Samtökin '78 - Samtakafréttir - 01.12.1999, Blaðsíða 8

Samtökin '78 - Samtakafréttir - 01.12.1999, Blaðsíða 8
Mararbárur Nýútkomin Ijóðabók Um þessar mundir sendir Elías Mar frá sér bókina Mararbárur sem geymir úrval Ijóða frá árunum 1946-1998. Bókmenntaunnendur þekkja Elías af skáldsögunum Sóleyjarsögu og Vögguvísu sem komu út um miðbik aldarinnar, en hann hefur einnig fært þjóð sinni Ijóð sem orðið hafa fleyg og mörgum kær, og í Mararbárum er að finna margt það sem þekktast er og ágætast af skáldskap Elíasar auk nokkurra önd- vegisþýðinga erlendra Ijóða. Hér birtast tvö frumsamin Ijóð og ein þýðing með góðfúslegu leyfi skáldsins. Þess má geta að Ijóðið Úr hafi og þýðingin á Hinn dauðadæmdi eftir Genet voru á sínum tíma frumflutt á menningarhátíðum Samtakanna 78. Hinn 12. október sl. var liðið ár frá dauða Matt- hews Shepard. Hann var 21 árs samkynhneigður nemi við Wyoming-háskóla í Bandaríkjunum og lést af sárum sínum á sjúkrahúsi eftir að tveir jafnaldrar hans höfðu barið hann til óbóta og skilið eftir meðvit- undarlausan, bundinn við girðingarstaur í frosti. Matt- hew var einn af örfáum opnum hommum meðal stúd- enta við Wyoming-háskóla í Laramie. Dauði Matthews hratt af stað mikilli atburðarás og reiði blossaði upp meðal fólks um allan heim. Pólitískar umræður um stöðu samkynhneigðra hafa sjaldan verið jafn háværar og eftir morðið og fyrir vikið hefur þessi hræðilegi atburður orðið að alþjóðlegu tákni í mann- réttindabaráttu homma og lesbía. Stuttu eftir dauða Matthews var haldin minningarvaka í Washington D.C. þar sem þingmenn og frægt fólk, eins og t.d. Ellen DeGeneres og Sharon Stone mótmæltu morðinu. Kröfuganga var gengin í New York þar sem yfir 4000 manns söfnuðust saman. Þessi fjöldi stóð að mótmæl- unum á mesta annatíma dagsins og tafði umferð svo að 100 manns voru handteknir. Einnig komu leikarinn Nathan Lane og sjónvarpsþulurinn Steve Kmetko úr skápnum í kjölfar morðsins. Réttarhöld eru hafin yfir Aaron McKinney og Russell Henderson sem ákærðir voru fyrir að hafa dregið Shepard með sér út í eyðimörk og barið hann þar þang- að til hann missti meðvitund og lést tæpri viku síðar. Henderson hefur verið dæmdur í tvöfalt lífstíðarfangelsi en mál McKinneys verður tekið fyrir næsta vor. í kjölfar þessa hefur ýmislegt breyst í hugum margra og oft verður vitnað í þennan atburð þegar rætt er um mannréttindi og mannvernd samkynhneigðra. Matthew Shepard var eitt af mörgum fórnarlömbum svonefndra hatursglæpa, glæpa sem beinast að kyn- þætti, trúarbrögðum eða kynhneigð fórnarlambsins og dauði hans hefur orðið til þess að knýja á um víðtækari og afdráttarlausari refsilöggjöf fyrir slík afbrot í Banda- ríkjunum. KES/Advocate Úr hafí Þeir týndust í hafið, haf þagnarinnar og gleymskunnar undir svörtuloftum fordómanna. En hvaðeina hefur sinn tíma, og jafnvel haf þagnar og gleymsku skilar feng sínum á þessa ókunnu strönd í dögun nútíma og framtíðar. Hér stíga þeir upp úr bylgjunum síungir síkvikir í skini morgunsins. Ljóma nýrrar aldar slær á brosmild andlit þeirra. Hönd í hönd leiðast þeir í átt til okkar til að búa hjá okkur alltaf héðan í frá, endurheimtir úr hafi. (1995) 8 SAIV1TAKAFRÉTTIR

x

Samtökin '78 - Samtakafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtökin '78 - Samtakafréttir
https://timarit.is/publication/1492

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.