Fréttablaðið - 20.10.2020, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 20.10.2020, Blaðsíða 35
íshúsið viftur.is-andaðu léttarS:566 6000 ∑ Smiðjuvegur 4a, græn gata, 200 Kópavogur Jet 1 - 105 cm Kíktu á úrvalið af loftviftum Tilboð 21.990 kr (var 23.075 kr) Tilboð 59.990 kr (var 65.373 kr) Jet II - 105 cm Tilboð 19.990 kr (var 21.484 kr) Tilboð 24.990 kr (var 27.367 kr)Cyclone 132 cm Loftviftur eru snjöll leið til að dreifa varma og koma hreyfingu á loft. Loftviftur henta því vel í stofur, svefnherbergi, skrifstofur, í vöruhús og verksmiðjur. Á sumrin henta vifturnar til að kæla en á veturna til að jafna hitastig og draga úr kyndingu. Risavifta - 254 cm Fyrir stór rými eða mikla lofthæð Tilboð 134.990 kr (var 150.853 kr) Bætir loftgæði Jafnar hitastig Tilboð 54.990 kr (var 59.395 kr) Listasafn Reykjanesbæjar hefur opnað yf irlits-sýningu á verkum Daða Guðbjörnssonar en hann hefur gefið safninu 400 graf ík verk. Sýningin stendur til 29. nóvember. Spurður af hverju hann hafi ákveðið að gefa þessu listasafni svo gríðarlega mörg verk segir Daði: „Hugmyndin kviknaði í samtali um sýningu á pólskri grafík sem haldin var á síðasta ári í safninu, en Aðal- steinn Ingólfsson var sýningarstjóri hennar. Mér fannst mjög gaman að skoða þá sýningu. Mér finnst skemmtileg tilhugsun að hafa stórt safn eftir mig af grafíkverkum á sama stað, en ég hef alltaf verið heillaður af grafík og lagt metnað í að vinna hana. Á sýningunni eru verk frá 1978 til 2020, það gefur að líta nær allar tegundir prenttækni grafíklistarinnar með ýmsum til- brigðum.“ Daði hefur áður sýnt verk sín í safninu. „Ég hélt einkasýningu í safninu 2008 sem ég kallaði Dans elementanna, og sýndi þar á sam- sýningu með Gullpenslunum 2007. Mér finnst sýningarsalurinn mjög fallegur. Svo hefur fólk á þessu svæði keypt mikið af verkum eftir mig í gegnum árin." Sýningastjóri er Aðalsteinn Ingólfsson og skrifar hann einn- ig í sýningarskrá meðal ann- ars: „Fyrir blöndu tilviljana og ásetnings hefur Listasafn Reykja- ness á undanförnum misserum eignast umtalsvert magn merki- legra grafíkverka eftir íslenska og erlenda listamenn. Þegar við bæt- ast hundruð grafíkverka eftir Daða Guðbjörnsson, er deginum ljósara að Listasafn Reykjaness er skyndi- lega orðið stærsta safn grafíklista- verka á landinu. Þessi staðreynd gerir safninu kleyft að marka sér sérstöðu í samfélagi íslenskra safn- astofnana, kjósi aðstandendur þess að fara þá leið.“ Aðalsteinn segir að gjöfin sé ein- stök sýnisbók grafíktækninnar. „Þarna eru tréristur, dúkristur, steinprent, koparætingar, sáld- þrykk, einþrykk, offset þrykk og blönduð verk, þar sem tvö eða þrjú prentaf brigði eru saman komin. Að ógleymdum handlituðum eða yfirprentuðum þrykkjum í öllum regnbogans litum. Uppáfinninga- semi listamannsins virðast engin takmörk sett. Er ljóst að þarna er að finna hráefni bæði til sýninga og margháttaðra kennslufræðilegra tilrauna með nemendum í mynd- mennt. Listasafn Reykjaness hefur einmitt lagt sig fram um að vinna með skólum í bæjarfélaginu.“ Gjöf sem er einstök sýnisbók grafíktækninnar Daði Guðbjörnsson hefur gefið Listasafni Reykjanesbæjar 400 grafíkverk. Safnið hefur opnað yfirlitssýn- ingu á verkum listamannsins. Sýningarstjórinn segir uppáfinningasemi Daða vera takmarkalausa. Í safninu er yfirlitssýning á verkum Daða. MYND/LISTASAFN REYKJANESBÆJAR Ég hef alltaf verið heillaður af grafík, segir Daði. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ÞEGAR VIÐ BÆTAST HUNDRUÐ GRAFÍK- VERKA EFTIR DAÐA GUÐ- BJÖRNSSON, ER DEGINUM LJÓSARA AÐ LISTASAFN REYKJANESS ER SKYNDILEGA ORÐIÐ STÆRSTA SAFN GRAFÍK- LISTAVERKA Á LANDINU. Aðalsteinn Ingólfsson M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 19Þ R I Ð J U D A G U R 2 0 . O K T Ó B E R 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.