Samtökin '78 - Samtakafréttir - 01.12.1999, Side 26
Jólasveinninn kemur í kvöld.
Lítill frændi minn spurði mig
að því eitt kvöldið hvort að ég
tryði á jólasveininn. Ég hafði komið
mér þægilega fyrir í pluss-sófan-
um heima hjá honum, og ætlaði
að líta til með stráksa, þar sem að
foreldrunum hafði verið boðið í
jólaglöggsteiti. Á meðan ég beið
eftir því að fara að horfa á ástir og
örlög Simba Ijónakonungs í senni-
lega 157. skiptið velti ég spurning-
unni fyrir mér... og lét hugann
reika. Eitt bleksvart frostkvöldið fyr-
ir skemmstu var ég á leið heim
hlaðinn innkaupapokum. Þegar ég
kom fyrir hornið á blokkinni sem ég
bý í hljóp í fang mér rauð flygsa og
skellti mér um koll. Ég sat þarna
klofvega á gangstéttinni, pokarnir
út um allt og formælti kröftug-
lega.Yfir mig gnæfði í öllu sínu
veldi, stór og stæðilegur jóla-
sveinn, sem óðamála baðst
þráfaldlega afsökunar á þessu
meinlega óhappi. Eftir að sættir
höfðu tekist með okkur hjálpaði
hann mér að setja vörurnar aftur í
pokana og bar þá með mér heim.
Þar sem að ég er afspyrnu gestris-
inn bauð ég sveinka innfyrir og hit-
aði handa honum kakó, enda vinur-
inn orðinn gegnum kaldur. Eftir að
hafa hlustað á vandræði hans í
borginni og erfiðleikana við þetta
krefjandi starf, mæltist hann til
þess að ég biði sér í mat og síðan
upp á næturgistingu. Þar sem að
hann væri nú einu sinni jólasveinn-
inn þá skildi hann sjá til þess að ég
fengi allar mínar óskir uppfylltar í
staðinn. Ég hugsaði mig örskot um,
leit á bunkann af ógreiddum reikn-
ingum mínum . . . og skálmaði síð-
ÞEGAR
JÓLASVEINNINN
KEMUR í MAT
an fram í eldhúsið.. . þar sem að
ég töfraði eftirfarandi upp úr pok-
unum.
HUMARBOLLUR MEÐ
SAFFRANSÓSU
12 humarhalar
'h dl saxaður skalotlaukur
3 eggjahvítur
2 dl kotasæla
1/8 tsk. múskat
74 tsk. hvítur pipar
'h tsk. salt
6 bollar vatn
Fjarlægið skelina af humarhölun-
um og garndragið þá. Setjið hal-
ana í blandara og hrærið þar til að
humarkjötið er orðið að farsi. Bæt-
ið lauk, eggjahvítu, kotasælu og
kryddinu í farsið og hrærið öllu vel
saman í blandaranum. Sjóðið
vatnið, mótið littlar bollur úr fars-
inu og sjóðið þær í 2-2'h mín. á
hvorri hlið. Haldið bollunum heit-
um á meðan að sósan er búin til.
SAFFRANSÓSA
1 dl kjúklingakraftur
'h dl söxuð steinselja
'h tsk. saffran
1 msk. smjör
1 msk. hveiti
17^ dl heit mjólk
'h tsk. hvítur pipar
'h msk. sítrónusafi
2 msk. söxuð steinselja
Setjið saffranið og steinseljuna í skál
og hellið heitum kjúklingakraftinum
yfir. Látið standa í 10-15 mín. Bræðið
smjör í potti og blandið hveitinu
saman við. Hellið steinselju og saffr-
anleginum í gegnum sigti og bland-
ið honum saman við heita mjólkina.
Hellið mjólkurblöndunni smátt og
smátt saman við hveitibolluna og
hrærið vel í milli. Látið sósuna sjóða
við meðalhita í 2-3 mín. Bætið pipar,
sítrónusafa og steinselju í og berið
sósuna fram heita með humarboll-
unum.
VILUGÆS MEÐ KIRSUBERJASÓSU
1 villigæs
3 msk. sítrónusafi
salt
1 söxuð gulrót
'h saxaður laukur
1 sellerístilkur
3 dl mysa
1 dl vatn
safi úr 'h sítrónu
Snyrtið gæsina og fjarlægið inn-
matinn ásamt fóarninu og setjið
það í pott. Þerrið gæsina og núið
hana með sítrónusafa. Saltið eftir
smekk og leggið gæsina í ofnskúffu
eða steikarpott. Setjið grænmetið í
með gæsinni og steikið við 180
gráður í 20-30 mín. Lækkið þá hit-
ann í 150 gráður. Hellið mysu og
vatni í ofnskúffuna og steikið áfram
í 50-60 mín. Hækkið hitann í 210
gráður síðustu 10-15 mín. til þess
að fá stökka skorpu. Haldið gæsinni
heitri, sigtið soðið, fleytið fituna af
og útbúið sósuna.
KIRSUBERJASÓSA
1 krukka niðursoðin kirsuber
'h dl sveskjusafi
safi úr 'h appelsínu
1 dl vatn
2 dl soð af gæsinni
salt og svartur pipar
5 msk. rjómi
Ijós sósujafnari
Setjið kirsuberin í pott ásamt
sveskjusafa, appelsínusafa, vatni
og soði. Látið suðuna koma upp,
bragðbætið með salti og pipar setj-
ið rjóma út í og þykkið eftir smekk.
Berið sósuna fram heita með gæs-
inni ásamt eplasalati, rauðkáli,
léttsoðnu grænmeti og pönnu-
steiktum kartöflum.
DRAUMUR JÓLASVEINSINS
4 blöð matarlím
'h kg hreint skyr
50-75 gr sykur
2 'h dl rjómi
26 SAMTAKAFRÉTTIR