Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2020, Qupperneq 4

Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2020, Qupperneq 4
 Samtökin '78 eru stærstu og elstu hagsmuna- og baráttusamtök hinsegin fólks á Islandi. I stofnun þeirra fólst mikið hugrekki, enda máttu hommar og lesbíur þola hryllilega fordóma fyrir rúmum fjórum áratugum. Tímarnir hafa svo sannarlega breyst til hins betra, en í starfi Samtakanna ’78 í gegnum árin hefur þó alltaf skipt höfuðmáli að fólk sé tilbúið að stíga stolt fram og vinna að eigin réttindum og lífsgæðum. Hinsegin barátta er í eðli sínu persónuleg og getur verið slítandi og erfið hverjum þeim sem tekur þátt í henni. Þá skiptir máli að hafa net fólks í kringum sig sem stendur með manni þegar á móti blæs og tekur jafnvel slaginn fyrir mann. Hinsegin samfélagið á Islandi er þetta net og að mínu viti eru Samtökin ’78 ein skýrasta birtingarmynd þeirrar fallegu samstöðu sem fyrirfinnst innan þess. Á vordögum 2019 sagði ég frá því í útvarpsviðtali að ég væri tvíkynhneigð. Þetta átti ekki að vera neitt mál, bara staðreynd um mig, enda hafði ég þá verið utan skápsins í rúman áratug. En þegar ég settist aftur inn í bíl fyrir utan Útvarpshúsið þyrmdi skyndilega yfir mig, ég titraði öll og skalf og fór svo að hágráta. Þarna var ég nýtekin við formennsku í Samtökunum ’78 og hafði einsett mér að vera opin og stolt af kynhneigð minni á opinberum vettvangi. Það má segja að ég hafi uppgötvað þarna að skömmin og óttinn hverfur ekki alfarið þótt maður finni til stolts. Þegar maður elst upp í samfélagi þar sem það þykir nánast klámfengið í sjálfu sér að vera tvíkynhneigð kona, þá getur verið þægilegra að segja það ekki upphátt. Þegar ég var að stíga mín fyrstu skref út úr skápnum var tvíkynhneigð varla nefnd í opinberri umræðu og í réttindabaráttunni. Allt tekur þetta toll. Það var þess vegna mikil gæfa fyrir mig persónulega að finnast ég velkomin þegar ég rataði loks á vettvang Samtakanna ’78. Sem betur fer rúmast innan okkar raða allskonar fólk með misjafna lífsreynslu og skoðanir, enda eru Samtökin ’78 samtök alls hinsegin fólks á Islandi. Þrátt fyrir allan fjölbreytileikann eigum við sameiginlega framtíðarsýn um að engin manneskja eigi að þurfa að upplifa vanlíðan eða fordóma vegna þess hver hún er. Til þess að vinna að þeirri sýn og viðhalda því sem áunnist hefur er áfram þörf á grunnstarfsemi Samtakanna ’78: réttindabaráttu, fræðslu, félagslífi og ráðgjöf. Mest er þó þörfin á samstöðu, því stolt og hugrekki þrífst best í samfélagi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78
https://timarit.is/publication/1494

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.