Fréttablaðið - 21.11.2020, Side 41

Fréttablaðið - 21.11.2020, Side 41
Hefur þú brennandi áhuga á uppbyggingu íslensks samfélags? Umsóknarfrestur er til og með 7. desember 2020. Ítarlegri upplýsingar um störfin ásamt menntunar- og hæfniskröfum er að finna á www.intellecta.is. Með umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjenda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, af öllum kynjum og aldri, eru hvattir til að sækja um störfin. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni. Vegna vaxandi verkefna leitar Framkvæmdasýsla ríkisins að öflugum liðsmönnum til að taka þátt í fjölbreyttum og krefjandi verkefnum við undirbúning, uppbyggingu og endurnýjun starfsaðstöðu ríkisaðila. Verkefnastjóri - umhverfismál • Miðlun þekkingar og reynslu FSR á sviði sjálfbærrar þróunar við skipulag, hönnun, byggingu, rekstur og viðhald mannvirkja, innan stofnunar sem utan • Umsjón og eftirfylgni með umhverfisvottunarkerfum og viðmiðum FSR • Rýni á framsetningu umhverfisáherslna í hönnunargögnum • Samskipti við og rýni gagna frá ráðgjafateymum og verktökum • Þátttaka í skilgreiningu viðmiða fyrir vistvænar áherslur í mannvirkjagerð og þróun á umhverfisvídd FSR • Umsjón með innra umhverfisstarfi FSR (Græn skref, loftslagsstefna o.fl.) Sérfræðingur í viðskiptagreind (BI) • Uppbygging, hönnun og þróun gagnagrunna, vöruhúss gagna og gagnavinnslu • Viðhald og rekstur gagnagrunna, vöruhúss gagna og gagnavinnslu • Þróun viðskiptagreindar samhliða þróun á gagnavinnslum og vöruhúsi gagna • Framsetning upplýsinga í skýrslum og á mælaborði • Greining og hönnun gagna, gagnamarkaða og teninga • Innleiðing nýrra stafrænna lausna Verkefnastjóri - verkhönnun • Verkefnastjórnun á stigi verkhönnunar og við undirbúning framkvæmda • Umsjón með og rýni útboðsgagna og tæknilýsinga • Gerð verk-, kostnaðar- og tímaáætlana • Rýni útboðsgagna og umsagnir vegna áætlunargerðar • Þátttaka í gerð hönnunar- og verksamninga • Ráðgjöf til ráðuneyta og stofnana um húsnæðismál og verklegar framkvæmdir • Þátttaka í frumkvæðisverkefnum s.s. innleiðingu á notkun verkefnavefja, upplýsingalíkana mannvirkja og umhverfisvottunarkerfa í byggingariðnaði á Íslandi Verkefnastjóri - verklegar framkvæmdir • Umsjón og verkefnastjórnun verkefna á stigi framkvæmda • Hlutverk verkkaupa gagnvart verktökum, byggingarstjóra og eftirliti • Rýni hönnunargagna og kostnaðaráætlana á hönnunarstigi • Rýni útboðsgagna og gerð umsagna um áætlunargerð • Þátttaka í gerð verksamninga og umsjón með þeim • Ráðgjöf til ráðuneyta og stofnana um húsnæðismál og verklegar framkvæmdir • Þátttaka í frumkvæðisverkefnum s.s. innleiðingu á notkun verkefnavefja, upplýsingalíkana mannvirkja og umhverfisvottunarkerfa í byggingariðnaði á Íslandi Helstu verkefni: Helstu verkefni: Helstu verkefni: Helstu verkefni: Framkvæmdasýsla ríkisins (FSR) er leiðandi afl á sviði uppbyggingar og endurnýjunar starfsaðstöðu ríkisaðila. Markmið okkar er að efla verklag, auka skilvirkni, hagkvæmni og gæði við framkvæmdir og húsnæðisöflun ríkisins. Við störfum í virku samstarfi við Ríkiseignir, ráðuneyti og stofnanir ríkisins og leitum markvisst leiða til að efla aðstöðu hins opinbera og stuðla að ábyrgri uppbyggingu samfélaginu til heilla. FSR er í fararbroddi við að innleiða vistvænar vinnuaðferðir og upplýsingalíkön mannvirkja (BIM) í byggingariðnaði á Íslandi. Framkvæmdasýslan starfar í krefjandi umhverfi og er hæft starfsfólk grunnstoð hennar. Við leggjum áherslu á að starfsfólk sýni frumkvæði, fagmennsku og þjónustulund, njóti sín í starfi og hafi möguleika á að auka þekkingu sína og reynslu með markvissum hætti. Meðal verkefna í vinnslu eru hjúkrunarheimili víða um landið, húsnæði viðbragðsaðila á höfuðborgarsvæðinu, Hús íslenskunnar, skrifstofubygging Alþingis, uppbygging gestastofa og innviða á friðlýstum svæðum, þróun stjórnarráðsreits í miðborg Reykjavíkur og uppbygging ofanflóðavarna. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Nánari upplýsingar má finna á: www.fsr.is Starfið fellur undir svið fjárfestingaáætlana og greininga og felur í sér þátttöku í uppbyggingu stafrænna innviða fyrir eignastýringu og verkefnastjórnun eignamála ríkisins. Starfið felur í sér þátttöku í framþróum umhverfisáherslna í íslenskri mannvirkjagerð og verður starfsmaður hluti af umhverfisteymi FSR. Starfið fellur undir svið verkhönnunar og framkvæmda og felur í sér tækifæri til að taka þátt í framþróun aðferða og viðmiða í hönnun og undirbúningi framkvæmda á vegum ríkisaðila. Starfið fellur undir svið verkhönnunar og framkvæmda og felur í sér tækifæri til að taka þátt í framþróun aðferða og viðmiða í framkvæmdum á vegum ríkisaðila.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.