Samtökin '78 - Úr felum - 01.07.1985, Qupperneq 33
TIMAMOTA
VERK
Nýja platan með
Bubba Morthens
er komin út
KONA er Ijúfasta og fallegasta
plata sem, Bubbi hefur nokkurn tíma
sent frá sér. Sterk lög, fallegar útsetn-
ingar, tilfinningaríkir og sterkir textar.
Aðstoðarmenn Bubba á þessari
plötu eru margirfremstu tónlistarmenn
landsins.
■ New Order
-Low Llfe
Ný plata frá einni virtustu hljóm-
sveit Breta. Plata sem aðdáend-
ur New Order hafa beðið eftir
með óþreyju í 3 ár. Low-Life fékk
strax feikigóðar viðtökur er-
lendis. Enda er hér tvírnælalaust
um að ræða eina vönduðustu
plötu ársins.
■ The Smiths
- Meat Is Murder
Umsagnir gagnrýnenda tala sínu
máli um gæði The Smiths.
„Fyrsta plata Smiths var góð en
þessi er enn betri..."
Gunnl. Sigfússon - HP
„Kjarngóð og markviss"
Lára - Þjóðviljinn
„Þetta er verulega góð hljóm-
sveit, og platan sú besta í langan
tíma." (EINKUNN: 9 af 10)
Árni Daníel - NT
R E T T I R
£y (,,homminn“ í
eitt laga hennar.
(neinn með ,,gay
í tengslum við
íítfg sín. Fyrrum um-
(rlingar segir að ónot
því að maðurinn
jfi hafi reynst vera
nenni þótt afleitt.
ÍDENS
gramm
Laugavegi 17 Sími12040.
var þekktasta ljóð-
^nn ferðaðist um ís-
linum O’Neill sum-
krifaði um þá ferð
þrók, „Letters from
i var boðið hingað
|éinna, fyrir rúmum
: að sjá gamla land-
færi hommi vissu all-
það sem manns-
Jmin út ný ævisaga
rothy J. Farnan,
I: The intimate story
Ve affair.“
Isherwood (hann
em söngieikurinn
á) segir frá því í
|stopher and his
rAuden komu á-
Fi til hafnar í New
fáir: „Elskurnar mín-
[ð þið finna þann sem
agaan sem þið getið
og hlotið ást
. &ð sem þið eruð
tn þið þykist vera. Og
ú finnur hann fljótt,
Bhaða...“
mann, og þrjátíu ár-
fhann til hans ljóðið
egar hann var í
arsakir. Auden var
i kom í höfn í New
(Kallman var 18 ára.
sem Kallmans
I í fyrri ævisögum
nn komið við sögu
sem eldaði oní
furinn sem átti sam-
um að semja ljóð
Næst þegar Audens
|á íslandi má ekki
TOLUR
|í ljós að tölur um
pjúklinga á áhættu-
ðar. í N-Ameríku
þvern mann í aðeins
þó að hann sé í
(>pum, og er þá höfð
annig að sé maður
notað sprautuvímu-
ður í hommahópn-
Pímuhópnum. í San
ft ljós að 12% þeirra
sem höfðu verið
jtahópsins, höfðu not-
i þess að komast í
vísindamanna um
la i Bandarikjunum í
SAMBUÐ HOMMA
OG LESBÍA VIÐUR-
KENNDí
BERKELEY
Berkeley er kunnur háskólabær í
Kaliforniu. Þar hafa menn löngum
þótt róttækari og framsýnni en
gengur og gerist i Bandaríkjunum.
Ný borgarstjórn þar hefur nú á-
kveðið að sambúðarfólk í starfi hjá
borginni skuli allt njóta-sömu rétt-
inda án tillits til hjúskaparstéttar
eða kynferðis. Skilyrði þess að les-
bíur og hommar njóti þessara rétt-
inda er að báðir aðilar séu orðnir
átján ára, séu ekki giftir, séu
óskyldir og lýsi því yfir að þeir beri
sameiginlega fjárhagslega ábyrgð.
Þetta felur í sér rétt til makabóta og
eftirlauna. Borgarstjórnin komst
réttilega að þeirri niðurstöðu að
svona yrði þetta að vera ef halda
ætti í heiðri regluna „sömu laun
fyrir sömu vinnu“. Lesbíur og
hommar í starfi hjá borginni höfðu
fram til þessa ekki notið þeirra
kjara að makar þeirra nytu sömu
trygginga og makar fólks sem áttu
kost á hjónabandi.
WENCHE
LOWZOW SEGIR
SIG ÚR HÆGRI-
FLOKKNUM
Það dró að sér þjóðarathygli þegar
Wenche Lowzow þingmaður
Hægriflokksins í Noregi kom úr fel-
um sem lesbía (sjá viðtal við hana í
3. tölublaði). Hún sem hafði verið
tákn íhaldssamra viðhorfa á öllum
sviðum, og þó fyrst og fremst í
skólamálum. Reyndin varð líka sú að
hún einangraðist í flokknum, henni
voru ekki falin nein verkefni fyrir
hann og þegar dró að framlagningu
framboðslista fyrir kosningarnar í
haust var henni borið á brýn af sam-
flokksmönnum að hún væri orðin
„eins máls þingmaður“. Henni var
auðvelt að svara því að allir aðrir þing-
menn hefðu vanrækt þau mál sem hún
lét sér annast um auk þess sem hún
hefði beitt sér fyrir úrbótum í fjölda-
mörgum málaflokkum. Sannleikur-
inn er sá að eftir að hún kom úr fel-
um sem lesbía opnuðust augu henn-
ar fyrir þjóðfélagslegu ranglæti á
öllum sviðum og afstaða hennar á
þingi fjarlægðist æ stefnu Hægri-
flokksins. Hún sem hafði verið i
öðru sæti á framboðslista flokksins
I Osló i síðustu þingkosningum
hlaut nú ekki tilnefningu til neins
sætis í flokksfélögunum. Wenche
Lowzow steig síðan skrefið til fulls i
vor og sagði sig úr Hægriflokknum.
Er þingmannsferli hennar því lokið
þegar þingi lýkur.
EKKI HOMMI - 1
Það hefur ekki gengið sem skyldi
fyrir Carl Lewis, sem vakti svo
mikla athygli á Ólympíuleikunum
síðustu, að ná sér á strik sem há-
tekjumaður í íþróttum. Ástæðan
kvað vera sú að Coca-Cola og önn-
ur fyrirtæki óttist umtal um ástalíf
mannsins. Sést hefur á prenti að
hann sé hortugur hommi, en sjálfur
sviptir hann þetta sannleiksgildi
sínu með því að segjast ekki vera
hommi.
EKKI HOMMI - 2
,,Ég veit að það er óhjákvæmilegt
að upp komi getgátur um samkyn-
hneigð okkar,“ segir Bill Latham,
46 ára, sem hefur haldið heimili
með Cliff Richard, 44 ára, í 19 ár.
,,Fólk leggur saman tvo og tvo og
fær út fimm.“ Móðir Cliffs er á
heimilinu. Vinátta þeirra hófst þeg-
ar söngstjarnan fór að leita guðs.
,,Við lifum alveg eðlilega og vinir
okkar eru eðlilegir. Þetta er bara
góð vinátta,“ segir Bill Latham að
lokum.
HOMMERÍ í
JÚGÓSLAVÍU
Allt er breytingum undirorpið og nú
eru júgóslavneskir hommar farnir
að krefjast hlutdeildar I frelsi landa
sinna. í fyrra var í fyrsta skipti efnt
til hommahelgar í Ljubljana sem
tókst frábærlega vel, og í ár ætla
júgóslavneskir hommar sér ennþá
meira.
33