Fréttablaðið - 29.10.2020, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 29.10.2020, Blaðsíða 32
SIR ARNAR GAUTI L Í F S T Í L S Þ Á T T U R ALLA FIMMTUDAGA KL. 21:30 Öryggismiðstöðin og Húsasmiðjan bjóða landsmönnum upp á Sir Arnar Gauta LÍFSSTÍL TUR SIR ARNAR GAUTI Lífsstílsfrömuðurinn Arnar Gauti mætir aftur á skjáinn með glænýjan lífsstílsþátt. Í þáttunum heimsækir hann falleg og vel hönnuð íslensk heimili og sýnir áhorfendum fyrir og eftir breytingar. Hann kynnir sér íslenska veitingahúsamenningu, skoðar uppbyggingu nýrra hverfa þar sem nútíma arkitektúr er í fyrirrúmi og fjallar einnig um ýmis lífsstílstengd málefni. Sir Arnar Gauti er á dagskrá Hringbrautar alla fimmtudaga kl. 21:30. Gæludýrin eru svo frábær en fara því miður úr hárum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Þótt gæludýrin séu frábær fylgir þeim hunda- eða katta-hár á gólfinu eða á fötum eigandans. Þetta getur verið mjög pirrandi, sérstaklega þegar fólk klæðist svörtu. Samkvæmt gömlu húsráði er ágætt ráð að sópa yfir mottur og teppi með skrúbbi áður en ryksugan er tekin fram. Með skrúbbinum er hægt að draga hárin fram og síðan eru þau ryk- suguð. Einfalt ráð. Ef þú nennir ekki að vera alltaf með ryksuguna á lofti er gott ráð að nota rykmoppu og fara reglu- lega yfir gólfið. Hún dregur í sig hárin. Þetta er auðveld leið til að halda gólfinu fínu á milli þess sem það er ryksugað og þvegið. Ef þú ert á leið í vinnu og fínu fötin eru loðin eftir heimilisdýrið er vel hægt að nota límrúllu sem þú rennir eftir fötunum. Einnig er gott að setja nokkra blautklúta, eins og notaðir eru við bleyjuskipti í þvottavélina, þegar fötin eru þvegin. Klútarnir draga hárin til sín. Þurrkarar gera það einnig. Hunda- og kattahár á gólfinu Falleg gólf eru heimilisprýði. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Leiðbeiningastöð heimilanna gefur upp alls konar góð ráð um heimilisþrif. Þar má meðal annars finna leiðbeiningar um þrif á gólfum en það er mismunandi eftir gólfefnum hvernig á að bera sig að við þrif. Ryk og önnur óhreinindi þarf að hreinsa burt reglulega, annaðhvort með því að ryksuga, fara yfir með rykmoppu eða þvo. Parkett er mjög vinsælt gólfefni hérlendis, hvort sem um er að ræða plastparkett eða viðarpar- kennt. Olíu eða vaxborið parkett er best að rykmoppa reglulega og nota grænsápu eða þar til gerða parkett sápu sem er feit þegar þvo á gólfið. Olíu- eða vaxborið parkett krefst nokkurs viðhalds til að halda því fallegu og nauðsynlegt er að bera á það nokkuð reglulega. Plastparkett skal varast að bleyta mikið. Ef það er nauðsyn- legt skal nota volgt vatn og þurrka jafnóðum. Annars er best að strjúka bara yfir gólf úr plastpark- etti með þurri moppu eða ryksuga. Þrif á parketti Risastórt teppið er stór þáttur í hönnun innra rýmis stórmosku sol- dánsins Qaboo bin Said í Óman. Það er að sjálfsögðu smekks-atriði hvað telst fallegasta gólf veraldar, en gólfið í bænasalnum í stórmosku sol- dánsins Qaboo bin Said í Múskat, höfuðborg Óman, hlýtur að vera í hópi þeirra glæsilegustu, en það er skreytt með magnaðri gólfmottu. Moskan var reist á 10. áratug síðustu aldar og risastórt teppið er stór þáttur í hönnun innra rýmis moskunnar og þekur gólf bæna- salarins. Teppið samanstendur af 1,7 milljörðum hnúta, það vegur 21 tonn og það tók fjögur ár að fram- leiða það, en í teppinu koma fram fjórar ólíkar hönnunarhefðir. 28 litir í mismunandi litbrigðum voru notaðir til að lita teppið, en flestir voru unnir úr hefðbundnum plöntulitum. Teppið er yfir 60 sinnum 70 metrar og þekur alls 4.343 fer- metra. Það var það stærsta í heimi, en sex árum síðar var moska sjeiksins Zayed í Abu Dhabi full- kláruð og þar er enn stærra teppi. Bæði teppin voru gerð af sama fyrirtæki. Glæsilegasta gólfmottan 8 KYNNINGARBLAÐ 2 9 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U RGÓLFEFNI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.