Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2020, Page 11

Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2020, Page 11
OSYIMILEG ÆVISTORF 11 höfðum að vísu ekki unnið leik í mörg ár. En við vorum komin með húsnæði, komin með félagsmenn, fólk mætti á æfingar og svona. Við unnum sigrana inn á við. Þar sáu lesbíurnar og hommarnir að við ættum alveg rétt á sjálfsvirðingu eins og aðrir.“ Utan félagsmiðstöðvar Samtakanna var svigrúmið fyrir tilvist homma og lesbía þó sama og ekkert. Áralöng deila Samtakanna við Ríkisútvarpið, sem neitaði að leyfa orðin hommi og lesbía í útvarpsauglýsingum, er löngu orðin fræg. í henni kristallaðist baráttan fyrir tilvistarréttinum, að mati Böðvars. „Um leið og þú leyfðir þessi orð, hommi og lesbía, varstu búinn að leyfa tilvist þessa fólks í samfélaginu. Það var meira en margir vildu og þoldu.“ I baráttunni um orðin tóku sjálfboðastörfin á sig aðra mynd. Þar fóru greinaskrif og blaðaviðtöl saman við öllu beinskeyttari átök. Böðvar greinir frá eftirminnilegri ferð í Utvarpshúsið: „Eg fór með Guðna Baldurssyni til útvarpsstjóra, Andrésar Björnssonar, því við fengum ekki að auglýsa. Andrés sagði okkur að það væri best fyrir fólk eins og okkur að láta sem minnst fyrir okkur fara. Það hefði reynst farsælast í öllum samfélögum. Eg varð reiður, missti mig alveg og hraunaði yfir manninn. Eg endaði á að segja: „Þú segir mér ekki hvernig ég á að lifa lífinu.“ Heimsókninni lauk þar með og Guðni var ekki sáttur við framkomu mína á fundinum.“ Böðvar tengir getuna til að svara fordómum ráðamannsins fullum hálsi við sjálfsstyrkingarmátt félagslífsins. „Ég hafði kynnst þessum flottu strákum í skemmtanalífinu og þeir voru fljúgandi gay og báðust ekki afsökunar á sjálfum sér. Þeir voru miklu sterkari en ég, sterkari karakterar. Þeir kenndu manni að bera höfuðið hátt.“ Ragnhildur, sem fór ásamt Þorvaldi Kristinssyni, Katli Guðmundssyni, Lilju Steingrímsdóttur og fleirum með fræðslufundi í framhaldsskóla á þessum árum, tekur í sama streng. „Ég var að fóta mig sjálf og finna mig í þessum nýja veruleika sem var bara eftir að maður var kominn út. Ég held að þetta hafi verið þörf fyrir að smíða mitt samfélag. Maður fann að það gaf manni ofsalega mikið að tala við þessa krakka, sem töluðu við mann af viti á móti. Það styrkti mann líka að tala við hálfvitana fremst, sem voru með kjaftháttinn og allt þetta sem maður hafði alltaf heyrt.“ Ein eftirminnilegasta skólaheimsóknin var þó í Menntaskólann við Sund. „Þá var þemavika og krakkarnir máttu velja sér að fara á hina og þessa viðburði. Það hafði verið svo mikil aðsókn að [fræðsluheimsóknin okkar] var flutt í íþróttasalinn. Við vissum það ekkert. Við vorum bara búin að fara að heimsækja bekki. Svo komum við og vorum leidd baksviðs og allt í einu upp á svið. Þar voru stólar og míkrófónn og leikfimisalur fullur af öllum nem- endum skólans. Allir. Þau svoleiðis héngu í rimlunum alls staðar. Það var magnað. Ég veit ekki hvað það hafa margir úr þessum blessaða leikfimisal komið og talað við mig, sagt: „Ég var í salnum þegar þið komuð.“ Það hafði áhrif.“ Og enn má heyra sjálfboðaliða tala um sjálfs- styrkinguna sem störfin veita þeim. Ung hinsegin kona sem kom út úr skápnum upp úr 2010 segir: „Ég var með áralanga uppsafnaða skömm sem ég þurfti að vinna úr. Þátttaka í Samtökunum gaf mér farveg til að gera það. Þar gat ég snúið því sem ég hafði bælt svo lengi upp í eitthvað jákvætt. Þegar ég talaði við krakka sem jafningjafræðari var ég í aðra röndina að segja sjálfri mér allt sem ég hefði þurft að heyra sem barn.“ „Fámennur skemmtiklúbbur“ tekur stakkaskiptum: Kvnslóðaskipti og faguœðing Samtökin ’78 höfðu ekki náð tíu ára aldri þegar alnæmi kvað dyra á íslandi. „Allt í einu gerist það,“ rifjar Böðvar upp, „þegar þetta er allt á fljúgandi uppleið, þá kemur AIDS fyrir alvöru. Það var alveg hrikalegt högg.“ Á þessum árum gekk félagsfólk Samtakanna í gegnum gríðarleg áföll. Margir létu lífið, sumir úr sjúkdómnum og aðrir fyrir eigin hendi, og afleiðingarnar fyrir geðheilsu þeirra sem eftir lifðu voru ótvíræðar. Áhrifin á starfsemi Samtakanna voru líka afdráttarlaus. Böðvar lýsir þessum vatnaskilum svo í grein sinni um alnæmisfaraldurinn í 30 ára afmælisritinu: Samtökin ’78 höfðu alla tx'ð að meginhluta verið grasrótar- hreyfing, harðskeytt baráttusamtök. En alnæmið breytti öllu og líka Samtökunum ’78. í kjölfar alnæmisfaraldursins og vaxandi tengsla Samtakanna við stofnanir samfélagsins, þróuðust baráttu- og vinnuaðferðir Samtakanna eðlilega í átt til lobbyisma, því það er tungumálið sem stofnanir samfélagsins ræða saman á. Það urðu einnig mannabreytingar um borð í Samtaka- skútunni. Frá upphafi hafði baráttan verið drifin áfram af ögrandi skemmtanasjúkum drottningum, droppátum og uppreisnar- fólki af öllu tagi ásamt einstaka menntamönnum. En nú þegar storminn fór að lægja og það var orðið tiltölulega óhætt að koma út, barst okkur stór liðsauki af lífsglöðu, drífandi og hæfileika- ríku sérmenntuðu fólki - og gamla liðið hvarf smátt og smátt inn í baklandið. Það urðu kynslóðaskipti í mörgum skilningi. Böðvar var sjálfur einn þeirra sem kvöddu starfið í þessum kynslóðaskiptum. „Ég var náttúrulega orðinn lúinn af þessu öllu saman, en mér fannst þetta einhvern veginn bara vera í höfn. Þetta var klikkuð hugsun, en mér fannst það bara. Alþingi var komið í þetta og allt svona, komnar allar þessar tengingar vegna alnæmis og byrjað að ræða um réttindi fyrir samkynhneigða. Þá fannst mér mínu hlutverki vera lokið. Þá fór að koma inn í Samtökin fólk úr háskólanum sem fór meira í þessa bjúrókratísku vinnu, að mæta á fundi niðri á Alþingi og svona. Ég bara fílaði þetta ekki. Þetta var ekki mín deild. Það voru aðrir betur fallnir til þess heldur en ég.“

x

Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78
https://timarit.is/publication/1494

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.