Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2020, Page 41
ER ÖLL UMRÆÐA GÓÐ UMRÆÐA?
41
og samskiptamiðlanarratífunni sem varð til kringum
móttökurnar sem [Pence] fékk.“ Sem dæmi megi nefna
að íslensku forsetahjónin hafi sett upp regnbogaarmband,
borgarstjórinn dregið fram reiðhjólið og forsætisráðherra
varpað fram glærukynningu með hinsegin fræðslu.
Hins vegar hafi það verið upplýsingatæknifyrirtæki
sem stal senunni en fyrirtækið Advania flaggaði sex
regnbogafánum fyrir utan höfuðstöðvar sínar sem eru
beint á móti Höfða, þar sem Pence var væntanlegur
á fund. Stéttarfélagið Efling, sem er til húsa stutt frá,
auk fleiri fyrirtækja í Borgartúni flaggaði jafnframt
regnboganum góða. Fréttir af gjörningnum náðu til
erlendra fjölmiðla og samfélagsmiðlar voru þaktir
póstum skreyttum ljósmyndum af regnbogafánum
fyrir utan upplýsingafyrirtækið. „Það er fallegt að
ganga í takt,“ segir Halldór og telur gott að reyna að
hreyfa við fólki í valdastöðum en bendir á að fyrir að
„fagna fjölbreytileikanum" hafi upplýsingafyrirtækið
uppskorið heimsathygli. Hann veltir því jafnframt fyrir
sér hvort fánarnir í Borgartúninu hefðu farið á loft ef
fjárhagslegir hagsmunir fyrirtækjanna hefðu verið í
húfi við heimsókn Mike Pence. Alþjóðlega fréttakerfið
Cision vann samantekt á erlendri umfjöllun um
regnbogafánagjörning Advania við heimsókn Pence.
Niðurstaðan var sú að fréttir og færslur um málið hefðu
náð til allt að 439 milljóna lesenda og um 75 þúsund
deilingum á samfélagsmiðlum. Til þess að ná sambærilegri
dreifingu hefði Advania þurft að verja um 825 þúsund
Bandaríkjadölum, sem samsvarar um 100 milljónum
íslenskra króna, í stafræna markaðssetningu.
Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania, sagði í viðtali
við Fréttablaðið þann 15. janúar 2020 ætlunina ekki hafa
verið að skapa fjölmiðlafár. „Við drógum fánana að húni
og höfðum ekki í hyggju að láta nokkurn vita sérstaklega
af því. Fólk í kringum okkur tók strax eftir þessu og fór að
pósta myndum á samfélagsmiðla," sagði hann. Sennilega
hafa menn þar innanhúss þó getið sér þess til að flöggunin
myndi vekja einhverja athygli eða viðbrögð. Halldór
Armand telur mjög skýrt að fyrirtæki geti ekki haft
sannfæringu og að gjörðir þeirra stýrist fyrst og fremst
af eigin hagsmunum og því sem skilar þeim gróða. Það er
heilmikið til í því og mikilvægt að hafa það í huga. Innan
þessara fyrirtækja starfa eftir sem áður einstaklingar sem
geta haft sannfæringu og tekið afstöðu og stundum notað
stöðu sína þar til að hafa áhrif eða ná til fjölda fólks.
EUERD
Skemmtilegt merki! Mun einhver hluti
ágóðans renna til hinseginbaráttunnar?
Það væri mega töff
Sæll HH því miður tökum við
ekki þátt í styrkatsöfnun fyrir samtökin
78 í ár en þökkum virkilega góða
ábendingu fyrir næsta ár. Við munum
hinsvegar vera með Happy Hour-inn
hjá okkur á sínum stað frá klukkan
16:00 til 18:00 þar sem við bjóðum
ekki aðeins uppá sér verð á húsvínum
og kokteilum heldur einnig 50% afslátt
af öllum kranabjór og Bar Snakki. Til
valið að kíkja á okkur í einn kaldan og
nokkra létta ’rétti.
Þetta er sem sagt hreint út sagt
bleikþvottur (e. pinkwashing). Það
er ekki töff að taka þátt í hinsegin-
dögum, ekki til þess að styðja hinsegin-
baráttuna, heldur til að græða pening...
Kæri ■■H okkur þykir mjög
leiðinlegt að stuðningskveðja okkar til
allra þeirra sem staðið hafa af því góða
og mikla starfi sem unnið hefur verið í
þessum málefnum hér á landi fari svona
fyrir brjóstið á þér. En við þökkum
aftur kærlega fyrir ábendinguna og
vonum að þú njótir hátíðarinar.
Málið er nú kannski frekar að ég sé
þetta sem dulda auglýsingu. Það er
það sem fer fyrir brjóstið á mér. Að
veitingastaður nýti sér réttindabaráttu
minnihlutahóps fyrir mannréttindum í
auglýsingaskyni.
Pallíettuklœddur Uncle Sam?
Það er ekki hægt að ljúka umfjöllun um bleikþvott
á íslandi án þess að minnast á sýnileika bandaríska
sendiráðsins á Hinsegin dögum en nærvera þess hefur sett
svip sinn á Gleðigönguna undanfarin ár. Sendiráðið hefur
verið með atriði í göngunni í nafni bandarískra stjórnvalda
og helgað sér gott pláss í dagskrárritinu. Eftir að Donald
Trump settist að í Hvíta húsinu kom glöggt í ljós hversu
vafasöm þátttaka þjóðríkja getur verið á viðburðum sem
Orðaskipti á samfélagsmiðlum
í kringum Hinsegin daga 2018.