Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2020, Side 10

Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2020, Side 10
10 Andrés Pelóez Böðvar Björnsson Ragnhildur Sverrisdóttir Auður Magndís Auðardóttir Fríða Agnarsdóttir Jóhann G. Thorarensen Ynda Eldborg1 Matthías Matthíasson að vera til áður en við fórum að berjast fyrir réttindum." Fljótlega fór að bera á deildum meiningum um það hve fyrirferðarmikið skemmtanalíf ætti að vera í félaginu. í áðurnefndri grein í Stúdentablaðinu eru tilgreind tvö atriði sem samkynhneigðir gagnrýni helst við hin nýstofnuðu Samtök: leyndin yfir félagatalinu og skortur á skemmtanahaldi. „Guðni var ekki mikið fyrir að standa fyrir partíum," rifjar Ragnhildur upp. „Honum fannst svo ægilega vond þessi áhersla að vera alltaf að blása í partí og böll. Það var ekki alveg hans. Hann var betri í öðru.“ Guðni var á sínum tíma sakaður um að standa hreinlega í vegi fyrir skemmtanahaldi en í samtali við Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur fyrir 30 ára afmælisrit Samtakanna vísaði hann því á bug. „Að mínu mati var það óréttmætt þótt mitt áhugasvið væri annað,“ sagði Guðni. „Þeir sem vildu halda skemmtanir gátu vel gert það og gerðu það þótt mín nyti ekki við.“ Og það fór aldrei svo að enginn tæki að sér félagslífið. Böðvar segir frá: „Reynir Már Einarsson, Veturliði Guðnason, Guðmundur, kallaður Trixí, og Björn Bragi Björnsson voru jarðýtur í skemmtanalífinu í Samtökunum og utan Samtakanna. Þeir drógu tugi manna og kvenna úr felum með áberandi tilveru sinni og báðust ekki afsökunar á neinu.“ Að mati Böðvars var það áherslan á félagslífið sem átti stærstan þátt í því að félögum fjölgaði. „Á böllunum var von um ást og kynlíf. Það seldi mest, eðlilega. Svo voru gay tímarit frá Norðurlöndum og Ameríku niðri í félagi og líka eitthvað klám. Fólk þyrsti í upplýsingar og klámblöðin voru sjaldséður glaðningur sem var vinsæll hjá strákunum. Samtökin urðu að gera eitthvað til að fá fólk.“ Útuarpsstjóra sagt til syndanna: Leiðin til samfélags og sjálfsuirðingar Böllin og tímaritin trekktu kannski að en þegar kom að því að efla tengslin gegndi sjálfboðavinnan mikilvægu hlutverki. Hékk það vafalaust saman við þá staðreynd að ekki voru sérstök skil milli hlutverks félaga og sjálfboðaliða. „Sjálfboðastörfin límdu okkur saman,“ segir Böðvar. „Þessi hversdagsstörf öll, það voru þau sem bjuggu þetta allt til og tengdu fólkið. Eg hugsa þetta þannig að við vorum bara að byggja upp fótboltafélag. Við 1 Ljósmynd tók Svanhildur Bogadóttir

x

Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78
https://timarit.is/publication/1494

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.