Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2020, Qupperneq 32

Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2020, Qupperneq 32
32 bókstafnum „X“. Það er í samræmi við önnur lönd sem hafa leyft slíka skráningu og er gert til að koma til móts við kynsegin fólk eða fólk sem vill ekki að kyn þeirra sé skráð sem karlkyn eða kvenkyn á opinberum skilríkjum. Frumvarpið var loks lagt fram á þingi vorið 2019 og naut stuðnings allra flokka, að undanskildum Miðflokknum. Miðflokksmenn stóðu gegn frumvarpinu og töldu að ekki hefði verið rætt nógu mikið um þessi mál hérlendis. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson vitnaði meðal annars í umræðuna í Bretlandi sem gott dæmi um samfélagslega umræðu. Fyrir þau sem þekkja ekki til hefur umræðan um trans fólk í Bretlandi verið mjög fjandsamleg og hatrömm þar sem trans fólk er reglulega borið saman við kynferðisafbrotamenn, barnaníðinga og ofbeldisfólk sem sé ógn við samfélagið. Umræðan þar er því langt frá því að vera til fyrirmyndar og veldur það miklum áhyggjum að Miðflokksmenn hafi vitnað í hana og talið hana málefnalega eða á einhvern hátt uppbyggilega. Sem betur fer urðu þessar spurningar og áhyggjur ekki til þess að neinar breytingar væru gerðar á frumvarpinu, enda hefði slíkt getað verið mikið áhyggju- efni og hættulegt ef réttindi trans fólks og intersex fólks hefðu verið skert á grundvelli hræðsluáróðurs og fordóma. I allsherjar- og menntamálanefnd voru gerðar nokkrar breytingar á frumvarpinu en þar má nefna að aldurstakmark til þess að breyta nafni og kyni í Þjóðskrá var fært frá 15 ára upp í 18 ára og lögbundið samráð við hagsmunasamtök við gerð verklagsreglna á heilbrigðisþjónustu fyrir trans fólk og intersex fólk var tekið úr lögum. Einnig var bann gegn aðgerðum á kyneinkennum barna sett í bráðabirgðaákvæði þar sem kveðið var á um að nefnd ætti að skoða málið sérstaklega og hefði ár til þess. Þetta var gert þrátt fyrir mótmæli allra helstu hagsmunasamtaka og mannréttindasamtaka. Ekki myndaðist algjör sátt innan allsherjar- og menntamálanefndar um þetta atriði en minnihlutinn lagði fram tillögu um að banni gegn inngripum á kyneinkennum barna yrði haldið inni og kosið um það á þessu stigi málsins. í kosningunni var svo minnihlutaálit allsherjar- og menntamálanefndar um að banna strax inngrip í kyn- einkenni barna fellt af ríkisstjórnarflokkunum (Sjálf- stæðisflokkur, Vinstri græn og Framsókn) en stutt af Pírötum, Miðflokknum, Samfylkingunni, Flokki fólksins og Viðreisn. Slíkt vakti vitaskuld vonbrigði meðal hags- munasamtaka þar sem Vinstri græn höfðu haft frum- varpið inni á borði hjá sér frá byrjun og hefðu átt að vita mikilvægi þess að koma þessu ákvæði í gegn sem allra fyrst. Lögin voru svo formlega samþykkt á Alþingi þann 18. júní 2019. Þar sem bann við inngripum í kyneinkenni barna hefur ekki enn orðið að veruleika hefur frumvarpið ekki náð tilætluðum árangri og það gengur ekki nærri jafn langt og lagt var upp með. Það er því von okkar sem sátum í hópnum að niðurstaða nefndarinnar sem sett verður á fót samkvæmt bráðabirgðaákvæði verði að banna eigi þessi inngrip. Þessi mál hafa verið rædd í þaula og við vonumst eftir því að loks verði hlustað á raddir intersex fólks í þessum málum; raddir sem hafa nær aldrei fengið að heyrast í opinberri umræðu. Það er sömuleiðis von okkar að aldurstakmark til að breyta nafni og kyni verði lækkað aftur en einnig verður sett á fót nefnd sem á að skoða það mál sérstaklega. Trans börn eiga skilið að geta breytt nafni og kyni sínu upp á eigin spýtur og en ekki vera bundin leyfi forráða- manna, þar sem forráðamenn geta oft verið á móti þeim breytingum. Það verður því að tryggja að ungmenni hafi skilgreiningarvald yfir eigin nafni og kyni mun fyrr en 18 ára. Island hefur tækifæri til að bæta réttarstöðu trans og intersex fólks hérlendis til muna og taka sér stöðu framarlega á heimsvísu þegar kemur að réttindum hinsegin fólks. Eg vona því heilshugar að frumvarp um kynrænt sjálfræði verði brátt leitt í lög í sinni framsæknustu mynd með tilvonandi breytingum úr nefndarvinnu. Með því mun Alþingi senda skýr skilaboð um að mannréttindi trans og intersex fólks skipti máli á íslandi. Þannig stígum við stórt og tímabært skref í átt til Harpan klœddist litum transfánans í tilefni af minningardegi trans fólks árið 2019 áður en gestir héldu í Ráðhús Reykjavíkur á formlega hátíðardagskrá. 1*11 l-l láiiUI I’ I I I il I m l l / i !"'•'// / /; <n 1111111111 i m 111 n ■ ■ ch 111 1'iVimhw i 1111 m 11 jrnrnw. "///,,,. n’rttfHMsr/r-iitiiiiti ■ .i/i/itiit/i.iiuuí/111 ■ /./, ,,, ■ .......I ...........,,,,'"/ ' 'iXk . 'i'Á ............ ' ■• . " "///// pKililiíiííl Kír;
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78
https://timarit.is/publication/1494

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.