Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2020, Side 31
AÐ LÍÐA VEL í EIGIiM SKIIMNI.
31
öfgafullu ofbeldisfólki sem vilji kúga sís konur. Ef horft er
ofan í kjöl þeirrar hugmyndafræði sem þessi háværi hópur
ber fyrir sig er auðvelt að koma auga á stórar mótsagnir.
Hugmyndafræðin byggir að mörgu leyti á sömu
gildum og þeim sem voru notuð til að berjast gegn
réttindabaráttu samkynhneigðra og tvíkynhneigðra og
á rætur að rekja til þrúgandi eðlishyggju um líffræðilegt
eðli karla og kvenna. Helstu „femínísku" áróðurshóparnir
eiga sína helstu bandamenn meðal meðal öfgatrúarhópa
og öfga-hægrisins, sem sömuleiðis veitir þeim fjármagn
til að halda uppi sínni starfsemi. Þau eru því í raun að
taka höndum saman við hópa sem hafa beitt sér gegn
kvenréttindum í áraraðir og því er hæpið að að baki liggi
raunverulegar hugmyndir um kvenfrelsi og réttlæti.
Sem betur fer hefur slík hugmyndafræði ekki náð
fótfestu innan kvennahreyfingarinnar hérlendis að
neinu viti. Hinsegin samtök hérlendis hafa átt samstarf
við femínísk samtök og mun það samstarf vonandi
halda áfram, enda er saga slíkra hópa samofin og
mikilvægt að samstaða ríki meðal þeirra og annarra
mannréttindasamtaka.
Lög um kv/nrœnt sjálfrœði
Árið 2019 tóku gildi lög um kynrænt sjálfræði, nr.
80/2019. Frumvarpið á sér langa og flókna sögu en
eftir að þingsályktunartillaga frá þingflokki Pírata um
„þriðja kynið“ rataði til mín og Kittyar Anderson sem
formanna Trans Islands og Intersex Islands stofnuðum
við grasrótarhóp hinsegin aktívista, sem átti að skoða
sérstaklega réttarstöðu trans fólks og intersex fólks. Ur
varð að hópurinn boðaði á fund fulltrúa frá öllum flokkum
sem voru þá á þingi, þar sem við könnuðum áhuga þeirra
á því að smíða frumvarp sem tæki á réttindum trans fólks
og intersex fólks. í kjölfarið varð svo til óformlegur hópur
hinsegin aktívista sem kallaðist „skuggaráðið" en hann
fékk að lokum aðstoð frá Vinstri grænum og aðgang að
ritara flokksins ásamt því að Svandís Svavarsdóttir tók við
málinu. Hægt og rólega myndaðist svo kjarnahópur fólks
sem vann að framgangi frumvarpsins.
Ásamt mér og Kitty sátu í hópnum Auður Magndís
Auðardóttir fyrir hönd Samtakanna ’78 og síðar tók
María Helga Guðmundsdóttir við af henni, Birkir
Stefánsson heimspekinemi, Aagot Vigdís Óskarsdóttir
lögfræðingur, Sigrún Inga Garðarsdóttir kynjafræðingur,
Kristján Sveinsson, ritari Vinstri grænna, Svandís
Svavarsdóttir þingkona og einnig sóttu Alexander Björn
Gunnarsson og Alda Villiljós fundi með okkur til að byrja
með. Frumvarpið var í vinnslu í hátt í fjögur ár en tíð átök
innan þingsins og stjórnarskipti töfðu það töluvert.
Frumvarpið snerist um rétt einstaklinga til að
skilgreina eigið kyn og rétt til líkamlegrar friðhelgi.
Það átti því að tryggja að fólk gæti sótt sér þjónustu
hjá heilbrigðiskerfinu á eigin forsendum og þyrfti
ekki að hljóta neins konar beina greiningu eða sanna
eigin kynvitund fyrir heilbrigðisstarfsfólki. Sömu-
leiðis átti það að tryggja líkamlega friðhelgi og banna
inngrip í kyneinkenni barna en intersex fólk eða fólk
með ódæmigerð kyneinkenni hefur hingað til verið
sent í óþarfa aðgerðir í frumbernsku til þess að breyta
kyneinkennum þeirra. Það var því algjört grund-
vallaratriði að réttur trans og intersex fólks til að hafa
ákvörðunarvald yfir eigin líkama væri tryggður og hvers
kyns læknisfræðileg inngrip væru á þeirra forsendum.
Sömuleiðis var stefnan að tryggja að fólk gæti breytt um
nafn og kyn í Þjóðskrá að eigin frumkvæði og einnig
yrði boðið upp á þriðju skráningu kyns, táknað með
Trans ísland í Gleðigöngunni 2013.
Atriðið uakti mikla athygli og uar af
öðrum toga en flest önnur í göngunni
það árið. Markmiðið uar að uarpa Ijósi
á þá fordóma sem trans fólk býr ennþá
uið í íslensku samfélagi. Ljósmynd eftir
Andreu Dagbjörtu Vatnsdal Pálsdóttur.
lOÖNWM
HRRXT;
A.IIEJ
U:z
'gír'* W- él
KU : .