Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2020, Síða 28

Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2020, Síða 28
28 konu eða hinn fullkomna karl. Dæmi eru um að trans fólk hafi þóst hafa tiltekin áhugamál eða gefið upp á bátinn áhugamál sem hentuðu ekki þeirra „gagnstæða kynhlutverki", að trans konur hafi mætt í viðtöl í kjólum og háum hælum til að koma fram á réttan hátt og fólk hafi jafnvel látið sem það væri gagnkynhneigt þrátt fyrir að vera tvíkynhneigt eða samkynhneigt. Sjálf get ég vottað það og mun aldrei gleyma því þegar geðlæknir teymisins spurði mig hvernig nærbuxum ég væri í og hvernig kynlíf ég hefði stundað þegar ég sótti minn fyrsta tíma til hans. Það er vægast sagt ótrúlegt að slíkt hafi átt sér stað og að heilbrigðisstarfsfólk hafi leyft sér að spyrja slíkra spurninga en þetta var einfaldlega gert til þess að kanna hvort ég væri nú ekki örugglega í kvenmannsnærbuxum og hvort ég væri ekki örugglega gagnkynhneigð. Það hefði verið pínu vandræðalegt fyrir kynjakerfið ef það hefði komið í ljós að ég passaði ekki fullkomlega inn í hið gagnkynhneigða regluveldi. Hvergi sést jafn skýrt hversu mikið gervi kyngervi er í raun og veru og í þessu kerfi. Segja má að trans fólk hafi stundað ákveðið andóf gegn þeirri þrúgandi kröfu kerfisins að binda einstaklinga við úrelt kynhlutverk og lengi barist fyrir að losna undan því. Þau tileinkuðu sér eftir bestu getu reglurnar eða leikritið sem var þvingað upp á þau til að byrja með og notuðu sér vitneskju sína og reynslu sér í hag, einfaldlega til þess að fá betri og hraðari læknisþjónustu. Það hefur lengi verið sagt að mannfólkið sé oft gott í að aðlagast aðstæðum og þetta er eitt dæmi um útsjónarsemi og aðlögunarfærni hinsegin fólks, sem veit hvað það þarf að gera til þess að lifa af og fá sínu framgengt. Huersu marga einstaklinga þarf til að levfa nafna- og kynskrárbrevtingu fyrir trans fólk? Einnig hefur verið gagnrýnt að það þurfi leyfi frá teymi innan Landspítalans til að breyta kyni og nafni í Þjóðskrá, þar sem slík breyting ætti að eiga sér stað strax í upphafi þegar viðkomandi kemur út. Að vera með skilríki sem eru ekki í samræmi við útlit eða kynvitund getur, og hefur, valdið trans fólki vandræðum þegar það nýtir sér þjónustu, ferðast eða þarf að gefa upp kennitölu. Lögin eru því óþarflega bundin gildum kynjakerfisins og trans fólk þarf að sanna kynvitund sína fyrir heilbrigðisstarfsfólki sem þarf hvorki að hafa sérþekkingu á málefnum trans fólks né persónulega reynslu af því að undirgangast læknisfræðilegt ferli af þessu tagi. Slíkt er ekki í takt við nýlegar breytingar á því hvernig talið er að heilbrigðisþjónustu fyrir trans fólk eigi að vera háttað. Transteymi Landspítala hefur vísað öllu slíku á bug og telur að þjónusta þess hafi aldrei verið kynjuð eða óviðeigandi. Síðan lögin tóku gildi árið 2012 hafa sem betur fer orðið miklar breytingar á þeirri þjónustu sem teymi Landspítala veitir trans fólki. Hún er orðin meira í takt við alþjóðareglur og minna bundin við kynjaðan veruleika. Einnig hafa ungmenni undir 18 ára aldri fengið takmarkaðan aðgang að heilbrigðisþjónustu. Það hefur því gengið á ýmsu þegar kemur að heilbrigðisþjónustu fyrir trans fólk og áhugavert verður að sjá hvernig ný lög um kynrænt sjálfræði hafa áhrif á núverandi fyrirkomulag, en fjallað verður betur um þau hér á eftir. María Helga Guðmundsdóttir, fvrruerandi formaður Samtakanna ’78, og Þorbjörg Þorualdsdóttir, núuerandi formaður, ganga í ótt að Alþingishúsinu með transfónann í tilefni þess að lög um kynrœnt sjólfrœði uoru samþykkt ó Alþingi.

x

Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78
https://timarit.is/publication/1494

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.