Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2020, Side 36

Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2020, Side 36
36 því fyrir mér hvort að skápasaga mín hefði eitthvað með það að gera að ég væri ekki nógu hamingjusamur í dag og hefði ef til vill aldrei verið það í raun og veru. Eg þorði samt ekki að byrja að grúska í þessum bréfum. Þau voru hluti af andlegu ferðalagi sem ég þurfti að fara í og ég var ekki alveg tilbúinn strax. Huernig uar tilfinningin að byrja að skoða þessi bréf og þessar dagbœkur? Alls konar. Þetta rifjaði upp margar sögur sem ég hafði gleymt, hvort sem ég vildi hafa gleymt þeim eða ekki. Sumt af þessu var mjög erfitt að rifja upp, erfiðar eineltissögur og svo upprifjun á tilfinningunni að tilheyra ekki, sem mér fannst sérstaklega erfitt. En aftur á móti komu líka upp á yfirborðið margar fallegar minningar. Til dæmis stuðningur vina minna og foreldra og hvernig þau stóðu við bakið á mér. Þetta var allur tilfinningaskalinn í senn. Kærleikur, sorg og nostalgía. Huernig uar þessi fortíðar-Bjarni sem birtist okkur óritskoðaður á suiðinu? Hann var mjög leitandi. Ljúfur, kærleiksríkur, afskaplega kurteis og alltaf að reyna að koma út úr skápnum. En það var honum ekki einfalt, því hann vildi ekki særa fólkið í kringum sig. Á einum stað í dagbókunum segir Bjarni að hann vilji að þetta ferli eigi að „særa sem minnst." Það eru svolítið hlaðin orð fyrir ungan mann, að vilja ekki særa neinn með því að segja fólki hver hann er. Sem er alls ekki særandi. En honum fannst það. Og í honum blundaði mikið sjálfshatur líka. Vissir þú að þú hefðir uerið með fordóma gagnuart sjálfum þér? Það kom mér á óvart hvað ég hafðrskrifað mikið í dagbækurnar beint frá hjartanu og í mikilli einlægni. Það eru þarna mjög sársaukafull atvik úr fortíðinni þar sem að ég er að reyna að sætta mig við hver ég er, en undir niðri kraumar mikið óöryggi, efasemdir og fyrirlitning. Það var í raun sorglegt og erfitt að horfa upp á þennan kærleiksríka unga mann vera með svona mikla fordóma gagnvart sjálfum sér, ef ég á að segja alveg eins og er. Heldur þú að þessi reynsla hafi haft áhrif á þig síðar? Já, alveg hiklaust. Hlutirnir gerðust mjög hratt þegar ég kom út þarna á árunum eftir aldamót. Pride varð að árlegum risaviðburði, hver sigurinn vannst á fætur öðrum og manni var kennt að horfa á björtu hliðarnar; allt er gott og frábært, ísland er jákvætt og fordómalaust samfélag og svo framvegis. Þess vegna fór ég að bæla niður allar neikvæðar tilfinningar. Fannst ég ekki hafa rétt á því að hafa þær og fór að skamma sjálfan mig, því allt var bara frábært og allir máttu vera þeir sem þeir voru. Allt í einu vildu allir eignast hommavin og það var stækkun fyrir fólk að þekkja homma. Og ég bara skildi ekki. Mér fannst ég bara vera vanþakklátur fyrir að vera í einhverju veseni með þetta og fór að segja sjálfum mér að vera ekki með þetta rugl: „Æi, hættu þessu Bjarni. Það er ekkert að og það hatar þig enginn.“ Mín karaktereinkenni eru þrautseigja. Að líta á björtu hliðarnar og bara láta sig hafa það og treysta á að þetta lagist. En svo gerðist það ekki. Eg bara gróf þessar óuppgerðu tilfinningar dýpra og dýpra. Af huerju á þessi saga erindi í dag? Er þetta ekki bara enn ein þroskasaga karlmanns? Sagan sem hefur uerið sögð suo oft, oft áður? Eg er búinn að hugsa mikið um þetta. Hvaða máli skiptir þessi saga núna? Er þetta ekki bara enn ein þroskasaga ungs, hvíts karlmanns? En ég hef ákveðnar væntingar til þessa verks, ég vil að það fari dýpra. Mig langar að segja mína sögu til enda í fullri berskjöldun. Þannig gæti þessi berskjaldaða saga verið heilandi. Og vonandi fyrir þau sem tengja að einhverju leyti við þessa sögu líka. Með því að fella niður grímuna og afvopna mig langar mig til að bjóða öðrum inn í þessa sögu. Hleypa fólki nær mér og þessu verki. Eg hef líka hugsað þetta í samhengi við réttindabaráttuna. Hver eru næstu skrefin í baráttu okkar hinsegin fólks, nú þegar flest lagaleg réttindi eru í höfn? Mér líður eins og það þurfi að eiga sér stað einhvers konar heilun, á milli kynslóða. Að alast upp í heimi þar sem maður tilheyrir ekki hópnum er tráma í eðli sínu. Ég held við séum byrjuð að feta þessa leið, mér finnst til dæmis að heimildaþáttaröðin Svona fólk hafi verið hluti af þessu og ég vona að einleikurinn geti orðið það líka. Þetta er beint samtal við fortíðina. Þú ualdir þér harla óuenjulega leið að uerkinu. Þú opnaðir ferlið og hefur boðið til þriggja lestra á uerkinu þar sem þú flytur það, eins og það er statt huerju sinni, fyrir framan áhorfendur. Af huerju ualdir þú þessa leið? Ég hef aldrei skrifað verk áður, svo ég rann blint í sjóinn. Fyrst var ég eini höfundurinn en ég þráði díalóg og þannig kemur Gréta leikstjóri, með alla sína ótrúlega visku, inn í verkið sem meðhöfundur. Ég er fyrst og fremst leikari og það sem ég kann best er að lesa salinn, finna fyrir orkunni í salnum og hvernig hún breytist. Mér fannst ég vinna verkið best í þessari dýnamík milli leikarans og áhorfenda og þegar ég fann fyrir verkinu með áhorfendur fyrir framan mig. Mér finnst við þurfa að gera meira af þessu. Vera óhrædd við að hleypa fólki sem hefur áhuga inn í sköpunarferlið. Það verður ekkert til í tómarúmi því sviðslistir eru hóplist. Huernig breyttist uerkið í gegnum þetta ferli? Einleikurinn er orðinn mun persónulegri. Þetta byrjaði sem nokkurs konar bók, mínar eigin hugleiðingar, en smám saman urðu þetta meira konkret tilvitnanir í dagbækurnar og bréfin. Eftir því sem við lásum

x

Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78
https://timarit.is/publication/1494

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.