Samtökin '78 - Samtakafréttir - 01.12.1999, Side 30

Samtökin '78 - Samtakafréttir - 01.12.1999, Side 30
Stjörnuspá " viö árþiisundmót 15.12.1999 - 15.1.2000 HRÚTURINN Það er orðið tímabært að opna augun og horfa í kringum sig, taka vel eftir umhverfinu. Taktu eftir því sem aðrir segja og gera, ekki spyrja spurninga. í desember áttu að hugsa vel um heimilið og vera góður við fólk! Hringdu í vini þína og skrifaðu bréf. Ef þú ferð eftir þessu verða áramótin ánægjuleg og þú ferð glaður/glöð inn í nýja öld. NAUTIÐ Er allt á niðurleið? Taktu þig á, þetta er ekki svona slæmt, þú hef- ur það ágætt! Viltu breytingar? Kannski er rétti tíminn að viður- kenna að líf þitt er hundleiðinlegt. Þá verður þú að skilja að lífið er spegilmynd hugsana þinna og breytingar kalla á annan hugs- anahátt og algjörlega breyttan lífsstíl. Ef þú losar aðeins um og slakar á kröfunum áttu góða möguleika á ástarævintýri um ára- mótin. TVÍBURINN Þinn tími er kominn! Hættu að ásaka sjálfa/n þig, það er ekki þér að kenna að allir spila rangt úr spilunum. Hættu að eyða allri þinni orku í að reyna að bjarga því sem ekki er viðbjargandi. Vertu bara þú sjálf/ur og láttu draumana rætast, það er rétti tím- inn núna. Farðu niður á Laugaveg 3 næsta fimmtudag og segðu nokkra brandara og vertu fyndin/n eins og þú varst alltaf einu sinni. KRABBINN Halló, velkomin í nútímann! Hættu nú að velta þér upp úr því sem var og þessum endalausa samanburði. Fortíðin er liðin, framtíðin skiptir máli. Staða tunglana í desember vinnur með þér og nú er rétti tíminn að gera það sem þig hefur langað svo lengi en ekki þorað. Framkvæmdu í dag! Ef þú ert á lausu er desember rétti tíminn til að skrifa fyrsta skrefið. Ef þú ert í sambandi skaltu láta verða að því að endurnýja rómantíkina. LJÓNIÐ Heppnin er ennþá þín megin og rómantíkin líka. Góður mánuður fyrir Ijón! Þú ert í þann mund að upplifa skemmtileg ævintýri. Leyfðu því að gerast, leyfðu ævintýrunum að koma til þín - þau hafa saknað þín. Jólin verða indæl en mundu að deila heppninni og ævintýrunum með þeim sem þér þykir vænt um. MEYJAN Hættu nú að búa til vandamál, þú ert farin/n að trúa þessari vit- leysu, það er ekkert að hjá þér! Desember er rétti tíminn til að hreinsa hugann, byrja í yoga og lesa sér til um andleg fræði, þú verður að undirbúa þig undir næstu öld. Þú verður að gæta þín sérstaklega á jólastressinu, þú ert í áhættuhópi, gætir verið lögð/lagður inn fyrir jól. Mundu, það er ekkert eins slæmt og það lítur út fyrir að vera, og nei, það er alls ekki verra! Gleðileg jól! VOGIN Farðu út að borða, þú átt það skilið! Lyftu þér upp eins oft og þú getur í desember og hugsaðu vel um líkama og sál. (Ekki gleyma áramótaballinu.) Þú ert með fullt af góðum hugmyndum sem þú skalt framkvæma og ekki láta slæmar fréttir draga þig niður, þær eiga ekki að snerta þig. Vinur þinn á inni hjá þér verk sem þú skalt Ijúka strax og sannaðu til, launin koma skemmtilega á óvart! SPORÐDREKINN Slakaðu á, þú gerir ekki allt á einum degi. Þú ert á alltof mikilli ferð og verður að stoppa þó ekki væri nema til að upplifa augna- blikið! Ef þú ferð á þessum hraða inn í jólastressið sýður upp úr löngu fyrir jól. Þetta á ekki við, slakaðu á í desember, eigðu róm- antísk kvöld, hittu vini sem þú hefur vanrækt og skoðaðu jólaljós- in. (Já, það er búið að kveikja á þeim!) BOGMAÐURINN Ertu að reyna að vera „frjáls"? Eru allir að pirra þig? Spekin fyrir þig þennan mánuðinn er að ef að þú ætlar að vera frjáls þurfa all- ir aðrir í kringum þig að vera það líka. Gerðu góðverk í desember, hættu að hugsa bara um sjálfa/n þig. Þú ert full/ur af orku og átt mjög auðvelt með að deila henni og gleðja aðra, brostu og veittu öðrum gleði í jólamánuðinum. STEINGEITIN Að vinna baki brotni borgar sig í einhvern tíma, þá gengur allt upp hjá þér! Það er einhver ósýnileg orka sem heldur þér uppi þessa dagana, hjálpar þér að halda áfram og styður þig í erfiðum ákvörðunum. Hvíld er hins vegar nauðsynleg fyrir alla og i des- ember skaltu hugsa vel um þá sem þér þykir vænt um og hafa kannski ekki verið á forgangslista að undanförnu. Það sama á við um þig sjálfa/n, lestu góða bók og mundu að það er ekki vont að vera ein/n. VATNSBERINN Það er allt of langt í sumarfríið, hættu að gera áætlanir, staldraðu við og gerðu eitthvað skemmtilegt í desember í staðinn. Byrjaðu t.d. að sauma áramótakjólinn og vertu viss um aö þú verðir flott- ust á áramótaballi Samtakanna. Ekki láta tröllin undir rúmi halda fyrir þér vöku, og ekki vera leið/leiður þó að öld vatnsberans sé liðin, þér verður ekki gleymt á þeirri næstu! FISKURINN Reyndu að halda þig frá vandræðum I desember, feldu brennivín- ið, haltu skapinu í skefjum og vertu góð/ur við fólkið í kringum þig. Einbeittu þér að framtíðaráformunum, þetta er góður tími til þess að vinna að stóra markmiðinu. Þessi mánuður er endir á öllu volæði fiskanna, nú gengur í garð ný öld með fullt af flottum tækifærum fyrir fiska, brostu! 30 SAMTAKAFRÉTTIR

x

Samtökin '78 - Samtakafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - Samtakafréttir
https://timarit.is/publication/1492

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.