Fréttablaðið - 21.11.2020, Page 39

Fréttablaðið - 21.11.2020, Page 39
Umsóknarfrestur er til og með 1. desember 2020. Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is. Nánari upplýsingar um störfin veitir Inga S. Arnardóttir, inga@hagvangur.is Þróunarstjóri leiðir rannsóknir og þróun og stýrir stefnumótun í allri rannsókna- og þróunarstarfsemi fyrirtækisins. Sérstakur fókus er á tölvusjón og gervigreindarlausnir og gerum við ráð fyrir aukningu í þessari starfsemi og fjölgun starfsmanna. Þróunarstjóri mun einnig samræma starfsemi og vinna náið með þróunardeild móðurfyrirtækisins. ÞRÓUNARSTJÓRI Helstu verkefni: • Lykilmaður í forystuhóp Vaka, ábyrgur fyrir allri þróunarstarfsemi fyrirtækisins • Forysta, leiðsögn og yfirstjórn þróunarteymisins • Ábyrgð á ákvörðunum þróunardeildar og endanlegum útfærslum lausna • Ábyrgð á og stjórnun verkferla • Ábyrgð á gerð fjárhagsáætlana þróunardeildar og eftirfylgni þeirra • Ábyrgð á flutningi frumgerða úr þróunarferli í framleiðslu • Ábyrgð á stuðningi og eftirfylgni með öllum vörum • Ábyrgð á skrásetningum, vottunum og einkaleyfum Hæfniskröfur: • Meistaragráða í verkfræði eða álíka greinum • Reyndur þróunarstjóri með sterkan tæknilegan bakgrunn • Mikil reynsla af stjórnun þróunarverkefna • Reynsla og þekking á uppbyggingu þróunarhópa • Góð þekking á tækjum verkefnastjórnunar • Reynsla af stjórnun verkefna í tölvusjón, gervigreind og skýjalausnum • Þekking á þörfum fiskeldisfyrirtækja er stór kostur • Góð tungumálakunnátta nauðsynleg Vaki fiskeldiskerfi var stofnað árið 1986 og er leiðandi fyrirtæki í hönnun og þróun á hátæknibúnaði fyrir fiskeldi um allan heim. Fiskiteljarar byggðir á tölvusjón telja fisk á öllum stigum í eldinu; í seiðastöðvum, í brunnbátum og við aflúsun. Annað sérsvið Vaka er búnaður til að stærðarmæla fisk í sjókvíum og gefur hann nákvæmar upplýsingar um meðalþyngd, stærðardreifingu og vöxt fisksins í kvíunum. Dæling og flokkun á fiski, svo og loftun í sjókvíum, eftirlit og stýringar ýmiskonar er einnig stór hluti af vörulínu Vaka. Dótturfélög í Noregi, Chile og Skotlandi, ásamt þjónustu- og umboðsaðilum víða um heim, veita viðskiptavinum ráðgjöf, þjónustu og þjálfun. Árið 2019 keypti MSD Animal Health allt hlutafé í Vaka og nú sem hluti af MSD eru uppi spennandi áform um stækkun og eflingu fyrirtækisins. Aukin áhersla verður lögð á vöruþróun og þjónustu í nánu samstarfi við viðskiptavini og munu nýjar lausnir knýja framþróun fiskeldis um allan heim. Frekari upplýsingar á www.vaki.is Verkfræðingurinn er sérfræðingur í tölvusjón og tekur þátt í þróun á tæknibúnaði sem byggir á tölvusjón og gervigreind. VERKFRÆÐINGUR Helstu verkefni: • Þróun á tæknibúnaði sem m.a. byggir á tölvusjón og gervigreind • Úrvinnsla gagna frá mælitækjum • Forritun og prófanir á hugbúnaði • Þjálfun gervigreindarlíkana • Þátttaka í gerð notkunarleiðbeininga • Samskipti við umboðsmenn, tæknimenn, þjónustuaðila og notendur • Þátttaka í þróunarverkefnum almennt Hæfniskröfur: • Meistaragráða í verkfræði eða álíka greinum • Reynsla af hönnun á vélbúnaði og/eða hugbúnaði • Reynsla úr þróunar- eða hönnunarteymum • Þekking á myndgreiningu, myndvinnslu og gervigreind • Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður • Góð tungumálakunnátta Hugbúnaðarverkfræðingur tekur þátt í þróun á gagnagrunns- og skýjalausnum Vaka sem halda utan um mælingar og skýrslur viðskiptavina víða um heim. HUGBÚNAÐARVERKFRÆÐINGUR Helstu verkefni: • Þróun á gagnagrunns- og veflausnum (skýjalausnum) • Úrvinnsla og framsetning gagna frá mælitækjum • Forritun og prófanir á hugbúnaði • Þátttaka í þróunarverkefnum • Þátttaka í gerð notkunarleiðbeininga • Samskipti við tæknimenn, þjónustuaðila og notendur • Þjálfun þjónustuaðila Hæfniskröfur: • Meistaragráða í verkfræði, tölvunarfræði eða sambærilegum greinum • Reynsla af hönnun og hugbúnaðarþróun • Þekking á gagnagrunnum, þróunartólum og skýjalausnum (AWS og/eða AZURE) • Þekking á netöryggismálum • Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður • Góð tungumálakunnátta Þjónustufulltrúi er í beinum samskiptum við viðskiptavini og leysir og/eða miðlar málum til þess að þau fái lausn á sem skilvirkastan hátt. Þjónustufulltrúi er í miklum samskiptum við allar deildir innan Vaka við úrvinnslu mála og mun öðlast víðtæka þekkingu á hinum ýmsu vörum Vaka. ÞJÓNUSTUFULLTRÚI Helstu verkefni: • Eftirfylgni með þjónustusamningum • Skoðun og eftirlit með tækjum í gegnum fjartengibúnað • Uppfærsla á hugbúnaði, innleiðing nýrra lausna fyrir viðskiptavini • Eftirfylgni með nýjum búnaði með það að markmiði að fyrsta upplifun viðskiptavinar sé sem best • Samskipti við viðskiptavini á heimsvísu í gegnum síma og netpóst • Ráðgjöf og upplýsingagjöf • Skráning á vandamálum og úrlausnum inn í gagnagrunn Hæfniskröfur: • Rafeindavirkjun eða sambærileg menntun • Góð enskukunnátta, þekking á norsku er kostur • Hæfni í bilanagreiningu á tölvum og öðrum tæknibúnaði • Þekking á MS Office • Þjónustulund, drifkraftur og metnaður • Frumkvæði, sjálfstæði og góðir samskiptahæfileikar VAKI VEX – VILT ÞÚ VERA MEÐ?
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.