Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2020, Blaðsíða 15

Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2020, Blaðsíða 15
ÓSÝIMILEG ÆVISTÖRF 15 nema tveir allt kvöldið þá voru þeir þakklátir að það var opið. Mér fannst mikilvægt að halda þessu gangandi, að fólk hefði athvarf til að koma í.“ Að sögn Fríðu skiptir gríðarlegu máli að forysta félagsins viðurkenni vel unnin störf. „Eg er ekkert að tala um peningaupphæðir, bara að segja: „Takk fyrir frábært starf.“ Það skiptir rosalega miklu máli þegar þú ert með sjálfboðaliða að þeim sé umbunað einhvern veginn. Bara að fá sér vínglas eða kókglas saman og þakka fyrir.“ Eftirtekt og þakklæti forsvarsaðila félagsins segir Fríða þó að hafi verið upp og ofan. „Það var mjög misjafnt hvort stjórnir tækju eftir því sem maður gerði eða ekki,“ segir Fríða. „Stundum fannst mér eins og það væri bara ætlast til þess, bara gert ráð fyrir því að hitt og þetta væri gert og ekki hugsað út í að ég væri ekki að þiggja laun fyrir þetta.“ Aðrar stjórnir segir hún að hafi þó verið mun meðvitaðri um vinnuframlag sjálfboðaliða. Jóhann og Ynda taka undir með Fríðu um mikilvægi stuðnings frá stjórn og starfsfólki. Ynda nefnir þar sérstaklega stuðning framkvæmdastjóranna Auðar Magndísar Auðardóttur og Daníels Arnarssonar. „Ég hef stundum verið alveg að því komin að gefast upp,“ segir hún, „en Daníel tekst alltaf að peppa mig upp og koma með nýjar pælingar og hugmyndir inn í myndina, sem er ómetanlegt.“ Gegnum tíðina hafa stjórnir og starfsfólk félagsins þó gefið stuðningi og umbun til sjálfboðaliða talsverðan gaum. Fyrsta formlega umbunarkerfið var sett á laggirnar þegar Margrét Pála Ólafsdóttir var formaður um miðjan tíunda áratuginn. Matthías var einn þeirra sem nutu góðs af þessu skipulagi. „Það voru haldnar vinnustofur fyrir utan bæinn og farið að halda vel utan um hópinn," minnist hann. „Þetta utanumhald utan um sjálfboðaliða var svolítið grasrótarkennt á þessum tíma en varð alltaf meira og meira formlegt.“ Á þessu tímabili var líka tekinn upp eins konar gjaldmiðill á vegum Samtakanna, svonefndir Samtakapunktar. „Þeir voru hluti af því sem kallaðist Bleika efnahagssvæðið," segir Matthías, „umbun til sjálfboðaliða sem gátu leyst út punkta hjá ákveðnum vildaraðilum Samtakanna ’78 en fyrst og fremst hjá Samtökunum sjálfum." Samtakapunktarnir voru lagðir niður sem hluti af fjárhagslegu aðhaldi nokkrum árum síðar, þegar Matthías var sjálfur formaður, og að hans sögn hvarf þetta utanumhald um sjálfboðaliða í kynslóðaskiptunum um aldamótin. „Eftir það var alveg viðleitni en hún var öðruvísi. Vinnustofur, samþjöppun og pælingar um þessa sameiginlegu sýn voru síður, en frekar ákveðin urnbun." Ef til vill réðst þetta af því að þjónustuhlutverkið tók að ryðja sér til rúms, meðan tíundi áratugurinn hafði að miklu leyti helgast baráttu fyrir grundvallarréttindum þar sem sameiginleg framtíðarsýn skipti höfuðmáli. Matthías minnist þess að á árunum eftir aldamót hafi verið byrjað að halda matarboð fyrir sjálfboðaliðana til að þakka þeim fyrir vel unnin störf. „Það var mjög fallega gert og skemmtilegt að halda því.“ Stjórn Margrétar Pálu var þó ekki sú síðasta til að innleiða formlegt umbunarkerfi. Auður Magndís Auðardóttir var ráðin framkvæmdastjóri árið 2015 og átti þátt í innleiðingu nýs umbunarkerfis sjálfboðaliða veturinn 2015-16 ásamt þáverandi formanni, Hilmari Hildar Magnúsarsyni. „Þegar ég kem þarna inn var mjög stór hluti starfsins borinn uppi af sjálfboðaliðum: öll fræðslan, félagslífið, allt nema daglegur rekstur og bein hagsmunagæsla í fjölmiðlum," útskýrir Auður. „Mér fannst rökrétt að verja einhverju af fjármunum Samtakanna í að umbuna þeim til að allir myndu ekki brenna upp og sýna að stjórn og framkvæmdastýra meta þetta brjálæðislega framlag mikils. Þetta voru ekki rosalegar umbanir en þær höfðu verið litlar eða engar.“ I stað þess að innleiða punktakerfi eða að tengja umbun við tiltekin embætti var nú brugðið á það ráð að umbuna eftir fjölda unninna tíma í sjálfboðavinnu. Verðlaunin miðuðust fyrst og fremst við að efla félagsleg tengsl sjálfboðaliða, t.d. með partíum og kvöldverðarboðum. Þessar tilraunir hafa þó gefist misvel. Formlegt umbunarkerfi þykir Fríðu heldur tilgerðarleg hugmynd. „Þegar þú vinnur þér inn einhverja punkta, þá ertu eigin- lega ekki að gera þetta af hugsjón. Áður þá var fólk meira að þessu af því að því fannst það vera að gera gott fyrir félagið, ekki fyrir sig. Þetta var nauðsynlegur þáttur fyrir félagsmenn." Líklega á þessi breyting einmitt upptök sín á Fríða straujar fartöluurfvrir Samtakamáttinn 2013.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78
https://timarit.is/publication/1494

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.