Samtökin '78 - Úr felum - 01.07.1985, Side 3

Samtökin '78 - Úr felum - 01.07.1985, Side 3
Hommasj úkdómurinn, sem gufaði upp (RKUM Útgefandi: Samtökin '78 Pósthólf 4166 1 24 Reykjavík. Ábyrgðarmaður: Helgi Magnússon. Útlitshönnun: Tómas Hjálmarsson. Setning og prentun: Offsetprent. AIDS-umrædan hefur bitið í skottið á sér Við lesbíur og hommar höfum orðið vitni að kyndugum umskipt- um í fjölmiðlunum í ár. Þau urðu þegar Morgunblaðið setti í granda- leysi á forsíðuna hjá sér fyrirsögn- ina „Allt mannkynið í hættu" 28. apríl. Fréttin var um nýjustu þekk- ingu manna á sjúkdóminum AIDS, en hún er sú að þessi sjúkdómur geri sér ekki mannamun fremur en aðrir smitsjúkdómar. Viðbrögð ann- arra fjölmiðla voru þau að saka blaðið um að ala á ástæðulausum ótta, að ýta undir móðursýki! Spruttu af þessu deilur milli fjöl- miðlanna, og var meðal annars skrifaður langur leiðari f Morgun- blaðið um málið. í mörg ár hafa íslenskir hommar orðið að þola það að þá er þeirra fyrst getið í fjölmiðlum, þá hefur það verið í þeim tilgangi að ala á ótta meðal homma og móðursýki gagnvart hommum meðal almenn- ings. Látlausar fréttir af AIDS sem hommasjúkdómi hafa dunið á okk- ur, fréttir sem hafa verið svo heimskulegar og fordómafullar að leit er að hliðstæðu. Fjölmiðlarnir eru nú algerlega ráð- villtir hvað varðar AIDS-umræðuna. Blaðamenn átta sig sumir á því að eitthvað hefur verið bogið við skrif þeirra fram að þessu — sumir skammast sín en aðrir klóra sér í höfðinu í ráðaleysi. En ekki er því að heilsa að þeir skilji af hverju þeir lentu úti á villigötum. Menn skilja ekki eigin fordóma fyrr en þeir þora að horfast í augu við þá. Hér með skorum við lesbíur og hommar á alla fjölmiðlunarmenn að skoða rækilega afstöðu sína til okk- ar eins og hún birtist í umfjöllun þeirra og umfjöllunarleysi, að skýr- greina fyrir sjálfum sér á hverju hún byggist, og skipta um afstöðu reyn- ist hún ekki standast heilbrigða skynsemi. Guðni Baldursson Það er óneitanlega dálítið fyndin aðstaða að setja sig niður í maímán- uði 1985 og skrifa grein um AIDS og fjölmiðla. Þörfin fyrir að svara fyrir sig virðist ekki lengur fyrir hendi. ísl. fjölmiðlar reyndu af mis- munandi krafti að gera AIDS að hommasjúkdómi. Erlendis hafa aft- urhaldssömustu öflin haldið þeirri skýringu á lofti að sjúkdómurinn væri tilkominn vegna reiði Guðs gamla yfir syndum hommanna. Þó að flestir fjölmiðlar hafi nú ekki keypt þessa dellu hráa, má segja að fréttaflutningur þeirra hafi verið á sömu lund. Og vissulega var erfitt að átta sig á eðli AIDS á tímabili. En eftir að uppgötvanir sýndu að um veirusjúkdóm er að ræða, héldu fjölmiðlar uppteknum hætti og néru okkur upp úr hverri AIDS fréttinni á fætur annarri. Allar vöktu þær ótta og hryggð í brjóst- um okkar. Nú, í maí 1985 — og það er vor í lofti — er AIDS ekki lengur kynvill- ingaplágan mikla! Blað allra lands- manna skýrir okkur nú svo frá, að öllu mannkyninu stafi hætta af þessum sjúkdómi. Fjölmiðlar eru farnir að gagnrýna sjálfa sig fyrir að hafa kennt hommum um. For- ystumenn homma eru kallaðir í við- töl og spurðir álits. Öllum er að verða ljós sú staðreynd, að tilviljun ein réði því að hommar í stórborg- um Bandaríkjanna smituðust fyrst en ekki einhverjir aðrir hópar vegna landfræðilegra og félagslegra for- sendna. Það liggur við að maður hrópi húrra og segi jafnframt: Þetta er gott á helvítis pakkið! Nú fær það að finna fyrir óttanum og niðurlæg- ingunni, sem við höfum barist við. Nei, ekki niðurlægingunni. Um leið og hinn gagnkynhneigði meirihluti var orðinn að ,,áhættuhópi“ hvarf hún. AIDS er orðinn lögmætur sjúkdómur. En auðvitað er mannkynið ekkert pakk og ekki við hinn almenna mann að sakast. Þess vegna dreg ég þau orð mín til baka. En lærum af reynslunni. Þótt AIDS sé einn magnaðasti seiðurinn, sem efldur hefur verið gegn okkur, þá er hann aðeins nýtt afbrigði í nei- kvæðri afstöðu til homma og lesb- ía. Við þekkjum mörg önnur af- brigði úr sögu okkar og hvunndegi; ofsóknir á atvinnu- og húsnæðis- markaði; ofbeldi orðanna; líkam- legt ofbeldi. Svo mætti lengi telja. Eina leiðin til varnar er að styrkja frelsisbaráttu okkar og sjálfsvirð- ingu. Það er að rofa til í svartnættinu eftir síðustu atlögu. Réttsýnir menn eru að ná áttum, gjarnan með slæma samvisku. Hinir illgjörnu standa upp sem dagaðir þursar, til athlægis og ómerkir orða sinna. Beinum athygli fólks að þeim, en njótum þess jafnframt, að úti bíður vorið. Einar Þorleifsson

x

Samtökin '78 - Úr felum

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - Úr felum
https://timarit.is/publication/1489

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.