Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2020, Qupperneq 66
66
HAFDÍS ERLA HAFSTEIIMSDÓTTIR
HINSEGIN
Á FLÓTTA
Regnbogakort ILGA Europe(The International Lesbian,
Gay, Bisexual, Trans and Intersex Association) er
einn helsti mœlikuarðinn á réttindi hinsegin fólks í
Evrópu. Samtökin taka saman tölulegar upplýsingar
um lagalega stöðu hinsegin fólks í öllum löndum
Evrópu eftir ákveðnu flokkunarkerfi. Samkvœmt
Regnbogakortinu 2020 er ísland í 14. sœti af 49 þjóðum.
An'ð 2015 tók íslenska ríkið á móti fyrsta
hópnum af hinsegin flóttafólki, það
er fólki sem fékk vernd hér á landi á
grundvelli ofsókna vegna kynhneigðar
eða kynvitundar. Síðan hafa tveir hópar
bœst við, sá síðasti kom haustið 2019.
Auk þess hafa fleiri sóst eftir vernd hér á
landi á eigin vegum en ekki eru til nákvœmar tölur um þann
hóp. Hinsegin flóttafólk glímir oft og tíðum við annars konar
hindranir en hópar sem eru skilgreindir út frá þjóðerni eða
trúarbrögðum. Því er upplifun þess oft öðruvísi en annars
flóttafólks. I þessari grein verður sjónum beint að þeim
veruleika sem blasir við hinsegin flóttafólki við komuna
til nýs lands auk þess sem nokkrir einstaklingar sem hafa
reynslu af ferlinu segja frá málsatvikum. Allar sögurnar
eru birtar með samþykki viðmœlenda en nöfnum þeirra
og upplýsingum um ytri aðstœður hefur verið breytt til að
vernda friðhelgi þeirra.
í gegnum tíðina hafa hinsegin samfélög helst þrifist og
dafnað þar sem margt fólk kemur saman og fólksflæði er
mikið, til dæmis á hafnarsvæðum, í herjum, verbúðum
og stórborgum. Fræðimenn hafa jafnvel haldið því
fram að fólksflutningar frá sveitum í borgir í kjölfar
iðnbyltingarinnar hafi verið helsta forsendan fyrir
myndun hinsegin samfélaga á Vesturlöndum á 20. öld.
En fólksflutningar eiga sér ekki alltaf stað með fúsum og
frjálsum vilja fólksins sem um ræðir. Margir hafa þurft að
yfirgefa heimkynni sín af ótta um eigið öryggi, af ótta við
útskúfun eða ofbeldi eða vegna fullvissu um að geta aldrei
lifað hamingjuríku lífi á heimaslóðum. Slíkir flutningar
hafa oftar en ekki verið frá strjálbýlli svæðum til þeirra
þéttbyggðari, frá sveit í borg, frá jaðrinum að miðjunni.
Þar til nýlega voru íslendingar á meðal þeirra eru lögðu
land undir fót enda samfélagið dreifbýlt og eyjan staðsett
á jaðri Evrópu. Alla 20. öldina leituðu Islendingar til
erlendra stórborga í því skyni að hverfa í fjöldann og
fá tækifæri til að skapa sér einkalíf á eigin forsendum.
Mynd fengin af www.rainbow-europe.org/.