftir rata þangað inn á end
anum, sem mögulega innihalda
döðlur og smjör.
Viðtökurnar við síðunni og
instagraminu hjá mér hafa verið
ótrúlega góðar og er ég ótrúlega
þakklát því. Það eru svo margir
frábærir matarbloggarar á Íslandi
og bara ótrúlega gaman að vera
hluti af því mengi og fá að miðla til
annarra.“
Ertu til í að gefa okkur uppskrift
að þínum uppáhalds kræsingum
fyrir helgarbaksturinn?
„Ég bakaði tvær uppskriftir
fyrir ykkur sem eru dásamlegar
í helgarbakstur. Eplaskúffukaka
með smjörkremi og kardimomm
usnúðar með súkkulaðifyllingu en
þetta eru dásamlegar uppskriftir
sem gaman er að bjóða upp. Epla
skúffukakan hefur bókstaflega
verið bökuð þrjár helgar í röð
heima hjá okkur.“
Þetta eru kræsingarnar sem þú
vilt baka um helgina og bjóða upp
á með helgarkaffinu.
Eplaskúffukaka
250 g hveiti
300 g púðursykur
1 tsk. matarsódi
¼ tsk. salt
1 tsk. kanill
220 g smjör
200 ml vatn
100 ml vanilluskyr / ab mjólk
2 egg
1 tsk. vanilludropar
200 g epli
Stillið ofn á 200°C. Vigtið þurr
efnin saman í skál, ef þið ætlið að
nota hrærivél setjið þá hráefnin
í þá skál. Síðan er smjör og vatn
sett í pott og hitað á miðlungs
hita, þangað til suða kemur upp.
Slökkvið undir og hellið rólega
saman við þurrefnin og hrærið á
sama tíma á lágri stillingu. Blandið
síðan skyri/abmjólk saman við
ásamt eggjum og vanilludropum.
Afhýðið og kjarnhreinsið eplin
og skerið í smáa bita. Blandið
eplunum saman við deigið.
Smyrjið fat, sem er minnst 30 cm
að stærð hvort sem það er ílangt,
kringlótt eða lítil skúffa, að innan
með baksturspreyi eða smjöri.
Hellið deiginu ofan í fatið og inn í
ofn. Bakið í 2025 mínútur. Leyfið
kökunni að kólna í minnst 30
mínútur.
Smjörkrem
250 g smjör, við stofuhita
500 g flórsykur
3-4 msk. rjómi
2 tsk. vanilludropar
1 tsk. kanill
Setjið smjörið í hrærivél og þeytið
vel, bætið svo flórsykri varlega
saman við ásamt rjóma og van
illudropum og þeytið í nokkrar
mínútur. Setjið þriðjung kremsins
í skál og blandið 1 tsk. kanil saman
við.
Setjið kremið í nokkra sprautu
poka með ólíkum stútum eftir
því sem ykkur langar og hvað þið
eigið. Dreifið þunnu lagi af kremi
yfir kökuna og byrjið að sprauta
óreglulega yfir kökuna, þangað til
hún hefur öll verið skreytt.
Einnig er hægt að einfalda þetta
og dreifa kreminu yfir kökuna
með sleikju.
Kardimommusnúðar
með súkkulaðifyllingu
Snúðar
250 ml mjólk
2 tsk. (6 g) þurrger
400-450 g hveiti
50 g sykur
1 tsk. kardimommur
75 g smjör, við stofuhita
Klípa af salti
Byrjið á því að velgja mjólkina
upp í um það bil 37°C í örbylgju
ofni eða í potti. Setjið mjólkina í
hræriskálina ásamt restinni af hrá
efnunum. Gott er að byrja að setja
400 g af hveiti saman við og bæta
aðeins við eftir þörf ef deigið er
Bakstur sem bráðnar í munni
Það er ávallt notalegt og lokkandi að eiga heimabakað með kaffinu um helgar og gleðja sína
nánustu. Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir matarbloggari gefur uppskrift að kræsingum sem hún mælir
með, þær eru í uppáhaldi fyrir helgarbaksturinn og munu gleðja bæði bragðlaukana og sálina.
Guðrún Ýr með með matarblogg
þar sem hún birtir girnilegar upp-
skriftir. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Glæsileg eplaskúffukaka sem kitlar bragðlaukana og er falleg á diskinum.
Kardimommusnúðar með súkkulaðifyllingu. Ekkert smávegis girnilegir.
Sjöfn
Þórðardóttir
Matarást
Sjafnar
vel blautt. Setjið krókinn á vélina
og leyfið vélinni að vinna í rúmar
fimm mínútur. Einnig er hægt að
vinna deigið í höndunum. Deigið
er frekar blautt en það á samt að
vera hægt að koma við það örstutt
án þess klístrast við það. Setjið
rakan klút yfir deigið og leyfið því
að hefast í minnst klukkustund.
Fylling
100 g smjör, við stofuhita
75 g sykur
4 msk. af kakó
Hrærið öllum hráefnunum saman,
ef smjörið er fullkalt er gott að
setja blönduna inn í örbylgjuofn
í nokkrar sekúndur og hrærið
hráefnunum síðan saman.
Samsetning
Þegar deigið er búið að hefa sig,
stráið hveiti á borðið og takið deig
ið úr skálinni og leggið á borðið.
Stráið smá hveiti yfir deigið og
fletjið út með kökukefli. Reynið að
halda deiginu eins ferningslaga og
hægt er. Fletjið út þangað til það er
orðið vel þunnt.
Dreifið fyllingunni yfir deigið
og smyrjið úr henni jafnt yfir það.
Brjótið deigið í tvennt, á þver
veginn. Rúllið aðeins yfir deigið
með fyllingunni í. Takið pitsu
skera eða hníf og skerið línur þvert
yfir, ca. 2 cm á breidd. Takið hverja
línu af deigi og snúið upp á. Það er
að sjálfsögðu hægt að rúlla deiginu
upp og skera hefðbundna snúða
ef við viljum ekkert vera að flækja
hlutina frekar.
Leggið snúðana á bökunarpapp
írsklædda plötu og leyfið að hefast
á ný í 30 mínútur.
Kveikið á ofninum og stillið á
200°C, blástur.
Þegar snúðarnir eru tilbúnir
penslið þá með eggi og stráið yfir
þá perlusykri, þetta er valfrjálst.
Snúðarnir settir inn í ofn og bak
aðir í 1012 mínútur. Takið út og
leyfið að kólna í smá stund. Njótið
svo meðan þeir eru volgir – algjör
dásemd.
LIÐVERKIR,
STIRÐLEIKI
EÐA BRAK Í
LIÐUM?
Mest selda liðbætiefni
á Íslandi
2-3ja
mánaða skammtur íhverju glasi
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U R