Fréttablaðið - 21.11.2020, Qupperneq 2
AKUREYRI „Það eru allir farnir að
keyra börnin sín í skólann og einka-
bílarnir eiga helst að komast að
skólahurðinni en skólabíllinn, sem
ber ábyrgð á börnunum allan dag-
inn, það er einhvern veginn alveg
sama hvar hann á að stoppa. Sund-
laugin er eiginlega síðasta vígið, aðrir
staðir eru komnir í betra horf,“ segir
Gunnar M. Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri SBA Norðurleiðar.
Fyrirtækið sendi skipulagsráði
Akureyrar bréf þar sem kom fram
að aðstaða við sundlaug Akureyrar
væri með öllu óviðunandi enda
væri ekkert stæði fyrir skólabílinn
sem stoppar fyrir utan sundlaugina
á um hálftíma fresti.
Bílstjórar SBA Norðurleiðar
þurfa að hleypa börnunum út
við sundlaugina aftan við bílana
sem lagt er þar í stæði og bíða
eftir næsta hóp. Það getur valdið
mik lu m pir r ing i hjá öðr u m
gestum sundlaugarinnar og hefur
fyrirtækið orðið ítrekað fyrir tjóni
þegar fólk bakkar úr stæðum.
„Það er fólk sem sest inn í bílinn
og tekur kannski ekki eftir því að
rúta sé komin fyrir aftan þau og
setur í bakkgír og því fer sem fer,“
segir Gunnar og bætir við að tjónið
sem verði sé töluvert.
Í bréfi fyrirtækisins til bæjaryfir-
valda bendir Gunnar á að hægt sé
að gera stæði sunnar á bílaplaninu
og verði það málað og merkt þann-
ig að bíllinn geti staðið þar milli
ferða og hindri ekki að sundlaugar-
gestir komist leiðar sinnar.
Gunnar segist vona að bærinn
geri bragarbót á málinu en hann
hefur áður bent á stæðaleysið fyrir
rúturnar. „Ég vona nú að bærinn
fari að gera eitthvað í þessu. Hvort
sem það verður á þessu ári eða
næsta mun koma í ljós. Því verða
þeir að svara. Það er búið að væla
um þetta í mörg ár og ekkert gerist
en ég vona að eitthvað gerist núna.
Það er og hefur verið mismikill
áhugi á þessu máli en það er fyrst
núna sem ég vona að eitthvað ger-
ist,“ segir framkvæmdastjórinn.
benediktboas@frettabladid.is
Óháð niðurstöðunni er
viðeigandi að dómur yfir-
deildar MDE falli á full-
veldisdeginum, 1. desember.
Spyrnt við í Hörpu
Ríkisstjórnin kynnti í gær framhald ýmissa viðspyrnuaðgerða vegna COVID-19 í dag. Kynntar voru ýmsar aðgerðir sem eiga að styðja við fólk
sem hefur annaðhvort misst vinnuna eða er í hlutastarfi, við rekstraraðila og viðkvæma hópa. Hækka á atvinnuleysisbætur og framlengja ýmis
sérstök úrræði stjórnvalda. Nýr viðspyrnustyrkur fyrir rekstraraðila á að tryggja góða viðspyrnu þegar bóluefni kemur. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
Óviðunandi aðstaða
fyrir skólarúturnar
Aðstaða fyrir skólarútur til að koma með börn í sund á Akureyri er með
öllu óviðunandi. Ítrekað verður tjón vegna bíla sem keyra á rúturnar. Fram-
kvæmdastjóri rútufyrirtækisins segir að ekki sé gert ráð fyrir skólarútunum.
Sundlaug Akureyrar
Sundlaug Akureyrar er sann-
kölluð vatnaparadís fyrir alla
fjölskylduna. Miklu var kostað
til en framkvæmdir við laugina
árið 2018 kostuðu um 400
milljónir. Þar er að finna tvær
25 metra útilaugar og 12,5
metra innilaug.
Í boði eru þrjár rennibrautir,
Fossinn, Trektin og Flækjan,
busllaug, þrír heitir útipottar
og einn innipottur, eimbað og
gufubað. Þá er aðgengi fyrir
fatlaða mjög gott en ekkert
bílastæði fyrir skólarútuna.
Bílstjórar SBA Norðurleiðar þurfa að hleypa börnum út úr rútunum aftan
við einkabílana sem lagt er í stæði við sundlaugina. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Ég vona nú að
bærinn fari að gera
eitthvað í þessu.
Gunnar M.
Guðmundsson,
framkvæmda-
stjóri SBA Norður-
leiðar
Nú einnig á netinu – veromoda.is
Jólakjólar
og mjúkir
pakkar
DÓMSMÁL Ekki liggur fyrir með
hvaða hætti farið verður með rúm-
lega þrjú hundruð dóma Lands-
réttar sem dæmdir voru af þeim
fjórum dómurum sem Landsréttar-
málið tekur til, fari svo að yfirdeild
Mannréttindadómstóls Evrópu
(MDE) staðfesti dóm réttarins frá
mars 2019. Dómur verður kveðinn
upp í yfirdeild dómsins 1. desember.
Þótt málaferli vegna skipunar
dómaranna hafi farið strax af stað í
kjölfar skipunarinnar tóku dómar-
arnir fjórir fullan þátt í störfum
dómsins frá skipun þeirra 1. janúar
2018 og þar til dómur MDE féll 13.
mars 2019. Á umræddu tímabili
kváðu dómararnir fjórir upp yfir
500 dóma og úrskurði. Í f lestum til-
vikum er um úrskurði að ræða en
einkamálin sem þeir tóku þátt í að
dæma voru 120.
Sakamálin sem umræddir fjórir
dómarar dæmdu voru 85 talsins
sem er rúmlega helmingur allra
sakamála sem dæmd voru í Lands-
rétti árin 2018 og 2019 en þau voru
159 á umræddu tímabili.
Vegna óvissu um aðfarar- og
fullnustuhæfi allra þessara dóma
má gera ráð fyrir að einhverjir freisti
þess að leita til Hæstaréttar og óski
eftir því að dómum verði vísað aftur
til Landsréttar til nýrrar meðferðar.
Sú leið gæti þó reynst torsótt vegna
áfrýjunarfrests sem þegar er liðinn.
Þá gæti einhver fjöldi beiðna borist
endurupptökunefnd en sakfellt var
í 75 af þeim 85 sakamálum sem um
ræðir og ljóst að þegar er búið að
fullnægja fjölda þeirra dóma. – aá
Hundruð dóma
undir vegna
Landsréttarmáls
Yfirdeild MDE mun kveða upp dóm
í Landsréttarmálinu 1. desember.
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu lýsir eftir Ævari
Annel Valgarðssyni og óskar eftir
upplýsingum um ferð-
ir hans.
S í ð a s t l i ð i n n
sunnudag birti
k a r l m a ð u r
my n d b a n d á
Facebook sem
sýnir Ævar verða
f y r i r l í k a m s á r á s .
Myndband hefur einnig verið birt
í fjölmiðlum sem sýnir sama mann
munda skotvopn að viðmælanda
í síma og hóta honum heimsókn.
Maðurinn var úrskurðaður í tveggja
vikna gæsluvarðhald í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær, en hann var
handtekinn ásamt öðrum manni
í umfangsmiklum aðgerðum lög-
reglu í fyrradag.
Þeir sem geta gefið upp lýsingar
um ferðir Ævars, eða vita hvar hann
er, eru beðnir um að hafa tafar laust
sam band við lög reglu í síma 112. – aá
Lögregla lýsir
eftir Ævari
2 1 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð