Fréttablaðið - 21.11.2020, Qupperneq 12
Þúsundir Asera búa sig
undir að flytja inn í héraðið
Nagornó-Karabak, sem
Armenar yfirgefa í kjölfar
friðarsamninga.
Í Sauna Spa færðu úrval af þurrgufu-, blautgufu-
og infraklefum ásamt fylgihlutum. Við kappkostum
að veita einstaklingum og fagmönnum sérfræðiráðgjöf
varðandi allt sem snýr að hönnun og smíði saunaklefa.
Veldu gæði!
Sérfræðingar
í sauna!
Fjárfesting í vellíðan
Smiðjuvegi 11 s. 571 3770, pall@sauna.is, sauna.is
Velkomin í sýningarsalinn
að Smiðjuvegi 11
B A N D A R Í K I N E n d u r t a l n i n g u
atkvæða í Georgíufylki lauk í gær
og staðfestu þau úrslit sem allir
helstu fjölmiðlar Bandaríkjanna
höfðu þegar tilkynnt. Að Joe Biden
væri sigurvegari fylkisins og hlyti
alla 16 kjörmennina. Brad Raffens-
berger, innanríkisráðherra Georg-
íu, tilkynnti í kjölfarið að úrslitin
yrðu vottuð.
Donald Trump, fráfarandi for-
seti, heldur áfram baráttu sinni
til að reyna að stöðva staðfestingu
forsetakosninganna. Eftir því sem
málsóknum hans er vísað frá einni
af annarri fjarlægist sá möguleiki
með hverjum deginum. Í gær var
þremur málsóknum í lykilfylkjum
vísað frá vegna ónógra sönnunar-
gagna.
Þar sem dómstólaleiðin virðist
ókleifur múr hefur Trump í vik-
unni beint sjónum sínum að vottun
fylkjanna, sem detta inn ein af ann-
arri. Vottun hefur hingað til aðeins
verið formlegt ferli, en Trump hefur
reynt að hafa áhrif á það og snúa
embættismönnum til að fara gegn
kosningaúrslitunum og senda eigin
kjörmenn til að kjósa forseta.
Á þriðjudag varð uppi fótur og fit
þegar tveir fulltrúar Repúblikana í
Michigan neituðu að votta atkvæði
frá Waynesýslu, það er Detroitborg,
þar sem Biden vann yfirburðasigur.
Hefði það gjörbreytt stöðunni í
Michigan ef stærsta borgin og höf-
uðvígi Demókrata hefði verið svipt
atkvæðum sínum. Fulltrúarnir
drógu synjun sína til baka eftir tvo
klukkutíma eftir hörð viðbrögð.
Var hátterni þeirra talið bæði ólýð-
ræðislegt og uppfullt af kynþátta-
fordómum. Eftir þessa uppákomu
hafa fulltrúarnir tveir fundað með
Trump og hafa reynt að draga stað-
festingu sína til baka.
Af þeim baráttufylkjum sem
Trump er að reyna að snúa, er
Georgía fyrst til að votta úrslitin.
Áður hafa þrettán önnur fylki vott-
að, þar á meðal Flórída, Virginía, og
Massachusetts. Allt til 11. desember
votta fylkin sínar niðurstöður eitt
af öðru og kjörmennirnir kjósa for-
seta þann 14. desember.
Eftir því sem baráttufylkin votta
sín úrslit verður múrinn sífellt
hærri fyrir Trump og teymi hans
af lögfræðingum. Mánudagurinn
næstkomandi, 23. nóvember, er
lykildagsetning því þá votta bæði
Pennsylvanía og Michigan sín
úrslit. Ef þeir kjörmenn eru lagðir
saman við örugga kjörmenn Demó-
krata er Biden þá kominn yfir 270
kjörmanna múrinn. Barátta gegn
vottun í Wisconsin, Arizóna og
Nevada verður því tilgangslaus.
Þó að úrslit kosninganna séu
f lestum ljós nema Trump og hans
dyggasta stuðningsfólki, hefur
stjórnarskiptateymi Joes Biden
ekki fengið það fjármagn og þann
aðgang að upplýsingum sem til þarf
til að stjórnarskiptin gangi smurt
fyrir sig og hin nýja stjórn verði
betur í stakk búin til að takast á við
faraldurinn strax í janúar.
Þetta veltur á stoðþjónustu
Bandaríkjanna, GSA, en Emily
Murphy forstjóri hennar hefur
haft sig hæga, að eigin sögn „þar
til úrslitin verða ljós.“ Vottun í
Georgíu, Michigan og Pennsylv-
aníu gæti fengið hana til að skipta
um skoðun og afhenda fjármagnið
strax á mánudag.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Beitir sér gegn vottun úrslita
Þar sem dómstólaleiðin hefur reynst ókleifur múr fyrir fráfarandi Bandaríkjaforseta, beinir hann kröftum
sínum í að fá embættismenn Repúblikana í fylkjum til að neita að votta úrslitin og senda eigin kjörmenn.
Lykildagar vottunar
20. nóvember - Georgía
23. nóvember - Pennsylvanía,
Michigan
30. nóvember - Arizóna
1. desember - Wisconsin,
Nevada
Trump sést hvergi nema á golfvellinum þessa dagana. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
ASERBAÍSJAN Herlið Asera hefur
nú tekið yfir stóran hluta fjallahér-
aðsins Nagornó-Karabak í kjölfar
friðarsamninganna við Armena. Í
héraðinu sem var áður undir stjórn
Armena hafa þúsundir íbúa af
armensku bergi brotnir ákveðið
að yfirgefa héraðið. Héraðið verður
afhent Aserbaísjan í áföngum fram
að mánaðamótum. Rússneskir
friðargæsluliðar eru á svæðinu.
Á sama tíma og Armenar eru á
leið burt, búa þúsundir Asera sig
undir að flytja inn í héraðið.
Samkvæmt Reuters er talið að
fjögur þúsund manns hafi fallið í
átökunum sem hófust í lok septem-
ber. – ab
Þúsundir íbúa
færa sig um set
Armenskur íbúi pakkar saman
eigum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
2 1 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð