Samtökin '78 - 40 ára afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2020, Side 68
68
gögn sem færa sönnur á kynhneigð eða kynvitund eru
oft af skornum skammti er þetta viðtal oftar en ekki
aðaltækifæri fólks til að fá vernd.
Þekkti ekki orðið hommi
Assim, 25 ára hælisleitandi sem hefur nú fengið stöðu
flóttamanns, minnist þessa viðtals sem svo: „Ég þekkti
ekki orðið hommi fyrr en ég kom til Evrópu. Það er ekki
til á mínu tungumáli. Daginn fyrir viðtalið hitti ég nokkra
stráka sem voru líka hommar og þeir æfðu með mér það
sem ég átti að segja svo að ég yrði tekinn trúanlegur. Ég
hafði aldrei talað um endaþarmsmök áður og muninn á
því að vera aktífur og passífur í kynlífi. Þeir sögðu mér
einnig að segja frá því að ég stundaði munnmök, en það
hef ég aldrei gert, það gera karlmenn ekki við hvorn
annan í þorpinu mínu, það finnst mér ógeðslegt.“
Lawrence (35) hefur stöðu flóttamanns og minnist þess
að hafa verið þráspurður um hvort hann hefði nokkurn
tímann sofið hjá karlmanni. Honum fannst það mjög
undarlegt og velti fyrir sér hvort að nauðganir gætu talist
með en honum var úthlutað kvenkyni við fæðingu og
kemur frá landi þar sem svokallaðar „corrective rapes“
eða nauðganir á lesbíum í leiðréttingarskyni eru algengar.
Hann treysti sér ekki að koma út sem trans maður í
flóttamannaferlinu, enda taldi hann það ógna líkum
hans á því að fá vernd þar sem að hann langaði mikið
til þess að eignast barn samhliða því að ganga í gegnum
kynleiðréttingarferli. „Það hefði enginn trúað mér, ég varð
að velja mér stað og halda mér þar,“ rifjar Lawrence upp
en hann er ennþá kona í augum stjórnvalda og ætlar sér
ekki að hrófla við þeirri skráningu í bráð.
Hér má sjá sundurliðun upplýsinga um ísland á
Regnbogakortinu. Samkuœmt þeim þáttum sem
ILGA mœlir er ísland í 14. sœti af 49 Európuþjóðum
og uppfyllir 54% af kröfum um fullt lagalegt jafnrétti.
Scx yfirflokkar liggja til grunduallar sem sýndir
eru í miðjunni. Rauður merkir jafnrétti og bann uið
mismunun, appelsínugulur stendur fyrir f jölskyldumál
og gulur hatursorðrœðu og hatursglœpi. Grœnn á uið
kynuitund og líkamlega friðhelgi, blár mál-, funda og
félagafrelsi og loks sýnir fjólublár upplýsingar um
alþjóðlega uernd. Þartil árið 2020 mceldist ísland með
0% í f jólubláa flokknum en hœkkar nú um 17% milli ára.
Þar munar um lög um kynrœnt sjálfrœði sem tóku gildi
1. janúar 2020.
Milli steins og sleggju
Oft og tíðum verða þau sem sækja um vernd að reiða
sig á túlkaþjónustu og þessir túlkar koma gjarnan úr því
samfélagi sem þau eru á flótta undan. Því er túlkum oft
ekki treyst og dæmi eru um að þeir rugli saman, vísvitandi
eða óafvitandi, hugtökum á borð við samkynhneigð og
barnaníð. Hér getur menntun hælisleitanda og aðgengi að
vestrænni menningu skipt höfuðmáli. Þau sem tala ensku
og þekkja til vestrænnar menningar eiga oftar en ekki
auðveldara með að sanna mál sitt fyrir yfirvöldum eða
alþjóðastofnunum þar sem að þau þekkja til hins vest-
ræna skilnings á því hvað það felur í sér að vera hinsegin.
Mehmet (32) rifjar þetta upp svo: „Þetta var fáránlegt.
Túlkurinn hataði mig. Sem betur fer skildi ég orðið nógu
mikið í markmálinu til þess að hann gat ekki komist upp
með neitt. Ég leiðrétti hann nokkrum sinnum. Við rifumst
pínu og þá held ég að embættismennirnir hafi farið að
snúast á mitt band. Ég fann líka fyrir velvild í minn garð
þegar ég sýndi fram á tungumálakunnáttu og þau fóru
pínu að snobba fyrir mér, ég tala líka frönsku og þrjú
önnur tungumál og aðalembættismaðurinn sagði „gangi
þér vel með verkfræðina" þegar við kvöddumst. Ég var
samt ein taugahrúga og settist á kaffihús og skalf
eftir viðtalið."
Það er því ákveðin þversögn fólgin í þessari kröfu um
afhjúpun til þess að eiga kost á því að fá vernd. Fræðilega
séð eiga einstaklingar rétt á vernd ef þeir geta fært
óyggjandi sönnur á að þeir tilheyri hópi sem sé ofsóttur.
En það eitt að tilkynna að þeir tilheyri þessum hóp er
áhættusamt skref. Því eru valkostirnir oft heldur slæmir;
annaðhvort að vera í felum með eigin kynhneigð eða
17% 38%
83%
Mynd fengin af www.rainbow-europe.org/.