Fréttablaðið - 02.10.2020, Blaðsíða 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is
FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@
frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Tryggðu þér
áskrift á dv.is
MYND
/VALLI
2. október
2020 | 3
9. tbl. | 1
11. árg. |
Verð 995 k
r.
Tíminn e
r
dýrmætu
r
Sigurlaug
M. Jónas
dóttir útv
arpskona
eldar kvö
ldmat ofa
n í heilan
her, hata
r
ekki drasl
skúffurna
r sínar og
hefur
mætt pils
laus í vinn
una. Hún
hefur
einstaka
sýn á lífið
og segir
það of
stutt fyrir
slappan
mat og le
iðindi.
– sjá síðu
10
8 ára gamli
r í henginga
rleik
9
Einhleypar
ofurkonur
20
EKKI MISSA AF
NÝJASTA DV
eða nældu þér í
eintak í næstu
verslun
Myndbandið við lagið Þú munt sjá eftir mér var tekið á köldum en fallegum degi. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Á dögunum kom út myndband við lagið Þú munt sjá eftir mér með tónlistarkon-unni Þorgerði Ásu Aða lsteinsdót t u r.
Það hefur vakið nokkra athygli
enda tekið í einni töku á hlaupa-
hjóli í miðbænum. Bróðir Þor-
gerðar, Álfgrímur Aðalsteinsson,
leikstýrði myndbandinu og vann
hugmyndina með Þorgerði. Þau
fengu bæði tónlistarlegt uppeldi
en foreldrar þeirra eru Aðalsteinn
Ásberg Sigurðsson og Anna Pálína
Árnadóttir. Þau spiluðu reglulega
saman og áttu hið geysivinsæla
barnalag um köttinn Krúsilíus, en
Anna Pálína lést fyrir aldur fram
árið 2004.
Tónelsk fjölskylda
Þorgerður segir það hafa tekið hana
þó nokkurn tíma að koma úr skel-
inni og syngja ein. Hún hafi verið
dugleg í kórstarfi í æsku. Þú munt
sjá eftir mér er fyrsta lagið sem
kemur út af nýrri plötu Þorgerðar,
Í rauðum loga.
„Ég fór í vísnaskóla úti í Svíþjóð
fyrir sex árum og síðan í FÍH hérna
heima. Ég var dugleg í kórum í æsku
en það gerðist frekar seint að ég fór
að syngja ein. Mamma mín var auð-
vitað söngkona og foreldrar mínir
spiluðu mikið saman, pabbi samdi
lögin og textana. Hann á í nokkrum
lögum á plötunni, þar á meðal titil-
lagið,“ segir Þorgerður, en hún er
einnig í hljómsveitinni Vísur og
skvísur með vinkonu sinni Vigdísi
Hafliðadóttur.
Vísnaformið heillar
Á plötunni eru tvö frumsamin lög
eftir Þorgerði sjálfa og nokkrar
þýðingar.
„Á plötunni eru ábreiður sem
hafa ekki heyrst áður á íslensku.
Platan er öll á íslensku. Það er
það sem heillar mig, að syngja á
íslensku. Það hefur beina tengingu
við vísnatónlistina. Það sem heillar
mig við hana er að textinn er alltaf í
aðalhlutverki. Þú ert að segja sögu
þegar þú syngur, ekki bara til að
leyfa fólki að heyra hvað þú syngur
vel,“ segir hún og bætir við að vísna-
forminu fylgi skemmtileg tenging
við áhorfendur á tónleikum.
Hún segir tónlistina vera í svip-
aða átt og sú sem foreldrar hennar
voru að gera á sínum tíma.
„Ég fékk það algjörlega frá þeim
að heyra nánast bara textann þegar
ég hlusta á lag í fyrsta sinn. Margir
heyra bara tónlistina en ég þarf til
dæmis að hlusta nokkrum sinnum
á lagið ef textinn truf lar mig. Ef
textinn er ekki góður þá finnst mér
erfitt að hlusta á lagið,“ segir hún.
Skáldaði í eyðurnar
Nýja lagið, Þú munt sjá eftir mér,
er ekki byggt orð fyrir orð á raun-
verulegri reynslu heldur er það
einnig samansafn af sögum úr mis-
munandi áttum.
„Þetta er meira upplifun sem
margir tengja við, að vera sár yfir
því að tilfinningar manns séu ekki
endurgoldnar. Svo skáldar maður
vissulega í eyðurnar og fær sögur
frá öðrum að láni.“
Þorgerður og Álfgrímur bróðir
hennar mótuðu hugmyndina að
myndbandinu við lagið í samein-
ingu.
„Hann er mjög klár í öllu sem
kemur að kvikmyndagerð. Við
fengum vin okkar, Einar Pétur
Jónsson, til að hjálpa okkur. Hann
dinglaði bjöllunni eins og brjál-
æðingur til að fá fólk til að víkja úr
vegi. Álfgrímur var með tónlistina
í gangi og ég söng með. Við náðum
þessu í þriðju tökunni,“ segir hún
Góðar viðtökur
Tökurnar gengu nokkuð vel fyrir
sig og engir árekstrar urðu við bíla
né vegfarendur.
„Við vorum nú samt að vonast
til að fólk tæki aðeins meira eftir
okkur,“ segir Þorgerður og hlær.
„Fólk er bara svo feimið.“
Það var norðanátt og ískalt en
fall egur og bjartur dagur þegar
myndbandið var tekið upp.
„Þetta var mjög skemmtilegt. Svo
er ég mjög ánægð með viðtökurnar,
svona í ljósi þess að þetta er fyrsta
lagið sem ég gef út.“
Þú ert ekkert búin að senda mynd-
bandið á alla fyrrverandi elskhuga?
„Jú, jú, auðvitað. Fékk helling af
ástarbréfum eftir það. Þeir svara
auðvitað allir að þeir sjái óskaplega
eftir mér,“ segir hún hlær.
Í rauðum loga er hægt að nálgast
í Dimmu útgáfu á Óðinsgötu 7.
Útgáfutónleikarnir fara svo fram
þann 29. október í Safnahúsinu við
Hverfisgötu 15.
steingerdur@frettabladid.is
Vísnaformið hefur
alltaf heillað mig
Í síðustu viku kom út skemmtilegt myndband við lagið Þú munt
sjá eftir mér sem er með tónlistarkonunni Þorgerði Ásu Aðalsteins-
dóttur. Í því þeysist hún í einni töku um miðborgina á hlaupahjóli.
Hún fór í vísnaskóla í Svíþjóð og notar tónlistina til að segja sögur.
ÞÚ ERT AÐ SEGJA
SÖGU ÞEGAR ÞÚ
SYNGUR, EKKI BARA AÐ LEYFA
FÓLKI AÐ HEYRA HVAÐ ÞÚ
SYNGUR VEL.
2 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R26 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð