Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2020, Qupperneq 21
TAKIMMAL FRELSISIIMS
21
Wá lógóum hjá Samtökunum fyrr en á tíunda
áratugnum enda var ekki stemmning í félaginu
fyrir slíku. Formlegheit og stofnanavæðing voru beinlínis
eitur í beinum margra í framvarðasveitinni og því var lítill
áhugi á að sigla skútunni í höfn hinna borgaralegu gilda.
Samt sem áður þurfti grípa til einhvers lags myndmáls til
þess að auðkenna hreyfinguna, þó ekki væri nema til að
ögra borgaralegu siðferði eða gefa félagsfólki táknheim til
að samsama sig við.
I formannstíð Guðna Baldurssonar, sem gegndi
formennsku í Samtökunum frá stofnun þeirra til ársins
1986, var útbúinn bréfhaus með þríhyrningi og gríska
stafnum lambda. Þó að þríhyrningurinn væri oftast nær
prentaður í svarthvítu var hann augljós vísun í bleika
þríhyrninginn, sem rekur uppruna sinn til Þýskalands
nasismans. Ógnarstjórn nasista gekk hart fram gegn
hommum með fangelsunum og pyntingum í hinum
alræmdu útrýmingarbúðum. Hommarnir voru merktir
með bleikum þríhyrningi og fáir áttu afturkvæmt.
Á áttunda áratugnum tóku frelsishreyfingar homma
og lesbía á Vesturlöndum bleika þríhyrninginn upp á
arma sína, bæði til að sporna gegn gleymsku og sem
tákn um baráttuna gegn fordómum. Seinna meir áttu
alnæmisaðgerðasinnar í Bandaríkjunum á tíunda
áratugnum eftir að nota hann með heldur beinskeyttari
hætti þar sem ímynd útrýmingarbúðanna var notuð sem
samlíking við skeytingarleysi stjórnvalda.
Hin sögulega skírskotun bleika þríhyrningsins gerði
það að verkum að hann varð eitt af fyrstu táknum
hinsegin fólks sem náði alþjóðlegri fótfestu. Aftur á móti
þótti mörgum ekki sérstaklega hentugt að leita í táknheim
helfararinnar eftir sameiningartákní og þar að auki þótti
þríhyrningurinn of karllægur. Til að bregðast við þessu
var gríski bókstafurinn lambda valinn sem alþjóðlegt
tákn fyrir hreyfinguna á alþjóðaþingi samkynhneigðra í
Edinborg árið 1974. Menningararfur Forn-Grikkja hefur
löngum verið mörgum innblástur í framlínu baráttu
hinsegin fólks og bókstafurinn var talinn hlutlausara tákn
en þríhyrningurinn.
Kreppti hnefinn sem brýtur sér leið út úr eyríkinu
Islandi er annað merki sem Samtökin ’78 notuðu á
níunda áratugnum. Eftir sem áður var þó ekki um
formlegt lógó að ræða. Merkið er séríslenskt og hefur enga
skírskotun til hinsegin táknfræði að öðru leyti en því að
ef til vill er hægt að líta svo á að hnefinn sé að brjóta sér
leið út úr skápnum í gegnum Melrakkasléttu. Krepptur
hnefi er aftur á móti skírskotun í baráttu verkalýðs- og
kvennahreyfinga og táknar vilja til róttækra breytinga.
Þrátt fyrir að merkið hafi skýra vísun til íslands var það
teiknað af óþekktum Dana og birtist með grein eftir
Guðna Baldursson í tímaritinu Seksualpolitik. Merkinu
var svo nappað af Þorvaldi Kristinssyni sem notaði það í
útgáfustarfi Samtakanna, til dæmis í blaðinu Ur felum og
kynningarbréfum. Höfundur myndskreytingarinnar vissi
þó líklega aldrei af notkun hennar á Islandi.
Bleiki þríhyrningurinn var, í einu eða öðru formi,
áfram áberandi í merkingum Samtakanna frá
stofnun þeirra fram undir aldamót. í stjórnartíð
Margrétar Pálu Ólafsdóttur á tíunda áratugnum var
útlínum Islands skeytt inn í hægra horn þríhyrningsins
og merkið notað til prýða útgefið efni frá Samtökunum.
Þar með var hinn alþjóðlegi þríhyrningur kominn með
íslenskan blæ og merkið sameinaði innlenda baráttu og
alþjóðlega strauma.