Samtökin '78 - Úr felum - 01.07.1985, Síða 25

Samtökin '78 - Úr felum - 01.07.1985, Síða 25
-—hún dró hið göfuga nafn ættarinnar og grónar dyggðir hennar niður í ræsið.” Hann hótaði því að hann myndi gera hana útlæga — það er að segja koma henni fyrir á geðveikrahæli, — og gera lögfræðilegar ráðstafanir til þess að svipta hana aleigunni, húsunum í Helvetiustræti. Hvað vesalingurinn hefur orðið að ganga í gegnum! Mjallhvít varð svo slegin, henni var svo brugðið, að hún skalf af ótta er hún hélt út af skrifstofu bróður síns. í þá daga var Avenida Paulista enn hljóðlátur staður. Þarna var þá, og er enn, á milli borgarsetranna, sem gömlu ættunum í Sao Paulo tókst með erfiðismunum að halda eftir að verðbréfamarkaðurinn hrundi, og ævintýrahallanna, sem hinir nýríku hafa reist á síðustu fáanlegu lóðunum, þarna var trjágarður, að öllu leyti náttúrunnar smíð, þar sem friðsælir malarstígar lágu um trjálundi og breiður villiblóma. í þessari vin, fjarri hjarta borgarinnar, fann Mjallhvít sér skjól fyrir siðgæðisheift fjölskyldunnar. í vari trjánna gekk hún um og krúsaði frá því síðdegis og fram undir náttmyrkur, óhult fyrir fyrirlitningaraugliti þeirra er voru söguberar bræðranna. Hún nam land ellegar ruddi braut í þessu hverfi borg- arinnar, opnaði nýjar lendur þeim er á eftir komu. Þegar fundið var upp og farið að nota slagorðið Ekkert stöðvar Sao Paulo, hafði Mjallhvít þegar staðið lengi í fremstu víglínu að þenja út sjóndeildarhring þeirrar borgar, er hraðast óx í veröldinni. Garðurinn fagri varð Mjallhvíti fljótlega afar nákom- inn, og er tímar liðu fram varð hún órjúfanlega tengd garðinum, svo samofin varð tilvera þeirra. Síðdegis, þegar hún var komin út í skóg, gengu smiðirnir, sem voru að reisa síðustu glæsihúsin í hverfinu, við hjá henni. Löngu seinna, þegar þenslan varð í byggingariðn- aðinum og farið var að rífa gömlu einbýlishúsin og rýma fyrir skýjakljúfum þá gengu aðrir smiðir — synir og sonarsynir þeirra frá því í gamla daga — gegnum skóginn, og þar var Mjallhvít þá enn og beið þeirra æðrulaus. En vissulega var ýmislegt orðið breytt. Árin höfðu liðið, gegnum hana, framhjá henni, yfir hana. í drottn- ingarandlitið, er eitt sinn var svo ferskt og fagurt sem rósarhnappur, voru komnar hrukkur, og augun orðin þrútin og Ijóminn gamli að mestu horfinn úr þeim. En hörundið var enn óaðfinnanlega hvítt — hún forðaðist sólskinið umfram allt — og hárið gjáði enn, með lítils háttar hjálp Black Mystery frá L’Oreal, eins og blá- svartir vængir graúna. Hún vaknaði til lífsins klukkan fjögur, er hún tók sér far með sporvagninum „Avenida” á horni Rua Helvetia og Avenida Sao Joao, og hélt í garðinn. Hún kom þangað fyrir sólsetur, rétt í tæka tíð til þess að sjá börnin litlu leika sér í sandinum og á milli trjánna, fjarri vonsku heimsins, ellegar hjóla um stígana undir vökulu auga barnfóstra sinna. Þá fékk Mjallhvít sér sæti á stein- bekk nokkrum rétt hjá pissiríinu, við stíginn sem bygg- ingamennirnir þurftu að ganga. Hún fór öðru hvoru inn á pissiríið og vann, eins oft og með þurfti, en aldrei var hún á stjái eftir myrkur, því að eins og allir vita er lofts- lag í Sao Paulo svo óstöðugt, að gróðurblettirnir, sem eru ekki margir í borginni, verða oft rakasamir að næt- urlagi. Það var síðdegis einn fagran septemberdag, að stór- kostlegri hugmynd laust niður í huga Mjallhvítar, þar sem hún sat á bekknum sínum og horfði á síðustu geisla^-^. Nótt í Warnemunde Langa molluheita nótt létum við fyrirberast einsog vanræktir já löngugleymdir smámunir aumasta umrennings uppi í töskuneti lestarklefanna því við komumst ekki lengra var sagt. Við biðum ferjunnar undir morgun. Aðeins að liðnu dægri var því heitið við hlytum öll að komast heilu í höfn handanvið sundið. Ég man það stirndi á dökk augu í grímunni þegar ekkert var talað ekki einusinni hvíslað góða nótt. Er ekki öldungis sama hvar um jörð maður flækist, ég spyr, er maðurinn ekki alltaf einsog hverannar löngugleymdur skjatti í pinklaneti Stórasannleiks og bíður ferju sem að lokum, ég spyr, flytur hann út á þetta óræða og þó svo títtumtalaða sund og má þakka Almættinu ef einhverjum kann að þóknast að ljúka upp á hann dökkum augum andartak hvar hann þreyir molluheita nótt? Kannski ekki. ElíasMar (1953) 25

x

Samtökin '78 - Úr felum

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - Úr felum
https://timarit.is/publication/1489

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.