Fréttablaðið - 29.10.2020, Blaðsíða 50
ÚR VÖRN Í SÓKN
Þegar Borat kom út fyrir f jór-
tán árum þótti hún einstaklega
umdeild. Þótt margir Íslendingar
kynnu ef laust deili á Sacha Baron
Cohen vegna hlutverks hans sem Ali
G, en þættirnir Da Ali D Show voru
sýndir á Ríkissjónvarpinu, þá gilti
ekki það sama um marga af viðmæl-
endum hans í myndinni. Það gerði
andrúmsloftið vissulegar pínlegra.
Kasakar voru ekki par sáttir við
útgáfuna en gengu þó ekki jafn langt
og f lest lönd í Mið-Austurlöndum,
þar sem myndin var einfaldlega
bönnuð. Þáverandi ferðamálaráð-
herra landsins fordæmdi myndina
og komið var í veg fyrir dreifingu
hennar í kvikmyndahús. Það er
annað upp á teningnum í þetta
skiptið og virðist viðhorf Kasaka
mun jákvæðara nú. Ákveðið hefur
verið að snúa vörn í sókn og taka
athyglinni með opnum örmum.
Ferðamálaráð landsins stendur nú
fyrir auglýsingaherferð þar sem
fólk er hvatt til að sækja landið
heim. Slagorð herferðarinnar, sem
sýnir áhugasama túrista skoða stór-
brotið landslag og byggingar, ætti að
vera aðdáendum Borats kunnulegt:
„Kazakhstan. Very Nice!“ – ssþ
Tryggðu þér skemmtilegri vetur á stod2.is
KVIKMYNDIR
Borat Subsequent Moviefilm
Leikstjórn: Jason Woliner
Aðalhlutverk: Sacha Baron Cohen
og Maria Bakalova
Fyrir fjórtán árum sprengdi ham-
hleypan Sacha Baron Cohen allt
sem heitir poppkúltúr með stjörnu-
blaðamanninum Borat Sagdiyev.
Áhorfendur engdust um af hlátri og
drápust næstum úr aulahrolli þegar
kasakski fréttasnápurinn gerði sig
og viðmælendur sína að algjörum
fíf lum og heimurinn þurfti að
umbera ferlegar eftirhermur af
eftirminnilegustu frösum Borat:
„Very nice!“ og „Va va ví va!“.
Undirstaða myndarinnar byggði
aftur á að viðmælendur vissu ekki
að verið væri að gabba þá. Eftir vel-
gengni Borats á heimsvísu virtist
því ómögulegt að framhaldsmynd
um fréttamanninn myndi nokkurn
tímann líta dagsins ljós. Sögusagnir
fóru þó af stað þegar Baron Cohen
hafði sést í fjölda dulargerva víðs
vegar um Bandaríkin, en það var
ekki fyrr en fyrir mánuði að Ama-
zon tilkynnti myndina formlega til
sögunnar. Hvernig í ósköpunum gat
þetta gengið?
Myndin hefst á því að rekja afdrif
Borats í kjölfar fyrri myndarinnar.
Landar hans voru ekki par sáttir
við þá mynd sem þar var máluð
upp af Kasakstan og fyrir vikið
hefur Borat þurft að sæta fang-
elsisvist, þrælavinnu og niður-
lægingu á almannafæri. Hann fær
þó tækifæri á að fá uppreist æru
þegar ráðamenn landsins senda
hann í sérstaka sendiför til Banda-
ríkjanna. Borat á að færa Mic-
hael Pence varaforseta bráðgáfaða
apann Johnny að gjöf í þeirri von að
styrkja samband landanna tveggja
og ef la ímynd Kasakstans á ný.
Allar áætlanir fara þó f ljótlega í
vaskinn og Borat tekur þá upp á að
bjóða Pence dóttur sína Tutar sem
kvonfang í staðinn.
Formúlan hefur lítið breyst á
milli mynda og er í grunninn sú
sama. Borat keyrir um Banda-
ríkin og tekur kostuleg viðtöl við
alls konar fólk. Inni á milli eru svo
leiknar senur sem tengja söguna
saman. Til að komast hjá því að fólk
beri kennsl á sig bregður Borat sér
í dulargervi sem alls konar Banda-
ríkjamenn og er útkoman oft ansi
hlægileg.
Helsta breytingin er þó aðkoma
leikkonunnar Mariu Bakalova sem
fer með hlutverk Tutar. Í fyrstu
spretta upp einhverjar vanga-
veltur um að ný persóna kunni að
draga sviðsljósið frá Borat. Áhyggj-
urnar eru þó f ljótar að hverfa enda
stendur Bakalova sig frábærlega og
persóna Tutar spilar fullkomlega í
takt við Borat.
Þótt atburðarásin sé á margan
hátt keimlík fyrri myndinni er
ádeilan í þetta skipti fókuseraðri.
Viðmælendur í fyrri myndinni
voru þverskurður af Bandaríkja-
mönnum og viðmælendur Borats
komu úr ólíkum áttum. Í þetta
skiptið virðist nánast öllu púðrinu
beint að hægrinu og öfgahægrinu,
og þótt þar sé af nægri vitleysu að
taka verður afraksturinn talsvert
einsleitari og ólíklegt er að grínið
muni eldast jafn vel.
Þrátt fyrir einhverja bresti er
afraksturinn þó sprenghlægilegur
og óvenju hjartnæmur. Upp úr
standa samtal Borats við eftirlif-
endur helfararinnar í bænahúsi og
rosalegt lokaatriði með viðkomu
stjórnmálamannsins Rudys Giuli-
ani. Borat Subsequent Moviefilm er
kannski eilítið bitlausari en forveri
hennar en samt ansi beitt.
Arnar Tómas Valgeirsson
NIÐURSTAÐA: Sprenghlægileg en ögn
bitlausari eftirbátur forverans.
Va va ví va!
Borat fær í þetta skipti liðsauka frá dóttur sinni Tutar. MYND/AMAZON
STELUR SENUNNI
Það er óhætt að segja að búlgarska
leikkonan Maria Bakalova fari
með stjörnuleik í myndinni en
þetta er hennar stærsta hlutverk
til þessa. Hún leikur dóttur Borats,
hina 15 ára gömlu Tutar Sagdiyev.
Hún hefur fengið einróma lof gagn-
rýnenda fyrir leik sinn og hefur
Sacha Baron Cohen nú lýst því
yfir að hann sé nú þegar farinn í
herferð fyrir því að Maria verði
tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir
hlutverkið.
„Við tókum yfir 600 ungar stúlk-
ur í prufur, hvaðanæva. Maria er
svo einstaklega fyndin. Hún er ein
af hugrökkustu leikurum sögunn-
ar. Það yrði skammarlegt fengi hún
ekki tilnefningu til Óskarsverð-
launa,“ sagði Baron Cohen nýverið
í viðtali.
Viðtal sem Maria tók í gervi
fréttakonu við Rudy Giuliani, fyrr-
verandi borgarstjóra New York og
lögfræðing Donalds Trump, hefur
vakið mikla athygli og þykir væg-
ast sagt bagalegt fyrir Guiliani. Í
lok viðtalsins virðist sem Guiliani
fái hana inn á herbergi til sín og
byrjar að fást við buxur sínar á
meðan hann leggst aftur í rúmið.
Stekkur þá Baron Cohen inn í her-
bergið í gervi Borats og lýsir því
yfir að Tutar sé einungis 15 ára, en
Maria Baklova er sjálf 24 ára gömul.
Stuðningsmenn Guilianis halda því
fram að atriðið hafi verið sviðsett
en Sacha Baron Cohen staðhæfði að
svo væri ekki í viðtali Good Morn-
ing America.
En þrátt fyrir þetta og f leiri
umdeild atriði er nokkuð ljóst
að Maria á framtíðina fyrir sér.
Það verður spennandi að sjá hvað
framtíðin ber í skauti sér hjá henni,
hvort sem hún verður tilnefnd til
Óskarsverðlauna fyrir túlkun sína
á Tutar eða ekki. – ssþ
Maria Bakalova, sem er sjálf 24 ára,
leikur hina 15 ára gömlu Tutar.
Kasakar settu sig lengi vel á móti
Borat en hafa nú ákveðið að nýta
útbreiddan frasann sér í hag.
2 9 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R34 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ