Fréttablaðið - 21.11.2020, Page 30
Á ÍSLANDI BER MAÐUR
HLÝJAN HUG TIL HEIMA-
VALLANNA, GKG OG KEILIS.
ÉG Á MARGAR GÓÐAR
MINNINGAR FRÁ FYRSTU
ÁRUNUM Í GOLFI ÞAR.
Að mínu mati er golfíþróttin svo mikil tilfinningaíþrótt að góður hringur og góðir spilafélagar geta gert hvaða völl
sem er í heiminum þann besta,“
segir Snorri Vilhjálmsson, golf
vallahönnuður hjá Olazabal Design,
aðspurður hvað geri golfvelli frá
bæra. Snorri hefur undanfarin
ár unnið á Golf & Land Design í
Austurríki, þar sem unnið var í sam
starfi við Olazabal Design. Snorri er
nú kominn í fullt starf hjá spænsku
goðsögninni Jose María Olazabal
og er einn þriggja Íslendinga sem
vinna við golfvallahönnun svo að
undirritaður þekki til.
„Ætli það megi ekki rekja golf
áhugann aftur til þess þegar ég
byrjaði í golfi á unglingsárunum
hjá GKG. Maður var ekki lengi að
fá golf bakteríuna. Ég fór síðar að
aðstoða á námskeiðum hjá GKG en
átti nú ekki von á því á þeim tíma
að ég myndi vinna við golfíþrótt
ina. Eftir að hafa klárað BSc í tölv
unarfræði fann ég að ég vildi prófa
eitthvað annað og eftir að hafa rætt
við Edwin Roald golfvallahönnuð
fór ég í nám í golfvallaarkitektúr
í Skotlandi. Hluti námsins var að
kynnast mörgum af bestu völlum
heims á Bretlandseyjum.“
Snorri fór eftir námið frá Skot
landi til Englands en stoppaði
stutt. Hann þáði atvinnutilboð frá
Austurríki við golfvallahönnun og
komst þar í kynni við Olazabal.
„Út frá náminu fékk ég starf í Bret
landi hjá golfarkitektinum Howard
Swan, sem var mjög áhugavert og
spennandi. Það opnaði augu manns
fyrir þessum heimi en ég fann að
ég vildi helst komast á meginlandið
og stökk á tækifærið þegar það
bauðst í Austurríki. Eigandi hlutar
í hönnunarskrifstofu Olazabal er
austurrískur og kom á samstarfi
okkar á milli með tækniteikningar.
Það þótti á þeim tíma mjög fram
sækið og tæknivætt,“ segir Snorri og
tekur undir, aðspurður, að þeir hafi
verið að mörgu leyti að ryðja veginn.
„Það má segja að við höfum að
einhverju leyti verið að ryðja veginn
með því að nýta tölvuna til að auð
velda starfið okkar. Við vorum að
prófa okkur áfram með GPS og lófa
tölvur áður en það var jafn algengt
og það er í dag. Í teyminu okkar
var forritari sem aðstoðaði okkur
að gera þessa vinnu auðveldari og
sjálf bærari og þessar skrifstofur
hafa nú unnið saman í rúm tíu ár.
Í fyrra vann hönnunarstofa Olaza
bal samkeppni um endurhönnun á
golfvelli á Spáni og hönnun á nýjum
velli í SádíArabíu sem krafðist fleiri
starfsmanna og var ég þá ráðinn í
fullt starf hjá þeim.“
Undirrituðum leikur forvitni
á hvernig einstaklingur Olazabal
er, enda virðist hann skemmti
legur karakter úr sófanum á Íslandi.
Hann vann tvisvar Mastersmótið
á ferli sínum og varð annar Spán
verjinn til að vinna risamót í golfi.
„Olazabal er náttúrulega goðsögn
í golfinu og það er mikill heiður að
vinna fyrir hann. Hann var frábær
kylfingur sem vann tvo risatitla
og leiddi lið Evrópu í Rydernum.
Við kynntumst fyrst fyrir tíu árum
síðan og hann er mjög jarðbundinn.
Það er gott að vinna með honum.
Hann er ekki í daglegum samskipt
um við okkur arkitektana en hann
tekur alltaf lokaákvarðanirnar.
Við vorum of boðslega glöð og stolt
þegar Olazabal var valinn golfvalla
hönnuður ársins 2020,“ segir Snorri,
en Olazabal minntist meðal annars
á Snorra í þakkarræðu sinni.
Skrifstofa Olazabal hefur verið að
hanna golfvelli í þrjátíu ár og eru 21
golfvöllur víðs vegar um heiminn
eftir spænska kylfinginn.
„Þeir vellir sem skrifstofan hefur
unnið að hafa fengið góðar móttökur
og unnið til verðlauna. Education
City í Katar sem ég vann að tækni
teikningunum á, er strax kominn á
Evrópumótaröðina og fékk völlur
inn gott lof. Núna erum við að vinna
í því að opna velli á Costa Navarino
svæðinu í Grikklandi ásamt því að
vinna í SádiArabíu, Portúgal, Víet
nam og Spáni. Þegar völlurinn er
kominn á framkvæmdastig þarf
reglulega að fara og taka út verkefnið
og sjá til þess að hönnuninni sé fylgt
eftir og aðlaga þar sem þess þarf, því
það er ekki hægt að undirbúa allt á
skrifstofunni. “
Aðspurður átti Snorri erfitt með
að svara hversu langur tími færi í
að teikna upp eins og einn golfvöll.
„Fyrsta skrefið er að skoða hvern
ig völlurinn passar inn í landið,
sem getur tekið langan tíma. Það er
erfitt að segja hversu margir koma
að hönnuninni og hvað þetta tekur
langan tíma. Það fer eftir kröfum
viðskiptavinarins og aðstæðum.“
Hann segir að mörgu að huga
þegar kemur að því að hanna golf
völl, en að því fylgi töluverð skrif
finnska.
„ Hön nu n i n sjá l f er a l lt a f
skemmti leg, að koma vellinum fyrir
og teikna hann. Það þarf að huga að
mörgu en það skiptir öllu að völlur
inn falli vel að landslaginu sem er
til staðar. Maður reynir alltaf að
nýta landslagið sem til er og reyna
að bæta upp það sem hægt er þann
ig að hann falli vel að umhverfinu.
Svo koma byggingaframkvæmdir,
vegahönnun og stígakerfi. Stundum
breytist það hvaða land er hægt að
nota, í miðju verkefni. Næsta skref
er hönnunin sjálf þar sem farið er
í form og lögun á golf brautunum,
við reynum að móta völlinn og
teikna allar hæðarlínur. Þá þarf
að huga að grastegundum, hvaðan
vatnið kemur og hvert það fer og þá
blandast vökvunarkerfið og drena
kerfið inn í hönnunina. Það þarf svo
að gera útboðsgögn og gera tækni
teikningar. Það getur verið töluvert
af teikningum sem þarf að undirbúa
fyrir hvert verkefni og þessu fylgir
auðvitað líka mikil skriffinnska,
símtöl og fundir.“
Eitt af verkefnum Snorra var að
gera tækniteikningar fyrir golfvöll
í Katar. Aðspurður tók hann undir
að það væri sérstakt að hanna golf
völl á slóðum eins og Katar, þar sem
fyrir var að mestu leyti sandur.
„Það er svo hin hliðin á þessu
starfi, það er sérstakt að hanna
golfvöll í nokkurs konar eyðimörk.
Í Evrópu hefur maður oft lands
lagið en þarna var maður svolítið
að hanna landslagið. Markmiðið
var að reyna að hafa það eins nátt
úrulegt og hægt var og á sama tíma
að gera völlinn eins sjálf bæran og
hægt er. Það var ákveðið að nota
endurvinnanlegt vatn frá byggðinni
til að vökva vellina. Það var ekkert
til sparað við að byggja völlinn en
samt er hann hugsaður sem völlur
fyrir almenning þar í landi með
áherslu á kvenna og unglingastarf,“
segir Snorri og segir að meiri áhersla
sé lögð á sjálf bærni undanfarin ár.
„Kröfurnar í golfvallahönnun
hafa aðeins verið að breytast.
Vatnstorfærum fer fækkandi vegna
þurrka. Það er verið að minnka
vökvasvæðin á völlunum, sérstak
lega í Evrópu, og gera vellina um leið
vistvænni og sjálf bærari.“
Aðspurður hvar væri að finna
bestu velli heims leitaði Snorri til
Bretlandseyja. „Strandvellirnir í
Bretlandi og Írlandi standa upp
úr. Ég hef tvisvar fengið að spila St.
Andrews sem er alveg magnaður.
Svo eru þetta vellir eins og Royal
Dornoch í Bretlandi og Ballybunion
og Royal County Dawn í Írlandi.
Maður gæti spilað þá á hverjum
degi.“
Þegar kemur að íslenskum völl
um er Snorri heimakær. „Á Íslandi
ber maður hlýjan hug til heimavall
anna, GKG og Keilis. Ég á margar
góðar minningar frá fyrstu árunum
og unglingsárunum þar. Maður spil
aði golf út í eitt og oft þurfti mamma
að koma með mat út á völl. Þessir
tveir verða alltaf í uppáhaldi.“
Þurfa að falla vel að landslaginu
Snorri Vilhjálmsson vinnur að hönnun golfvalla á framandi slóðum fyrir golfvallahönnunarskrifstofu spænsku
goðsagnarinnar Jose Maria Olazabal. Að mati Snorra skiptir öllu máli að vellir fái að njóta sín í góðu umhverfi.
Hér er Snorri að skoða landslagið fyrir völl í Portúgal sem skrifstofan er að hanna þessa dagana. MYND/AÐSEND
Snorri ásamt Olazabal, sem hann segir ofboðslega
almennilegan einstakling og einnig góðan yfirmann.
Education City í Katar vakti mikla lukku á fyrsta mótinu í Evróputúrnum sem fór fram á vellinum. MYND/AÐSEND
Kristinn Páll
Teitsson
kristinnpall@frettabladid.is
2 1 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð