Fréttablaðið - 02.10.2020, Side 23
Húsin í Skektu-
vogi og Duggu-
vogi eru fimm
og íbúðirnar eru
80 talsins. Hér
má sjá húsin
við Skektuvog
4 og 6.
MYNDIR/AÐSENDAR
Vogarnir eru mjög miðsvæðis, í göngufæri við fjölbreytta þjónustu og fallega náttúru.
ÞG verk hefur byggt íbúðir í yfir tuttugu ár og leggur áherslu á að skila íbúðum í sem mestu mögulegu gæðum.
Íbúðirnar í
Skektuvogi eru
af fjölbreyttum
stærðum og
gerðum, allt frá
litlum stúdíó-
íbúðum upp í
fimm herbergja
íbúðir.
Fyrirtækið mun byggja um 400 íbúðir í Vogabyggð á næstu þremur árum.
tengslum við helstu umferðar-
leiðir borgarinnar. Svo er mjög
falleg náttúra þarna í kring með
Elliðaárnar og Elliðaárdalinn í
næsta nágrenni. Laugardalurinn er
í göngufjarlægð og stutt í verslun
og þjónustu. Hverfin í kring eru að
sama skapi vel gróin og skjólsældin
mikil í Vogunum.“
Fjölbreyttar íbúðir
Hrefna segir að salan í Vogahverfi
hafi farið vel af stað. „Við settum
þrjú hús í Skektuvogi 2, 4 og 6 í sölu
fyrr á árinu og nú eru 80 prósent af
íbúðunum seld. Þá er einnig helm-
ingurinn af íbúðunum í húsunum
tveimur í Dugguvogi 6 og 8 seldur.
Eftir eru 24 íbúðir sem við búumst
við að seljist á næstu mánuðum.
Íbúðirnar eru af fjölbreyttum toga
allt frá litlum stúdíóíbúðum upp í
fimm herbergja íbúðir.
ÞG verk hefur hafið uppbygg-
ingu á öðrum áfanga í Vogabyggð
sem telur 162 íbúðir. Gert er ráð
fyrir að þær íbúðir fari í sölu næsta
sumar. Í Urriðaholti í Garðabæ er
ÞG með tvö verkefni með sam-
tals 74 íbúðum sem munu fara
í sölu á næsta og þarnæsta ári. Í
þessum verkefnum öllum munum
við leggja áherslu á fjölbreyttar
íbúðargerðir.“
Áhersla á gæði
ÞG verk leggur metnað í að byggja
eins hagkvæmt og unnt er en spara
þó ekkert í gæðum. „Við byggjum
hagkvæmt til þess að geta boðið
kaupendum upp á hagkvæmar
gæðaíbúðir. Íbúðirnar frá okkur
koma tilbúnar þannig að það eina,
sem kaupandinn á eftir að gera
eftir kaup, er að flytja inn með sína
innanstokksmuni.
Forsendur þess að hægt sé að
bjóða upp á hagkvæmar íbúðir
liggja ekki síst hjá sveitarfélög-
unum sem fara með skipulags-
valdið,“ segir Hrefna. „Það er til
að mynda allt of algengt að það
sé búið að setja miklar kvaðir á
íbúðarstærðir og -gerðir og ýmsar
kvaðir á útfærslu bygginga sem
gerir verktökum erfitt fyrir að
byggja með hagkvæmasta hætti
eða bjóða þær íbúðarstærðir sem
markaðurinn kallar eftir hverju
sinni. Samkvæmt reynslu ÞG verk-
taka getur munað tugum prósenta
á byggingarkostnaði verkefna sem
eru bundin of ströngum skipulags-
kvöðum og verkefna sem byggð
eru með hagkvæmri hönnun án
þess að nokkru sé fórnað í gæðum
íbúða.“
Umhverfisstefna ÞG verks
ÞG verk vinnur eftir umhverfis-
stefnu og setur sér markmið í
umhverfismálum. „Við leggjum
áherslu á að minnka allt í senn
orkunotkun, úrgang og notkun
jarðeldsneytis en það er okkar
leið til þess að minnka kolefnis-
sporið. Þá erum við að flokka og
mæla úrgang frá öllum byggingar-
verkefnum ásamt því að halda
úti fræðslu til starfsmanna um til
dæmis flokkun og meðhöndlun
úrgangs. Þá vinnum við stöðugt að
því að rafvæða bílaflotann og er
markmiðið að flestallar bifreiðar
í notkun hjá okkur verði knúnar
rafmagni innan tveggja ára. Til
þess að hafa betri yfirsjón notum
við umhverfisstjórnunarhug-
búnað frá Klöppum sem mælir
og skráir alla okkar orkunotkun
og sorpförgun. Reglulega er síðan
gefin út skýrsla með samanburði
við markmið og fyrri ár,“ segir
Hrefna.
Nánari upplýsingar má nálgast á
fasteignavef tgverk.is
Vefpóstur: tgverk@tgverk.is
Sími: 534-8400
XXXXXXXXXXXXXXXXXXXXKYNNINGARBLAÐ 5 F Ö S T U DAG U R 2 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 HLUTDEILDARLÁN - FASTEIGNIR