Samtökin '78 - Samtakafréttir - 01.12.1999, Qupperneq 19
I ríki
andstæðnanna
r
málefnum samkynhneigðra virðist
Bretland vera land hinna full-
komnu andstæðna þessa dagana.
Landlæg kurteisi millistéttarinnar
veldur því að enginn vill vera dóna-
legur, ekki einu sinni við lesbíur og
homma, svo að betri fyrirtæki og
stofnanir keppast við að auglýsa að
þau mismuni engum á grundvelli
kynhneigðar. Sýnileiki samkyn-
hneigðra er einnig með betra móti;
allar sjónvarpsstöðvar skarta spjall-
eða spurningaþáttum þar sem mis-
pöddulegar drottningar ráða ríkjum
og enginn sápuópera er sápa með
sápu nema þar komi fyrir a.m.k. ein
lesbía eða einn hommi. Þá eru ótaldir
pólitískt korrekt skemmtiþættir sem
eiga að höfða beint til samkyn-
hneigðra áhorfenda eins og Gaytime
TV eða fræðsluþættir um menningu
okkar og sögu. Meira að segja aug-
lýsingarnar eru farnar að gera ráð fyr-
ir þessum fáu prósentum þjóðarinnar
sem neytendum: tvær huggulegar og
ástfangnar konur auglýsa bjórinn og
settlegt hommapar er hluti af jóla-
stórfjölskyldu IKEA þetta árið. Þá eru
ónefnd tískublöð kvenna eins og
Vogue sem reka áróður fyrir „BiTry"
við mismikla hrifningu lesbíanna sem
vilja einhverra hluta vegna meina að
það að vera lesbísk kona eða tvíkyn-
hneigð snúist um meira en tísku. Pet-
er Mandelson er sestur aftur í ríkis-
stjórn Blairs í embætti Norður-ír-
landsmálaráðherra, en hann býr eins
og vitað er með öðrum karlmanni
FILIPPUS ISIEITAR AÐ
BJÓÐA HOMMUNUM
HEIM TIL SÍN
En á meðan allir láta sem ekkert sé er
raunveruleiki margra lesbía og
homma hér í landi beiskari en yfir-
borðsumburðarlyndi fjölmiðla gefur
til kynna. Lagaleg staða er bág ef
miðað er við önnur ríki í Norður-Evr-
ópu. Lögaldur til kynmaka er 18 ár
fyrir homma en 16 ár fyrir aðra, það
er ólöglegt fyrir karlmenn að reyna
við aðra karlmenn á opinberum stöð-
um en samkynhneigð kvenna er hins
vegar ekki nefnd í lögum sem segir
sitt um stöðu lesbía. Fræðsla um
samkynhneigð í skólum er bönnuð,
samkynhneigðir klerkar flýja ensku
biskupakirkjuna, herinn rekur fólk úr
þjónustu sinni ef grunur leikur á að
það sé samkynhneigt, og Filippus
drottningarmaður gefur út tilkynning-
ar um að hann vilji ekki homma í
veislurnar sínar.
ÞEGAR
MUNAÐARLEYSINGJA-
HÆLIN FYLLAST
Samkynhneigðir í Bretlandi eru orðn-
ir langþreyttir á lappadrætti lög-
gjafans og finnst breytingar til batn-
aðar yfirleitt of litlar og koma of
seint. En þrátt fyrir seinagang lög-
gjafans eru ýmis teikn á lofti um
batnandi tíð. Nýsettur forseti yfir
hæstarétti fjölskyldumála gaf stuttu
eftir embættistökuna í október út yf-
irlýsingu þess efnis að samkyn-
hneigðir væru fullt eins hæfir til þess
að ættleiða börn og hverjir aðrir.
Kom þessi yfirlýsing mörgum á
óvart, bæði vegna þess að umrædd-
ur dómari, Dame Elizabeth Butler-
Sloss, hefur af mörgum verið talin
gamaldags í viðhorfum og einnig
vegna þess að frá miðjum níunda
áratugnum hefur samkynhneigðum
pörum í raun verið heimilt að ætt-
leiða börn og fara með sameiginlega
forsjá barna annars aðilans þó að
hljótt hafi farið. Butler-Sloss rökstyð-
ur mál sitt með nýjum rannsóknum
sem sýna fram á hæfni lesbía og
homma sem uppalenda og er talið
að hún vilji með þessari yfirlýsingu
skapa fordæmi og hvetja til fleiri ætt-
leiðinga til samkynhneigðra para,
enda ekki vanþörf á þar sem öll mun-
aðarleysingjahæli Bretlands eru full
ár eftir ár og fósturforeldra skortir.
Samtök samkynhneigðra hafa fagnað
yfirlýsingunni og telja hana munu
hafa jákvæð áhrif á viðhorf almenn-
ings gagnvart samkynhneigðum for-
eldrum.
Lilja S. Sigurðardóttir
skrifar frá Bretlandi
HERMENN FÁ
UPPREISN ÆRU
Góðar fréttir bárust einnig frá Stras-
bourg á dögunum þegar Mannrétt-
indadómstóll Evrópu úrskurðaði að
breska hernum væri óheimilt að reka
fólk úr þjónustu sökum samkyn-
hneigðar. Úrskurðurinn kom í kjölfar
fimm ára málaferla fjögurra fyrrver-
andi hermanna gegn hernum. Dunc-
an Lustig-Prean, John Beckett, Jea-
nette Smith og Graeme Grady
kærðu herinn eftir að hafa verið rek-
in fyrir það að vera samkynhneigð
og komst Mannréttindadómstóllinn
að þeirri niðurstöðu að brottrekstur-
inn hefði verið ólöglegur og brotið á
mannréttindum þeirra og að hér eftir
beri hernum að umlíða samkyn-
hneigt fólk í þjónustu sinni. Nú á ein-
ungis eftir að koma í Ijós hvort her
hennar hátignar ætlar sér að hlíta úr-
skurði Mannréttindadómstólsins og
leyfa samkynhneigðum að þjóna
föðurlandi sínu í friði eða hvort
halda eigi óbreyttri stefnu og eyða
þar með 12 milljónum sterl-
ingspunda af árlegum fjárlögum
hersins í skaðabætur til þeirra tæp-
lega 300 einstaklinga sem eru reknir
árlega sökum samkynhneigðar.
Lesbíum og hommum sem eru í
sambúð við útlendinga frá ríkjum
utan Evrópusambandsins létti tals-
vert fyrr á þessu ári þegar útlend-
ingaeftirlitið samþykkti að sambúð
útlendinga við Breta af sama kyni
réttlætti landvistarleyfi. Gilda þá
sömu reglur og ef um sambúð karls
og konu væri að ræða. Þurfti ekki
lagabreytingu til þess að ná fram
þessum auknu mannréttindum held-
ur var einungis um reglugerðar-
breytingu að ræða. Lesbíur og
hommar í Bretlandi binda því helst
vonir sínar við áframhaldandi breyt-
ingar á reglugerðum einstakra stofn-
ana samkynhneigðum í hag. Þó eru
ýmsir sem spá því að lagabreytingar
verði léttari í vöfum núna þegar
erfðaþingsætum í Lávarðadeildinni
hefur verið fækkað.
SAMTAKAFRÉTTIR 19