Fréttablaðið - 21.11.2020, Qupperneq 24
Guðmu ndu r hef u r hlotið þó nokkrar v i ð u r k e n n i n g a r fyrir störf sín og í gær bættist enn ein rósin í hnappagatið, viður-
kenning Barnaheilla sem veitt er
fyrir sérstakt framlag í þágu barna
og mannréttinda þeirra.
Hvernig endar maður í að verja
f lestum dögum ársins í að leita að
týndum börnum?
„Já, það er nú það,“ svarar Guð-
mundur eins og hann sé sjálfur að
leita svarsins. „Sigríður Björk, sem
þá var nýtekin við embætti lög-
reglustjóra í Reykjavík, hringir í
mig og lýsir verkefni sem hún hefði
áhuga á að fara í og hvort ég sé til í
að taka það að mér.“
Verkefnið var að halda utan um
beiðnir um leit að börnum yngri en
18 ára og fylgja þeim eftir.
Guðmundur, sem hafði í fjór-
tán ár verið starfsmaður Ríkislög-
reglustjóra í fjarskiptamiðstöðinni
Skógarhlíð, tók tilboðinu sem
hugsað var til eins árs. Nú eru aftur
á móti komin sex ár frá því að Guð-
mundur færði sig úr þægilegri inni-
vinnu í Skógarhlíð í að vera meira og
minna á vaktinni allan sólarhring-
inn, allan ársins hring, enda einn
í deild týndu barnanna ef svo má
að orði komast þó svo hann heyri
undir kynferðisaf brotadeild lög-
reglunnar.
„Upphaf lega átti ég að búa til
verklag fyrir aðra að vinna eftir en
þar sem ég er ekki með stúdentspróf
og er Framsóknarmaður, þá eignaði
ég mér verkefnið sjálfur,“ segir Guð-
mundur í léttum tón.
Við grínumst með að hann hafi
gert sig ómissandi í starfi en því
gríni fylgir þó nokkur alvara enda
hefur Guðmundur leitað að 330
börnum frá því hann hóf störf
við verkefnið en beiðnirnar verið
umtalsvert f leiri, eða 1.340.
Traustið mikilvægt
Þetta eru því oft sömu börnin sem
leitað er að ítrekað og hefur Guð-
mundur áunnið sér traust meðal
þeirra. Hann leggur mikið upp úr
því trausti og segist til að mynda
strax í upphafi hafa tekið ákvörð-
un um að segja börnunum alltaf
satt, og reyna að semja við þau, það
hafi reynst honum farsæl ákvörðun.
Þau hringja jafnvel í hann að fyrra
bragði og biðja hann að sækja sig
eða vini sína sem þau sjá í vanda.
Á hverju ári er beðið um að leitað
sé að 80 til 100 börnum að sögn
Guðmundar.
„Helmingur þeirra kemur aðeins
einu sinni fyrir á því ári og helming-
ur þeirra er nýr á hverju ári. Fjórð-
ungi þessa fjölda leita ég fjórum
sinnum eða oftar að og í kringum
fimm til tíu prósentum þeirra þarf
ég að leita að í kringum tíu sinnum
yfir árið. Ég hef leitað sama ein-
staklingsins 18-19 sinnum á einu
ári og sá sem ég hef leitað oftast að
hefur náð í kringum 50 skiptum en
á um fjögurra ára tímabili.“
Aðspurður hvort það sé auð-
veldara að leita að þeim sem hann
þekkir segir hann tvær hliðar á því.
„Þau sem eru komin í djúpa
neyslu eru búin að læra á mig og ég á
þau. Þau vita hvernig þau geta dulist
lengur en oftar en ekki fara þessir
einstaklingar að skilja eftir sig
brauðmola eins og Hans og Gréta.
Þá eru þau orðin þreytt og vilja fara
að komast út úr þessu.“
Langstærsta hópnum þurfi hann
þó ekkert sérstaklega að leita að, eitt
SMS frá honum dugi.
„Þetta er Gummi lögga, það er
komin leitarbeiðni á þig. Hvað er
planið?“
Flest fari heim þegar þau fái skila-
boðin og oft sé um sakleysislega til-
raun að ræða.
„Oft eru þetta krakkar sem eru
að sofa hjá í fyrsta skipti og eru að
heiman yfir nótt. Þau eru að kanna
hversu langt þau komist með for-
eldra sína. Þessi börn koma yfirleitt
bara einu sinni inn á borð til mín og
aldrei aftur.
Þetta er rosalega lítill hópur
Stundum er maður að banka upp
á hjá strangheiðarlegu fullorðnu
fólki þar sem barn sem ég er að leita
að hefur gist. Fólkið fölnar þegar
maður mætir eða hringir og hafði
þá ekki kveikt á að barnið hefði ekki
látið vita af sér. Þetta eru þá venju-
legir krakkar sem eru ekki í neyslu.
Um leið og þetta eru börn í neyslu er
fólk meira með varann á sér.“
Guðmundur segir fjölda beiðna í
ár svipaðan og áður.
„En við erum að tala um færri
einstaklinga og fleiri beiðnir. Núna
þegar verið er að herða á samkomu-
takmörkunum ná þau illa að kom-
ast inn einhvers staðar.
En það eru nokkrir ungir krakkar
sem eru að koma snöggt inn og
ítrekað og þá finnst manni kerfið
ekki taka nógu f ljótt á málum.
Það er ekkert eðlilegt að ég sé að
leita mjög oft að krakka á ferm-
ingaraldri. Það er minna um neyslu
finnst mér, sérstaklega á lyfseðils-
skyldu lyfjunum en aukning á þeim
var skelfileg síðustu tvö ár.“
Guðmundur bendir þó á að var-
hugavert sé að túlka tölur í þessum
efnum.
„Í hverjum árgangi eru sirka
fjögur þúsund einstaklingar og
ég hef kannski afskipti af 20 til 30
þeirra. Þetta er rosalega lítill hópur
í heildina, núll komma eitthvað pró-
sent hvers árgangs.“
Notar hitamyndavél til leitar
Sími Guðmundar hringir og ég tek
eftir að hann er með forláta Cater-
pillar-snjallsíma, þegar ég hef orð á
því segist hann nota þennan síma
þar sem hann býr yfir hitamynda-
vél. „Hana nota ég til að leita þeirra
krakka sem reyna að hlaupa og
skjóta sér einhvers staðar inn í skot
eða runna.“
Að meðaltali koma beiðnirnar
meira en annan hvern dag og
stundum geta þær orðið allt að sex á
sólarhring en þá segir hann algengt
að tenging sé á milli þeirra.
Guðmundur segir auðvelt fyrir
krakka að kynnast og tengjast í
gegnum samfélagsmiðla.
„Ég hef stundum heyrt frá for-
eldrum, þegar á að setja barn þeirra
í neyðarvistun á Stuðla, að þau hafi
áhyggjur af því hverjum barnið
þeirra kynnist þar. Ég segi þeim þá
að skoða símana þeirra, þau þekkja
öll hvert annað í gegnum Snapchat,
Instagram og svo framvegis. Sér-
staklega þau sem eiga við einhvern
vanda að stríða.“
G u ð mu ndu r s e g i r v a nd a
barnanna vera þríþættan: Hegð-
Ég hef aldrei logið að þeim
Guðmundur Fylkisson hefur undanfarin sex ár verið á vaktinni við leit að týndum börnum á höfuðborgarsvæðinu.
Hann hefur náð góðum árangri og þakkar það meðal annars því að hafa aldrei logið að börnunum né gabbað þau.
Guðmundur hefur leitað að 330 börnum frá því hann tók við verkefninu en beiðnirnar hafa verið umtalsvert fleiri eða 1.340 . Honum hefur gengið vel að öðlast traust barnanna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ÞAU VITA HVERNIG ÞAU
GETA DULIST LENGUR
EN OFTAR EN EKKI FARA
ÞESSIR EINSTAKLINGAR AÐ
SKILJA EFTIR SIG BRAUÐ-
MOLA EINS OG HANS OG
GRÉTA. ÞÁ ERU ÞAU ORÐIN
ÞREYTT OG VILJA FARA AÐ
KOMAST ÚT ÚR ÞESSU.
Björk
Eiðsdóttir
bjork@frettabladid.is
2 1 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð