Fréttablaðið - 21.11.2020, Blaðsíða 69
Margrét Grímsdóttir, fram-kvæmdastjóri hjúkrunar, segir mjög breiðan aldurs-
hóp koma til dvalar á Heilsu-
stofnun og að hópur dvalargesta
sé sífellt að yngjast. Þangað komi
fólk í endurhæfingu meðal annars
vegna langvinnra verkja, offitu-
og efnaskiptasjúkdóma, streitu,
kulnunar og geðrænna vandamála
eins og kvíða og þunglyndis.
„Það má segja að COVID hafi
umpólað streituhópnum. Fólk sem
var að koma inn vegna mikillar
streitu hefur verið alsælt með að
þurfa að hægja á, en á móti höfum
við séð fólk sem hafði lífið í góðum
takti lenda í vanda,“ segir Margrét.
„Við það að þurfa að vinna heima
hafa komið upp samskiptavanda-
mál við maka eða innan fjölskyld-
unnar, það hefur verið meira álag
við að standa sig vel í starfi á sama
tíma og að sjá um börn og heimili
og laun hafa jafnvel lækkað. Fólk
glímir við svefntruflanir, lifn-
aðarhættir hafa versnað auk þess
að finna fyrir auknum kvíða og
streitu.
Starfsfólkið okkar er duglegt að
afla sér nýrrar þekkingar í endur-
hæfingu og hluti af meðferðinni
núna er til dæmis samkenndar-
miðuð nálgun, sem tengist inn á
núvitund,“ segir Margrét. „Hér er
mjög öflug sjúkraþjálfun og nudd-
meðferðir auk ýmissa annarra
meðferða sem stuðlar að góðum
árangri í endurhæfingunni.
Við mælum árangurinn af
endurhæfingunni með ýmsum
mælitækjum og sjáum að árangur-
inn er mjög góður, bæði andlega og
líkamlega,“ segir Margrét. „Í yfir
95% tilfella er hægt að sjá mælan-
legan jákvæðan árangur.
Hér dvelur fólk allan sólarhring-
inn og margir tala um hvað það
skipti miklu máli að stíga út úr
krefj andi amstri daglegs lífs inn í
aðstæður þar sem þú hefur tæki-
færi til að vinna markvisst með
sjálfan þig í 4-6 vikur,“ segir Mar-
grét. „Það hjálpar til dæmis fólki
sem glímir við streitu gríðarlega
að stíga út úr þeim aðstæðum sem
komu því í kulnun. Fólk nær að
hlaða batteríin og safna orku, sem
er forsenda þess að hægt sé að tak-
ast á við vandamálið. Það er mjög
ánægjulegt að sjá einstaklinga ná
betri tökum á sínum vanda og fara
héðan með aukinn styrk út í lífið.“
Breyting á streituhópnum
COVID hefur gjörbreytt hópnum sem glímir við streitu,
fólk sem var í kulnun fékk hlé og aðrir lentu í vanda. Á
Heilsustofnun fær þetta fólk að einblína á batann.
Margrét Grímsdóttir segir að COVID-ástandið hafi valdið því að fólk sem
áður hafði lífað í góðum takti byrjaði að lenda í vanda með streitu og fólk
sem áður glímdi við streitu hafi fengið langþráð hlé. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Þegar læknir hefur metið sem svo að sjúklingur þurfi á sjúkraþjálfun að halda
þá fær hann tíma hjá okkur. Við
förum yfir sögu hans, fram-
kvæmum skoðun og út frá því er
metið hvers kyns þjálfun hentar
viðkomandi best, að sögn Steinu
Ólafsdóttur yfirsjúkraþjálfara hjá
Heilsustofnun.
„Sjúklingur fær netta yfir-
heyrslu um allt milli himins og
jarðar. Hvað hann hefur verið að
bauka í gengum tíðina, hvernig
hreyfingu hann hefur stundað,
hvers konar meðferð hann hefur
fengið, hvað hefur virkað og slíkt.
Við beitum ýmsum aðferðum
til að komast að hvaða vanda-
mál hrjáir sjúklinginn. Oft eru
spurningalistar lagðir fyrir fólk
til að greina vandamálin betur og
út frá því er meðferð ákvörðuð.“
útskýrir Steina.
„Ef við álítum að við þurfum
að gera einhver próf þá gerum við
það, ef viðkomandi er eitthvað
stirður þá mælum við hreyfiút-
slag. Við mælum getu eins og til
dæmis hversu oft viðkomandi
getur staðið upp og sest niður
eða hversu langt hann kemst á
ákveðnum tíma sem eru dæmi
um starfræn próf. Ef verkir eru
aðalvandamálið þá biðjum við
viðkomandi oft að teikna inn
á sársaukamynd. Viðkomandi
merkir þá inn á skema hvar verkir
eru mestir og gefur þeim tölugildi.
Þá vitum við hvar hann finnur
mest til og meðferðin beinist að
þeim stað.“
Steina segir að meðferð sé alltaf
ákveðin í samráði við sjúklinginn.
„Okkur finnst kannski eitt-
hvert eitt vandamál vera stærra
en annað, en ef sjúklingurinn er
ósammála því og finnst eitthvað
annað mikilvægara, þá er það
málið sem við tökum fyrir. Ef
sjúklingurinn er með í ferlinu þá
gengur allt mun betur.“
Fjölbreytt meðferð
Meðferðin sem er beitt getur verið
fjölbreytt. Steina segir að hún geti
verið fólgin í einhverju sem sjúkra-
þjálfarar gera með höndunum eða
með ýmiss konar tækjum. Eins eru
sértækar æfingar mikið notaðar
sem miðast við að bæta ástandið.
„Við getum notað rafmagn,
juðara, stuttbylgjur, laser og ýmis-
legt annað til að draga úr verkjum.
Einnig erum við með tækjasal
og sundlaug þar sem við látum
fólk gera æfingar. Við hittum fólk
kannski tvisvar, þrisvar í viku
eða jafnvel bara einu sinni í viku
og svo fær það yfirleitt eitthvert
hreyfiprógramm til að fara eftir
þess á milli. Það geta verið ein-
hverjar æfingar eða einfaldlega
að fara út að labba. Við fylgjumst
með árangrinum og breytum um
aðferð ef okkur finnst við þurfa
þess. Þetta er lifandi meðferð og í
sífelldri þróun og endurskoðun,“
útskýrir Steina.
„Þegar kemur að útskrift
könnum við hvernig ástandið er
og berum það saman við upp-
hafið. Sjúklingurinn fær tillögu
um hvernig skal halda áfram eftir
útskrift, mjög gjarnan heima-
æfingar, en stundum ráðleggjum
við áframhaldandi sjúkraþjálfun á
heimaslóðum. Við reynum að beina
fólki í þann farveg sem það kann að
meta, við rekum ekki fólk í laugina
sem hatar sund, eða í ræktina ef
það þolir hana ekki. Við reynum
að finna einhvern grundvöll þar
sem viðkomandi getur notið sín.
Við erum auðvitað ekkert nema
vegvísar hér. Slagorð staðarins er að
bera ábyrgð á eigin heilsu þannig
að við reynum að virkja fólk sem
mest til sjálfshjálpar.“
Reynum að finna farveg þar sem fólk nýtur sín
Sjúkraþjálfun á Heilsustofnun er einstaklingsmiðuð. Ástand sjúklings er metið við komu og aftur
við lok dvalar og áætlun gerð um framhaldið. Meðferð er alltaf ákveðin í samráði við sjúklinginn.
Steina Ólafs-
dóttir, yfir-
sjúkraþjálfari á
Heilsustofnun.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Ólöf Waltersdóttir, deildar-stjóri læknadeildar Heilsu-stofnunar, hefur starfað
þar í 30 ár, þekkir starfsemina
mjög vel og hittir alla dvalargesti.
„Þegar ég byrjaði voru eldri
dvalargestir í meirihluta, en
meðalaldur hefur lækkað veru-
lega á síðustu árum,“ segir Ólöf.
„Samhliða því hafa meðferðirnar
breyst og okkar frábæra fagfólk er
duglegt að sníða þær að þörfum
einstaklinga.
Á öldrunarlínu er boðið upp á
endurhæfingu fyrir fólk sem er 70
ára og eldra, hvort sem það er til
að byggja sig upp eða til að geta
búið lengur heima,“ segir Ólöf.
„Við erum mjög stolt af því að geta
boðið líka upp á endurhæfingu
fyrir fólk sem er ekki á vinnu-
færum aldri og það er hagkvæmt
fyrir samfélagið að eldri borgarar
geti dvalið lengur heima.
Það er stór hluti af bataferlinu
að skipta um umhverfi fyrir svona
endurhæfingu,“ segir Ólöf. „Það
skiptir oft miklu að koma sér út úr
krefjandi heimilisaðstæðum og
dvalargestir tala mikið um fallegu
náttúruna hérna.
Mér finnst greinilegur munur á
fólki fyrir og eftir meðferðina. Ég
hitti fólk við innskrift og útskrift
og sé mikinn bata. Það eru allir
mjög ánægðir hérna og ná miklum
árangri,“ segir Ólöf. „Það tala líka
margir um hvað starfsfólkið hér
er gott, eins og ein stór samheldin
fjölskylda í notalegu umhverfi.
Fólk nærist líka svo mikið
félagslega, sem hefur einnig
jákvæð áhrif á endurhæfinguna.
Hér verða til mjög sterkir vina-
hópar sem halda sambandi lengi
eftir að dvölinni hér lýkur,“ segir
Ólöf.
Í lokin er hér falleg vísa frá dvalar-
gesti:
Hér er góður andi inni
örvast blóð er hlýnar þel.
Íslands þjóðin þarna finni
þrek og móð er dugar vel.
Höf.: K.Á.
Greinilegur munur á fólki
Ólöf Waltersdóttir, deildarstjóri læknadeildar, segir það
mikilvægt að skipta um umhverfi fyrir endurhæfingu.
Ólöf segir að
það geti oft
verið stór hluti
af bataferlinu
að skipta um
umhverfi fyrir
endurhæfingu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Ætti að vera skylda fyrir alla
Jón Rúnar Arilíusson fór í endur-
hæfingu á Heilsustofnun og segir
reynsluna ólýsanlega.
„Það er ólýsanlegur bróður-
kærleikur á þessum einstaka stað.
Stjórnendur hafa náð ótrúlegum
árangri í starfsmannahaldi. Þú
kemur inn og allt starfsfólkið
tekur mjög vel utan um þig í
dvölinni,“ segir Jón.
Það ætti að vera eins og her-
skylda að fara þarna einu sinni á
ári eftir fertugt. Þetta er hrað-
hleðslustöð, andlega og líkam-
lega,“ segir Jón. „Eftir tvær vikur
var ég farinn að finna rosalegan
líkamlegan mun á mér á allri
þessari hreyfingu og mataræðinu
enda er mikill metnaður lagður í
fjölbreyttan og heilsusamlegan
mat.
Það var líka afskaplega gagn-
legt að kynnast jóga og núvitund
til þess að takast á við afleiðingar
af streitu og miklu álagi, það
eru stórmagnaðir hlutir og þú
uppskerð ótrúlega mikið í dvöl á
Heilsustofnun,“ segir Jón. „Þetta
stokkaði spilin upp á nýtt og
breytti öllu fyrir mig.“
Jón Rúnar fór í endurhæfingu á Heilsustofnun og segir að það ætti að
vera skylda að fara þangað einu sinni á ári eftir fertugt. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 2 1 . N ÓV E M B E R 2 0 2 0 HEILSUSTOFNUN NLFÍ