Fréttablaðið - 02.10.2020, Side 36
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og bróðir,
Jakob Steingrímsson
Vorsabæ 5, Reykjavík,
lést á heimili sínu síðastliðinn
sunnudag, 27. september.
Karen Þorvaldsdóttir
Hulda Jakobsdóttir Jón Árni Rúnarsson
Anna Margrét Jakobsdóttir Tómas Gunnar Viðarsson
Brynjar Berg
Sölvi Rafn
Daníel Darri
Hildur Steingrímsdóttir
Innilegar þakkir fyrir samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærrar
eiginkonu, móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Vilhelmínu Norðfjörð
Sigurðardóttur
Melateig 39.
Hjalti Hjaltason
Anna Hulda Hjaltadóttir Ólafur Þ. Ólafsson
Sigrún Elva Hjaltadóttir Baldur H. Hauksson
ömmu- og langömmubörn.
Það er nýjung að gefa fólki kost á að byrja í fullu háskólanámi á miðri önn en hér er hægt að hefja grunn- eða meistaranám í gegnum Námsglugga, eins
og við köllum þetta nýja námstilboð,“
segir Guðjón Ragnar Jónasson, for-
stöðumaður símenntunar á Bifröst.
Hann segir ástæðuna fyrir þessu fram-
taki skólans vera ástandið í þjóðfélag-
inu vegna heimsfaraldursins. „Það er
atvinnuleysi meðal ýmissa stétta og
þeirra sem starfa sjálfstætt. Við viljum
gefa áhugasömum tækifæri til að nýta
tímann í eitthvað uppbyggilegt. Haust-
önnin skiptist jafnan í tvær lotur hjá
okkur og sú síðari hefst 19. október. Þá
getur fólk byrjað.“
Hvernig skyldu svo undirtektir við
Námsglugganum hafa verið til þessa?
„Þær eru góðar. Víða hafa aðstæður fólks
breyst og það fagnar þessu tækifæri,“
svarar Guðjón Ragnar. „Fólk úr við-
skiptalífinu, menningar- og listalífinu
er farið að sækja um og áhuginn á námi
sem sem tengist viðskiptadeild og félags-
vísinda- og lagadeild er mjög svipaður.
Stjórnendur hér leggja mikla áherslu á
að koma til móts við þarfir sem flestra
og opna skólann. Svo er það þannig að
nú má hefja nám á atvinnuleysisbótum
eftir sex mánaða atvinnuleysi. Það er
búið að rýmka reglurnar. Fólk má líka
vera í hlutanámi á atvinnuleysisbótum.
Það eru ýmsir möguleikar.“
Guðjón Ragnar segir Háskólann á Bif-
röst byggja mest á fjarnámi. „Öll okkar
símenntun og allur okkar kraftur fer í
fjarnámið, enda er mikil eftirspurn eftir
því. Það hentar vel á þessum tímum því
nemandinn getur sinnt því heiman frá
sér. Við erum alltaf að ef la fjarnámið
tæknilega séð. En við leggjum líka
áherslu á að ef fólk vill stunda sitt nám á
staðnum og taka þátt í samfélaginu hér
á Bifröst þá eru íbúðir og raðhús hér sem
það getur leigt og það eru góðir skólar á
staðnum.“
Guðjón Ragnar hóf störf sem forstöðu-
maður símenntunar og háskólagáttar á
Bifröst á fyrri hluta þessa árs og kveðst
kunna afar vel við sig. „Sveitin hefur allt-
af átt sinn sess í sálu minni,“ segir hann.
„Ég kom hingað fyrst til að lesa upp úr
bókinni Kindasögur og heillaðist af
staðnum. Þess vegna sótti ég um.“
Ertu kannski með rollur í kofa þarna
einhvers staðar í hrauninu? spyr ég í
gríni. „Ja, ég vonast til að eignast kindur
í haust og er að vinna í því að stofna fjár-
eigendafélag Bifrastar. Svo eru Kinda-
sögur II að koma út.“
gun@frettabladid.is
Fólki opnast ný tækifæri
með Námsglugganum
Sú nýbreytni er í boði í Háskólanum á Bifröst að hefja nám á miðri haustönn. Námið
er sniðið að þörfum þeirra sem eru án atvinnu en vilja nýta tíma sinn á uppbyggilegan
hátt. Guðjón Ragnar Jónasson, forstöðumaður símenntunar á Bifröst, lýsir því nánar.
„Sveitin hefur alltaf átt sinn sess í sálu minni,“ segir Guðjón Ragnar sem er alsæll í Borgarfirðinum. MYND/JAMES EINAR BECKER
Framboð í Námsglugga
Grunnnám:
Íslensk stjórnmál
Skapandi skrif og sala hugmynda
Upplýsingatækni
Markaðsfræði
Þjónustustjórnun
Vinnusálfræði
Meistaranám:
Húmor og jafnrétti í stjórnun
Menning markaður og miðlun
Áætlanagerð og verkefnastjórnun
Alþjóðleg markaðsfræði
Vinnuréttur
Kirkjukórinn minn og ég ætlum að vera svo bjartsýn að bjóða til tón-leika á sunnudaginn 4. október í
Fella-og Hólakirkju,“ segir Arnhildur
Valgarðsdóttir orgelleikari kirkjunnar.
„Yfirskrift þeirra er: Hlýlegir tónar
haustsins og einsöngvarar verða Kristín
Ragnhildur Sigurðardóttir og Garðar
Eggertsson.
Arnhildur segir tónleikana hefjast
klukkan 17 og taka um það bil 75 mín-
útur. „Aðgangur er ókeypis en frjáls
framlög eru þegin í orgelpípuhreins-
unarsjóð,“ segir hún í gamansömum tón
og bætir við að einnig verði kaffibolli
og kleinur til sölu á 500 kall að tónleik-
unum loknum.
Kirkjan tekur yfir 300 manns í sæti, að
sögn Arnhildar, og einnig segir hún hægt
að opna sal aftur úr kirkjunni. „Þá bæt-
ast við önnur 300 sæti en að sjálfsögðu
virðum við 200 manna hámarksfjölda í
kirkjunni. Sumar sætaraðir eru stúkaðar
af til að viðhalda fjarlægð milli gesta og
sprittbrúsar og grímur verða við inn-
ganginn.“ – gun
Hlýlegir tónar haustsins í Fella- og Hólakirkju
Arnhildur lofar að farið verði að ströng-
ustu sóttvarnareglum á tónleikunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Það er atvinnuleysi meðal
ýmissa stétta og þeirra sem
starfa sjálfstætt. Við viljum gefa
áhugasömum tækifæri til að
nýta tímann.
Merkisatburðir
959 Játgeir friðsami er
krýndur Englandskon-
ungur.
1608 Hollenski linsusmið-
urinn Hans Lippershey
sýnir fyrsta sjónaukann í
hollenska þinginu.
1801 Konungur úrskurðar
að Ísland skuli allt verða
að einu biskupsdæmi og
er þá biskupsstóllinn á
Hólum lagður niður.
1934 Ólafur Thors tekur
við formannsembætti í
Sjálfstæðisflokknum.
1940 Áfengisskömmtun
er tekin upp á Íslandi og
er skammtur karlmanns
fjórar hálfflöskur á mánuði af sterkum drykkjum en
kvenna helmingur þess.
1960 Ísafjarðarflugvöllur er tekinn í notkun.
1964 Tækniskóli Íslands er settur í fyrsta sinn.
1992 Vígð er 120 metra löng brú yfir Dýrafjörð. Við það
styttist leiðin á milli Þingeyrar og Ísafjarðar um þrettán
kílómetra.
1996 Eldgos brýst út í
Gjálp sem leiðir til ham-
faraflóðs á Skeiðarársandi
með eyðileggingu tveggja
brúa, meðal annars þeirrar
lengstu á Íslandi.
2007 Sjónvarpsstöðin ÍNN
tekur til starfa á Íslandi.
2010 Héðinsfjarðargöng
milli Siglufjarðar og Héðins-
fjarðar annars vegar og
Héðinsfjarðar og Ólafs-
fjarðar hins vegar er vígð.
2 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R16 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT