Samtökin '78 - Úr felum

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Samtökin '78 - Úr felum - 01.07.1985, Qupperneq 29

Samtökin '78 - Úr felum - 01.07.1985, Qupperneq 29
News“. Blaðið styðst einkum við auglýsingar úr eigin röðum. Enda þótt aðstandendur ritsins ali með sér þá von að geta talið enska aug- lýsendur á að fylgja fordæmi þandarískra kollega, stendur það ekki á nægilega traustum grunni til að fylgja hinu djarfa fordæmi stærsta hommablaðsins i Washing- ton, ,,The Blade“, að sniðganga al- farið auglýsingar með kynferðislegu innihaldi. „Venjulegar auglýsingar“ ,,The Blade“ er ekki lengur háð slíkri vöru en hagnast einkum á ,,venjulegum“ auglýsingum. Gagn- stætt því sem gerist i San Francisco einkennist hommasamfélag Wash- ingtonborgar í umtalsverðum mæli af fáguðum, borgaralega klæddum mönnum, sem stunda sérhæfð störf og hafa meiri áhuga á eigin frama- ferli en kynferðislegum sérþörfum. Washington, með öll sín söfn, veit- ingastaði, mikinn fjölda einhleypra og frjálslyndi hvað snertir atvinnu- ráðningar, er almennt talin heppileg til að setjast að í. Auglýsingar fast- eignasala eru því orðnar drjúg tekjulind fyrir ,,The Blade“. Þessir fáguðu viðskiptavinir koma nú í staðinn fyrir þá er áður var höfðað til með auglýsingum á eggjandi leð- urfatnaði. Svo dæmi sé tekið má nefna aug- lýsingu fyrirtækisins ,,The Point“ á stóru fjölbýlishúsi i Silver Spring, Maryland, með einkasundlaug, upplýstum tennisvöllum og hús- vörslu allan sólarhringinn: ,,Ef þér getið hugsað yður að búa með góð- um vini, með nóg húsrými, án puk- urs og án þess að ofbjóða fjárhags- legri getu yðar ... veljið þá þriggja herþergja íbúð hjá okkur. Ef þér kjósið að nota þriðja herbergið sem bókasafn eða setustofu getum við í kaupbæti látið í té ókeypis dyra- búnað.“ Auglýsing sem þessi er sögð fá meiri undirtektir í homma- blaði en öðrum blöðum. Að hún verða fyrir neinu misrétti. í mörgum amerískum borgum hafa fasteignasalar sannfærst um að hommar vilji gjarnan festa kaup á niðurníddum fasteignum í mið- bæjum borganna þar sem konur og fjölskyldur með börn búa ógjarnan. Borgarhlutar í Washington eins og Foggy Bottom og Capitol Hill eru aftur komnir til vegs og virðingar, einkum fyrir tilstuðlan homma. Á siðari tímum hafa hús í mun verr þokkuðum hverfum verið gerð upp af hommum og hafa endurunnið nokkuð af fyrri glæsileika. Ný rannsókn Kinseystofnunarinnar á hommum, búsettum á San Franc- isco svæðinu sýnir, að hommar eru almennt vinsælir leigjendur. Leigu- salar töldu, að hommar kynnu að nota tekjur sínar og þekkingu til innréttinga á húsnæðinu og að bæta eignina. Lesbíur voru oftar taldar óæskilegar og þóttu líklegri til að lifa óreglubundnu lífi, kannski vegna þess að margar þeirra eiga börn, auk þess sem tekjur þeirra eru lægri. homma hefur blómstrað, jafnhliða því sem þeir eru innlimaðir í samfé- lagið í vaxandi mæli. Ferðaskrif- stofur homma njóta vinsælda og vaxa í slíkum mæli að aðrir minni- hlutahópar gætu ekki leikið það eft- ir. Hin sjö ára gamla ferðaskrif- stofa, „Uranian Travel“ i London, kallar sig t.d. „stærstu og vinsæl- ustu hommaferðaskrifstofu í heimi“. Skrifstofan býður upp á ferðir til Bandaríkjanna og til þekktra tískustaða í Vesturevrópu eins og t.d. Vestur-Berlínar og Amsterdam. „Uranian Travel“ hefur upp á að bjóða hótel, sem einungis eru ætluð hommum, á Ibiza og Mykonos, leiðsögn um stærri borgir og sumarfri í homma- umhverfi, allt frá diskótekum til baðstranda. Gagnkynhneigðu fólki, sem leitar þjónustu, er ekki vísað á bug. Það hefur meira að segja gerst, að viðskiptavinirnir hafi tekið mömmur sínar með sér! I Bandaríkjunum eru til bað- strendur þar sem hommar eru að verða allsráðandi, en þekktastar þeirra eru Key West og Fire Island

x

Samtökin '78 - Úr felum

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - Úr felum
https://timarit.is/publication/1489

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.