Fréttablaðið - 21.11.2020, Qupperneq 18
Á veturna þurfa
kastarar Blika að
æfa í Kaplakrika sem er
bagalegt.
Áslaug Pálsdóttir, formaður frjáls-
íþróttadeildar Breiðabliks
Okkur sýnist að
þetta komi til með
að kosta Fimleikasam-
bandið tæplega þrjátíu
milljónir.
Sólveig Jónsdóttir, framkvæmda-
stjóri Fimleikasambandsins
ENSKI BOLTINN Enska úrvalsdeildin
í knattspyrnu karla fer af stað á
nýjan leik um helgina eftir lands-
leikjahlé þar sem þó nokkuð var um
að leikmenn annars vegar meiddust
eða greindust af kórónaveirunni í
landsliðsverkefnum sínum.
Tottenham, sem situr í öðru sæti
deildarinnar, fær Manchester City í
heimsókn í kvöld. City, sem samdi
við Pep Guardiola í vikunni, þarf
nauðsynlega á sigri að halda til þess
að halda í við toppliðin.
Leicester City sem trónir á toppi
deildarinnar mætir með blússandi
sjálfstraust inn í toppslag helgar-
innar gegn Liverpool. Lærisveinar
Brendan Rodgers hafa borið sigur úr
býtum í síðustu sex leikjum sínum í
deildinni og Evrópudeildinni.
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri
Liverpool, er líklega ekki í skýjun-
um með nýliðinn landsliðsglugga,
en Joe Gomez meiddist í gluggan-
um og Andy Robertson og Jordan
Henderson og Rhys Williams koma
til baka úr verkefnum með lands-
liðunum tæpir vegna meiðsla. Þá
greindist Mohammed Salah með
kórónaveiruna. – hó
Mæta laskaðir
í toppslaginn
FR JÁL SAR ÍÞRÓT TIR Breiðablik
lagði fram erindi, fyrir hönd frjáls-
íþróttadeildar félagsins, sem dag-
sett er 27. ágúst, á fundi íþróttaráðs
Kópavogs í síðustu viku. Þar var
lagður fram listi yfir nauðsynlegan
æfinga- og keppnisbúnað sem þarf
að endurnýja á Kópavogsvelli eftir
að völlurinn var lagður gervigrasi
vorið 2019.
Þá er farið fram á það við bæinn
að frjálsíþróttadeildinni verði bætt
það tekjutap sem hún varð fyrir, er
deildin varð að gefa frá sér Meist-
aramót FRÍ 2020 síðastliðið sumar.
Íþróttaráðið frestar ákvörðun um
styrk vegna tekjutaps. Starfsmenn
frjálsíþróttadeildar upplýstu síðan
að gert væri ráð fyrir kostnaði við
endurnýjun æfinga- og keppnis-
búnaðar frjálsra íþrótta á Kópa-
vogsvelli í áætlun deildarinnar fyrir
næsta ár.
„Aðstaðan til æfinga batnaði tölu-
vert við framkvæmdirnar sem farið
var í á síðasta ári þar sem sett var
upp kastsvæði, langstökksgryfja
og tartan sem nægir í æfingar á
spretthlaupi, á svæðinu fyrir aftan
stúkuna á Kópavogsvellinum. Þessi
framkvæmd gerir það að verkum að
útiaðstaðan til æfinga er í fínu lagi.
Við eigum svo í góðu samstarfi við
knattspyrnudeildina um æfingar
okkar á hringbrautinni við gervi-
grasvöllinn.
Ég skal hins vegar alveg viður-
kenna að okkur dreymir um eigið
æfingasvæði þar sem við gætum
æft á þeim tíma sem okkur hentar,“
segir Áslaug Pálsdóttir, formaður
frjálsíþróttadeildar Breiðabliks í
samtali við Fréttablaðið.
„Deildinni er svolítið þröngur
stakkur sniðinn hvað inniað-
stöðuna í Fífunni varðar. Þar er til
dæmis ekki kastsvæði, þannig að á
veturna þurfa kastarar Blika að æfa
í Kaplakrika sem er bagalegt. Þá er
ekki nógu gott að útisvæðið sem
við fengum í framkvæmdunum á
síðasta ári fullnægi ekki reglum
sem þarf að uppfylla til þess að
halda mót í meistaraf lokki. Það
vantar ekki mikið upp á, þannig að
það væri mikill munur ef því yrði
kippt í liðinn. Við þurftum að gefa
frá okkur að halda Meistaramótið
síðasta sumar, sem var vissulega
súrt,“ segir Áslaug enn fremur.
„Listinn sem lagður var fyrir
íþróttaráð bæjarins inniheldur svo
lausan búnað sem er orðinn úr sér
genginn. Útbúnaður eins og start-
blokkir, grindur og annað í þeim
dúr er orðið úr sér gengið. Búnað-
urinn er alveg brúklegur en það
má orða það sem svo að ásigkomu-
lagið á honum sé ekki í samræmi við
metnað og gæði þeirra iðkenda sem
þurfa á honum að halda. Við eigum í
góðu samstarfi við bæði bæjaryfir-
völd og aðrar deildir félagsins þann-
ig að þessi mál eru í góðum farvegi,“
segir hún um stöðu mála. – hó
Aðbúnaður ekki í samræmi við metnað og gæðastig iðkenda
Frá framkvæmdum þegar gervigras var lagt í Kópavogi. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
FÓTBOLTI Dagný Brynjarsdóttir,
leikmaður Selfoss, og Sandra María
Jessen, leikmaður Bayern Leverku-
sen, geta ekki leikið með íslenska
kvennalandsliðinu í knattspyrnu í
lokaleikjum liðsins í undankeppni
EM 2022.
Dagný er að glíma við meiðsli en
Sandra María er í sóttkví þar sem
smit hefur komið upp hjá Bayern
Leverkusen. Þetta kemur fram í
tilkynningu frá KSÍ þar sem fram
kemur að allir leikmenn Bayern
Leverkusen haf i verið settir í
sóttkví, en Sandra María hefur ekki
greinst smituð.
Jón Þór Hauksson hefur kallað til
Kristínu Dís Árnadóttur, leikmann
Breiðabliks, og Bryndísi Örnu Níels-
dóttur, sem spilar fyrir Fylki.
Ísland mætir Slóvakíu 26. nóvem-
ber og Ungverjalandi 1. desember,
en báðir leikirnir fara fram ytra.
Fyrir leikina er íslenska liðið í öðru
sæti riðilsins í fínni stöðu í barátt-
unni um farseðil á EM. – hó
Tveir nýliðar
inn í hópinn
FIMLEIKAR „Það var auðvitað ótrú-
lega sorglegt og erfið ákvörðun, að
þurfa að af lýsa viðburðinum. Við
skoðuðum þetta eftir öllum mögu-
legum leiðum fyrir krakkana en
komumst að þessari niðurstöðu.
Það er rúmlega tveggja ára vinna
að baki við að skipuleggja þetta og
töldum við okkur gefa okkur ríf-
legan tíma þegar mótinu var frestað
um eitt ár í mars síðastliðnum en
við töldum ekki rökrétt að halda
mótið að svo stöddu,“ segir Sól-
veig Jónsdóttir, framkvæmdastjóri
Fimleikasambands Íslands, um
ákvörðun sambandsins að af lýsa
EuroGym, evrópskri fimleikahátíð
ungmenna, sem átti að fara fram
hér á landi á næsta ári. Von var á um
5.000 þátttakendum á aldursbilinu
tólf til átján ára, frá tuttugu mis-
munandi löndum ásamt þjálfurum
og foreldrum, og var á dagskrá að
halda rúmlega fjörutíu íþrótta- og
fræðsluviðburði á vegum Fimleika-
sambandsins.
Um er að ræða fimleikahátíð sem
er haldin annað hvert ár og fer næst
fram í Sviss árið 2022. „Fyrstu við-
brögð okkar í byrjun árs voru að
fresta þessu og taka við næsta móti
árið 2022, en þá var búið að úthluta
mótinu til Sviss og undirrita samn-
inga þess efnis. Þá reyndum við að
fresta um ár eftir alla vinnuna sem
lá að baki, en ákváðum svo á dög-
unum að af lýsa þessu. Við erum
búin að læra ýmislegt um þennan
faraldur og á tímum sem ætlast er
til að fólk virði fjarlægðarmörk er
erfitt að taka við 5.000 keppendum
á viðburð þar sem einkennisorðin
eru sameining. Það hefði orðið afar
erfitt að tryggja að allir myndu
virða sóttvarnir.“
Ljóst er að þetta hefði verið einn
stærsti íþróttaviðburður ársins á
Íslandi og með því hefði mátt reikna
með miklum tekjum inn í íslenskt
samfélag.
„Okkar áætlanir sýndu að það
hefði mátt gera ráð fyrir að mótið
hefði fært íslensku samfélagi eitt-
hvað í kringum tvo milljarða með
öllum þátttakendum og aðstand-
endum þeirra, fyrir utan öll f lugin
sem við tókum ekki með inn í
dæmið. Það er á hreinu að þetta er
mikill tekjumissir fyrir okkur og
íslenskt samfélag.“
Aðspurð út í hvaða áhrif aflýsing-
in hefur á fjárhagsstöðu Fimleika-
sambandsins, segir Sólveig að þetta
muni kosta sambandið mikið.
„Okkur sýnist að þetta komi til
með að kosta Fimleikasambandið
tæplega þrjátíu milljónir. Svo
eru auðvitað ótalmargar vinnu-
stundir að baki, en við reynum að
vera jákvæð og horfa á það sem við
lærðum af því að skipuleggja mót
af þessari stærðargráðu.“
Hún vonast til þess að fimleika-
hátíðin geti farið fram á Íslandi
síðar, eftir að hafa lært hvað þarf
til að skipuleggja slíkan viðburð.
„Vonandi getum við haldið
þessa hátíð seinna því þetta er frá-
bær viðburður fyrir krakkana. Í
íþróttum er tölfræðin yfirleitt sú að
tvö prósent iðkenda skari fram úr,
en íþróttahreyfingin gerir of lítið
fyrir hin 98 prósentin. Þau fá ekki
að keppa á alþjóðlegum mótum og
mörg þeirra hafa ekki áhuga á að
taka þátt í keppnum yfir höfuð.
Þetta var því á sinn hátt okkar
leið til þess og sýna að fimleikar
eru fyrir alla, þar sem allir fá að
tilheyra á sínum forsendum. Von-
andi getum við haldið svona við-
burð þegar þennan heimsfaraldur
lægir, því sameining er eitt af ein-
kennismerkjum mótsins.“
Fimleikasambandið fékk tæp-
lega 8,5 milljóna styrk frá ÍSÍ í
aðgerðapakka stjórnvalda fyrr á
þessu ári til að brúa bilið. Að sögn
Sólveigar hefur evrópska fimleika-
sambandið varla burði til að draga
Íslendinga að landi.
„Við fengum góðan styrk frá rík-
isstjórninni í gegnum ÍSÍ í vor, við
áttum nýlega fund með evrópska
fimleikasambandinu um stöðuna
en þau geta ekki aðstoðað okkur,
en við vonumst til þess að geta
sótt styrki í aðgerðapakkann sem
von er á á næstu dögum frá ríkis-
stjórninni.“
Mikill tekjumissir fyrir okkur
og allt íslenska samfélagið
Fimleikasambandið þurfti að aflýsa EuroGym 2021 fyrr í vikunni eftir tveggja árs skipulagsvinnu. Von
var á fimm þúsund keppendum frá tuttugu mismunandi löndum í Evrópu og aðstandendum þeirra.
Gerðu áætlanir Fimleikasambandsins ráð fyrir að mótið myndi koma með tvo milljarða inn til landsins.
Hópurinn sem fór fyrir hönd Íslands á EuroGym 2018 sem fór fram í Belgíu MYND/FIMLEIKASAMBANDIÐ/AÐSEND
Kristinn Páll
Teitsson
kristinnpall@frettabladid.is
2 1 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R18 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT