Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2020, Síða 22

Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2020, Síða 22
22 Tveir heimar mætast. Á þessu merki sem prýddi Samtakafréttir á árunum fyrir aldamót má sjá að regnboginn hefur bæst við bleika þríhyrninginn. Regnbogafáninn var saumaður af Bandaríkjamanninum Gilbert Baker árið 1978 að áeggjan Harvey Milk, borgarfulltrúa í San Fransisco, en Milk þótti frelsis- baráttuna skorta sameiningartákn. Regnbogafáninn náði mikilli alþjóðlegri útbreiðslu á tíunda áratugnum og var orðinn hið óformlega sameiningartákn hinsegin fólks við upphaf 21. aldar. Þrátt fyrir að bleiki þríhyrningurinn sé enn sýnilegur í myndmáli hinsegin menningar má segja að hann hafi vikið fyrir regnbogafánanum. Fáninn er enda að mörgu leyti hentugra tákn þar sem hann ber með sér skilaboð um fjölbreytni mannlífsins, stolt og frelsi, en ekki tilvísun í þjáningu og dauða eins og bleiki þríhyrningurinn. Arið 2005 tók kvikmyndagerðarkonan Hrafnhildur Gunnarsdóttir við formennsku og í stjórnartíð hennar var blásið til samkeppni um formlegt lógó Samtakanna ’78. Sjónrænt útlit var Hrafnhildi mikilvægt og henni, ásamt stjórn, þótti ótækt að Samtökin væru án formlegs lógós og að ímynd þeirra væri óljós og á reiki. Hönnuðurinn Bjarki Lúðvíksson bar sigur úr bítum með lógóið sem við þekkjum í dag, þar sem mjúku regnbogarendurnar mynda töluna 78. Regnbogalitirnir eru augljós tilvísun í hinn alþjóðlega regnbogafána, rendurnar liggja þétt saman sem minnir á samtakamátt og tölustafirnir vísa til baka til upphafsárs Samtakanna. Bjarki hlaut evrópsku hönnunarverðlaunin Eulda og viðurkenningu IMARK fyrir hönnunina. Innan hinsegin samfélagsins hefur almennt ríkt sátt um þetta merki, enda er það stílhreint, fallegt og felur í sér bæði erlendar og innlendar skírskotanir. Ef til vill mun þetta fína merki prýða Samtökin út 21. öldina og inn í þá næstu en kannski mun hugmyndafræðilegt eða pólitískt umrót kalla á endurskoðun, bæði á starfsemi félagsins og táknmáli þess. Hver veit?

x

Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78
https://timarit.is/publication/1494

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.