Samtökin '78 - Úr felum - 01.07.1985, Blaðsíða 20

Samtökin '78 - Úr felum - 01.07.1985, Blaðsíða 20
TU \i'° pegai'l’i'amct seltistMÍogy^e*uð’ SV°^ daue^thUg 06 ,, bvgg' undu að"fenvSatói annao en , einu en fann sv0 U‘ maðut byr)at a hV0 at ég ektó annað ást{angm L hadi að ég vær blæðmgum S-°smtre^stTdur . r tífið OtðtO Sv° -U-St degi vjVÍt ^ntóngunni sSs*---' Elsa íslcNsk- IesbísIía Eins og flestum er kunnugt lá starf- semi Samtakanna ’78 að mestu niðri meðan við höfðum ekkert húsnæði, mánuðina október til febrúar, en meðan starfsemin fór fram á Skóla- vörðustígnum voru haldin nokkur kvennakvöld sem öll voru ágætlega sótt. Eftir að búið var að koma húsnæðinu í Brautarholti í gang í febrúar, fóru konur að huga að kvennastarfinu framundan og þann 9. mars var boðað til fundar þar sem ákveðið var að efla starf lesbía og hafa það nokkuð formlegt. Gestur á fundinum var íslensk lesbía, búsett í Svíþjóð og hvatti hún okkur til dáða um leið og hún lýsti því starfi lesbía sem hún hefur kynnst erlendis. Niðurstaða fundarins var sú að sækja skyldi um að fá leigt herbergi í Kvennahúsinu, til að fá öruggan stað til að hittast á. Jákvætt svar barst frá Húshóp Kvennahússins þann 1. apríl (ekki aprílgabb) þar sem okkur var afhent eitt herbergi í húsinu til afnota svo og réttur til afnota af sameiginlegum herbergjum samtakanna sem í húsinu eru. Með þessu má segja að brotið sé blað í sögu lesbía á íslandi, þar sem við erum í fyrsta sinn sjálfstæðar og óháðar hommunum fjárhagslega. Boðað var til fundar í Kvennahús- inu 13. apríl og mættu þar rúmlega 20 lesbiur og ræddu framtíðarstarfið. Ánægjan var mikil með það skref sem nú hefur verið stigið og var ákveðið að hópurinn kallaði sig ís- lensk-lesbíska... til bráðabirgða að minnsta kosti, því ekki voru allar sáttar við orðið út frá málfræðilegum forsendum, en flestum fannst það fela í sér svolítinn húmor, og því betra en eitthvað formlegra nafn. Ákveðið var að framvegis yrði „Opið hús” í Kvennahúsinu, Hótel Vík, á laugardögum kl. 17—19, þar sem félagskonur og aðrar sem áhuga hafa á að kynnast starfinu, eru vel- komnar. Einnig var samþykkt að á fimmtudagskvöldum yrðu lesbíur til viðtals í símatíma Samtakanna, til að auðvelda konum að hafa samband, sem ekki hafa lagt í að koma í Sam- tökin. Kvennakvöld voru svo haldin í Brautarholtinu 23. mars og 3. maí og tókust bæði með ágætum. Forsenda allrar starfsemi er að sjálfsögðu peningar og væntum við þess að konur styrki starfsemina, bæði með því að greiða 100 krónur á mánuði upp í húsaleiguna í Kvenna- húsinu og að greiða félagsgjöld Sam- takanna. Ef einhverjar eru svo í vandræðum með peningana sína er hægt að leggja framlag inn á banka- bók íslensk - lesbíska, eins og sést hér í blaðinu. Þannig stuðlum við að blómlegu starfi lesbía á íslandi. Elsa og Stella. 20

x

Samtökin '78 - Úr felum

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtökin '78 - Úr felum
https://timarit.is/publication/1489

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.