Samtökin '78 - Úr felum - 01.07.1985, Side 22

Samtökin '78 - Úr felum - 01.07.1985, Side 22
Saga orðanna Hvað þýða eftirfarandi orð: kynvillingur, kynhvörf, hýr, kynvilla, kynhvarfi, kynhvarfur? Jú, þetta eru orð sem notuð eru yfir homma og lesbíur og samkynhneigð. En hvers vegna eru þessi orð notuð umfram orðin sem þau standa fyrir: hommi, lesbía, samkynhneigð? Um það fjallar þessi grein. Þegar Samtökin ’78, féiag lesbía og homma í íslandi, lét úr vör vorið ’78 blés ekki byrlega því skútan var vart komin á flot þegar áhöfninni bárust þær fréttir hvaðanæva að, að bannað væri að sigla undir merkjunum hommi og lesbía: orðin voru tabú líkt og málefnið. En hvernig er hægt að skapa umræðu um það sem ekki má nefna á nafn eða kalla sínu rétta nafni? Svarið liggur í augum uppi: Það er ekki hægt — enda er það líka tilgang- urinn. Þó höfðu orðin hommi og lesbía verið notuð í áratugi (ásamt læknis- fræði- og sjúkdómsheitinu kynvilla og orðum sem dregin eru af því) og enginn haft neitt útá það að setja, enda umfjöllunin ávallt mjög nei- kvæð og þarafleiðandi ekki „viðkvæmt mál”. En strax og sam- kynhneigt fólk ætlaði sjálft að nota þessi orð í hlutlausu samhengi á við eftirfarandi auglýsingu: „Hommar. Lesbíur. Munið fundinn í kvöld. Samtökin ’78”, þá varð þetta fólk og þessi orð skyndilega tabú á nýjan leik. Skrípaleikur í þessari stöðu upphófst ljótasti skrípaleikur með orð sem átt hefur sér stað um langa hríð. í örstuttu máli er söguþráðurinn eftirfarandi: Samtökin ’78 unnu ötullega að því að útrýma hinum fjandsamlegu orðum úr íslensku máli og festa þrenninguna „hommi, lesbía, samkynhneigð” í (góðum) sessi í málinu — og varð nokkuð ágengt. Ekki voru þó allir á einu máli um ágæti þessara framfara og héldu sumir á lofti fjandsamlegum orðaforða með sjúkdómsheitið kynvilla í broddi fylkingar, og var og er Morgunblaðið helsti boðberi þeirra viðhorfa sem í orðinu felast, enda opinber stefna blaðsins að ala á ótta og fordómum og hatri í garð sam- kynhneigðs fólks. Öðrum féll ekki að heyra sannleikann og kusu sér rósa- mál, og vaið þá til oiðið hýr. Og loks komu til skjalanna íslenskufræðing- arnir sem tóku að sér að vinna gegn hagsmunum samkynhneigðs fólks, og sameinuðu þeir rósamálsstefnuna og sjúkdómsheitastefnuna í nýyrðinu kynhvarf. (Sem er auðvitað ekkert annað en orðið kynvilla klætt í kjól og hvítt. En sjúklingur heldur áfram að vera sjúklingur þó hann sé klæddur upp og rós tyllt í hnappa- gatið). Grannt skoðað Förum nú aðeins í saumana á ferlinu sem lýst er hér að ofan. Dagblöðin hafa verið mjög erfið í þessu máli, og blaðamenn virt að vettugi hlutlæga orðnotkun, en þess í stað kosið að nota fjandsamlegan orðaforða. Frá þessu eru þó einstakl- ingsbundnar undantekningar. Frétta- stofu sjónvarps tekur varla að nefna vegna þess að þar á bæ er tilvist homma og lesbía á íslandi ekki viður- kennd. Afturámóti kemur fyrir að samkynhneigt fólk birtist í erlendum kvikmyndum eða skemmti- og fræðsluþáttum í sjónvarpi og hafa þá þýðendur nær undantekningalaust stuðst við orðin kynvilla (algengast), kynhvörf, hýr, eða hreinlega sleppt að þýða viðkomandi orð ef það er hægt með einhverjum ráðum. Auk þess hefur allskyns rugl og vitleysa vaðið uppi í þýðingum í sjónvarpi varðandi samkynhneigt fólk, og kór- ónaði allt það rugl þegar orðið hommi var þýtt sem álfur í Ættar- óðalinu í fyrravetur: „You look like two fairies” var þýtt „Þið lítið út einsog tveir álfar.” Útvarpsmálið Þá er það útvarpið, íslenska ríkis- útvarpið við Skúlagötu. Ég veit eigin- lega ekki á hverju skal byrja í um- fjöllun um þessa stofnun: þennan risavaxna lygavef, fullan af mann- leysum, valdhroka, óheilindum, lög- leysum og þótta. í örstuttu máli: Fyrir uþb fjórum árum hugðust Sam- tökin ’78 auglýsa í útvarpinu. Auglýs- ingin hljóðaði svo: „Hommar. Les- bíur. Munið fundinn í kvöld. Sam- tökin ’78.” Það undarlega skeði að auglýsingunni var skilað til baka með þeim orðum að svona dónaskapur fengi ekki inni í útvarpinu. í samtali við fyrrverandi útvarpsstjóra, Andrés Björnsson, var þessi ákvörðun ríkis- útvarpsins staðfest. Samtökin ’78 skutu málinu til útvarpsráðs. Þar var samþykkt að þau mættu auglýsa í út- varpinu, og staðfesti þáverandi for- maður útvarpsráðs það í blaðafrétt. Farið var með sömu auglýsinguna aftur eftir þessi málalok útvarpsráðs, en viðtökurnar urðu þær sömu og áður. Félaginu var nú heimilt að aug- lýsa — en með því skilyrði að auglýs- ingunum yrði ekki beint til homma og lesbía. Rætt var aftur og aftur við fyrrverandi útvarpsstjóra og honum bent á að stefna rikisútvarpsins í þessu máli bryti í bága við ákvæði mannréttindasamninga um frjálsa miðlun upplýsinga og að þessar að- gerðir ríkisútvarpsins skertu tjáning- arfrelsi minnihlutahóps og möguleika hans á að taka á móti upplýsingum. Fyrrverandi útvarpsstjóri svaraði þessu engu. Leitað var aftur til út- varpsráðs sem í þetta sinn kaus að sinna ekki málinu. Nú var leitað til forsætisráðherra, Steingríms Hermannssonar, forseta íslands, Vig- dísar Finnbogadóttur, — og forseta alþingis og fyrrverandi útvarpsstjóra var afhent mótmælaskjal með kröfum homma og lesbía um frjálsa miðlun upplýsinga. Haldinn var mót- mælafundur fyrir framan alþingis- húsið og við sendiráð íslands á Norðurlöndum og sendiherrum afhent mótmælaskjöl til íslensku rík- isstjórnarinnar og þess krafist að rík- isstjórnin beitti sér í þessu máli og sæi um að landslög væru virt. Þá sendu þúsundir Norðurlandabúa fyrrverandi útvarpsstjóra mótmæla- bréf. Hver er svo niðurstaðan af öllu þessu? Jú, sumarið 1983 kom á fund okkar í Samtökunum Guðrún Guð- laugsdóttir, fréttamaður á ríkisút- 22

x

Samtökin '78 - Úr felum

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - Úr felum
https://timarit.is/publication/1489

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.