Fréttablaðið - 29.10.2020, Page 10

Fréttablaðið - 29.10.2020, Page 10
Fáðu nýjustu upplýsingar um uppbyggingu nýrra íbúða í Reykjavík með áherslu á þær framkvæmdir sem eru í gangi og hvað er í framundan í uppbyggingu í borginni. Græna planið verður kynnt og sagt frá því hvernig borgin mun sækja fram með kraftmikilli fjárfestingu með umhverfislega, fjárhagslega og félagslega sjálfbærni að leiðarljósi. Dagskrá: • Græna planið og húsnæðisuppbyggingin Dagur B. Eggertsson borgarstjóri • Staða og horfur á fasteignamarkaði í Reykjavík Þröstur Sigurðsson, Arcur • Ártúnshöfði og Elliðaárvogur: Nýr og grænn borgarhluti í mótun Sigurbjörg Helga Gunnbjörnsdóttir, Arkís • Meiri borg, kröftugur og sjálfbær vöxtur til langrar framtíðar Ólöf Örvarsdóttir og Haraldur Sigurðsson, Umhverfis- og skipulagssviði Kynnir: Björg Magnúsdóttir Streymt á reykjavik.is/ibudir Bein útsending föstudaginn 30. október kl. 9-11 Uppbygging íbúða í borginni og Græna planið BANDARÍKIN Aðeins fimm dagar eru nú í að kjördagur renni upp í Bandaríkjunum þar sem kosið verður um næsta forseta Banda­ ríkjanna, alla fulltrúadeild Banda­ ríkjaþings og 35 sæti af 100 í öld­ ungadeildinni. Baráttan um embætti forseta Bandaríkjanna er nú milli Donalds Trump Bandaríkjaforseta og Joes Biden, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna og forsetafram­ bjóðanda Demókrata. Bandaríska þjóðin kýs þó ekki forseta beint heldur er í gildi kjörmannakerfi í Bandaríkjunum, þar sem kjós­ endur kjósa kjörmenn sem síðan kjósa forseta. Til að vinna forsetakosningarnar þarf forsetaframbjóðandi að ná að minnsta kosti 270 kjörmönnum í heildina. Kannanir benda til að staða Bidens sé sterkari en Trumps, bæði á landsvísu og í svokölluðum barátturíkjum. Flestir skoðanakönnuðir eru sammála um að 13 ríki séu mikil­ vægust í ár, en 20 ríki og þrjú af fjórum sætum í Nebraska eru talin líkleg eða örugg fyrir Repúblikana, alls 125 kjörmenn, á meðan 17 ríki, Washington D.C. og þrjú af fjórum sætum í Maine eru talin líkleg eða örugg fyrir Demókrata, alls 212 kjörmenn. Af ríkjunum sem barist er um hallast sjö ríki og ein sýsla í Nebraska, 78 kjörmenn í heildina, að Demókrötum á meðan eitt ríki, með 38 kjörmenn í heildina, hallast að Repúblikönum. Í fimm ríkjum og einni sýslu í Maine, með 85 kjörmenn í heildina, eru líkurnar jafnar. Flest ríkin sem barist er um í dag eru ríki sem Trump vann árið 2016, en einnig er barist um nokkur ríki sem Clinton vann naumlega. Þrjú stærstu ríkin sem barist er um í kosningunum í ár eru Penn­ sylvanía, Flórída og Texas, en samanlagt er þar um að ræða 87 kjörmenn sem Trump tók árið 2016. Samkvæmt könnunum mælist Biden aðeins sterkari í Pennsyl­ vaníu, Trump mælist aðeins sterkari í Texas, og jafnar líkur eru í Flórída, þar sem rétt rúmlega eitt prósent er á milli fylgi Bidens og Trumps. Ef Trump tapar Flórída eða Penn­ sylvaníu minnka líkur hans á sigri verulega, ef hann tapar Texas er nánast öruggt að Biden sigri. Ef Biden aftur á móti tapar Flórída eða Pennsylvaníu minnka líkurnar á sigri Bidens, en hann gæti enn unnið ef hann nær öðrum ríkjum. Það eru því f leiri leiðir að embætt­ inu fyrir Biden en fyrir Trump. Eins og staðan er í dag hafa yfir 75 milljón manns greitt atkvæði sín til forseta, rúmlega helmingur af heildarkjörsókn árið 2016, en sögulega séð er mikil kjörsókn ekki góðs viti fyrir sitjandi forseta. Engu að síður er ekkert öruggt í kosning­ unum í ár, allt getur gerst og mun aðeins tíminn leiða í ljós hver næsti forseti Bandaríkjanna verður. fanndis@frettabladid.is Tíminn alveg að renna út fyrir Trump Kjördagur í Bandaríkjunum rennur upp eftir fimm daga en samkvæmt könnunum er staða Joes Biden, forsetaframbjóðanda Demókrata, sterkari en Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Færri leiðir að embættinu eru til staðar fyrir Trump en fyrir Biden. Joe Biden, frambjóðandi Demókrata, mælist nú betur í könnunum en Don­ ald Trump forseti, bæði á landsvísu og í barátturíkjum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Meira á frettabladid.is 60 50 40 30 20 10 0 ✿ Fylgi í þremur stærstu barátturíkjunum Flórída Pennsylvanía Texas n Trump n Biden ✿ Áætlaðir kjörmenn n Öruggt eða líklegt (D) n Hallast að (D) n Jafnar líkur n Hallast að (R) n Öruggt eða líklegt (R) 212 78 85 38 125 538 kjörmenn 2 9 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.