Fréttablaðið - 21.11.2020, Side 42
Rafvirkjameistari
Smith & Norland vill ráða yfirmann til starfa í
þjónustudeild fyrirtækisins.
Starfið felur í sér viðgerðir og þjónustu á heimilistækjum, kælitækjum og öðrum rafbúnaði, innkaup og afgreiðslu
varahluta, símsvörun og umsjón með þjónustuverkstæði okkar.
Leitað er að röskum og sjálfstæðum einstaklingi, rafvirkja með meistararéttindi, sem vill takast á við áhugavert
starf og hefur mikinn áhuga á þjónustu og mannlegum samskiptum í vaxandi umsvifum.
Um er að ræða gott framtíðarstarf hjá traustu og framsæknu fyrirtæki á rafmagnssviði.
Áhugasamir sendi umsókn á halldorh@sminor.is eða skili henni á skrifstofu fyrirtækisins með upplýsingum um
menntun og fyrri störf fyrir 27. nóvember.
Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu okkar, sminor.is (undir flipanum Fyrirtækið).
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Hlutverk Póst- og fjarskiptastofnunar er að
stuðla að netöryggi ásamt hagkvæmri, öruggri
og aðgengilegri fjarskiptaþjónustu og efla
virka samkeppni á markaði. Gert er ráð fyrir að
starfsemi vegna netöryggis meira en tvöfaldist
á 3 árum og er fjármögnuð í fjármálaáætlun.
PFS starfar í síbreytilegu alþjóðlegu umhverfi
og hvílir starfsemin annars vegar á alþjóðlegri
þróun í fjarskiptum, upplýsingatækni og
netöryggi og hins vegar á lagagrundvelli EES
svæðisins. Flestir starfsmenn PFS taka þátt í
alþjóðlegum verkefnum.
Hjá PFS starfa nú um 30 manns, aðallega
sérfræðingar við úrlausn verkefna á sviði
netöryggis, tæknimála, viðskipta og laga sem
tengjast hlutverki stofnunarinnar. Sjá einnig á
www.pfs.is.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um
færni viðkomandi til að gegna starfinu.
Umsjón með ráðningarferlinu hafa Hilmar
Garðar Hjaltason (hilmar@vinnvinn.is) og
Jensína Kristín Böðvarsdóttir
(jensina@vinnvinn.is) hjá Vinnvinn.
Forstöðumaður
- Netöryggissveitin CERT-IS
Netöryggissveitin CERT-IS er sjálfstæð eining innan Póst- og fjarskiptastofnunar og hefur
það hlutverk að greina netógnir, viðhafa ástandsvitund, upplýsa um netógnir og meðhöndla
og samræma viðbrögð við netatvikum í netumdæmi Íslands. Starfsemin fer fram á grundvelli
laga um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða (NIS-lög), fjarskiptalaga og laga um
Póst-og fjarskiptastofnun. Sérstakt netumdæmi netöryggissveitarinnar nær til bankastarfsemi
og innviða fjármálamarkaða, samgangna, orku-, hita- og vatnsveitna, heilbrigðisþjónustu,
Stjórnarráðsins, auk fjarskipta, stafrænna grunnvirkja og stafrænnar þjónustu. Þá er
netöryggissveitin landbundinn tengiliður í alþjóðasamstafi CERT-teyma.
Starfssvið
• Leiða áframhaldandi uppbyggingu netöryggissveitarinnar CERT-IS í samstarfi við
hóp sérfræðinga stofnunarinnar og hagaðila.
• Umsjón og ábyrgð á starfsemi netöryggissveitar CERT-IS.
• Samskipti við hagaðila, fjölmiðla, þjónustuhóp netöryggissveitarinnar og stjórnvöld
vegna starfsemi sveitarinnar.
• Þátttaka í alþjóðlegu starfi CERT-teyma.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Hæfni til að vinna í hópi og leiða samvinnu og breytingar þar sem sjónarmið lögfræði
og tækni mynda saman lausn.
• Almenn þekking á netöryggismálum ásamt uppbyggingu og virkni netkerfa.
• Háskólanám sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun er kostur.
• Drifkraftur, frumkvæði, jákvæðni og metnaður til að ná árangri.
• Góð samskiptahæfni, bæði í rituðu og mæltu máli á íslensku og ensku.
• Stjórnunarreynsla er kostur.
• Hreint sakavottorð og skal standast öryggisvottun á grundvelli varnamálalaga.
Í boði eru samkeppnishæf kjör í síbreytilegu og spennandi umhverfi, þar sem gerðar eru
miklar fagkröfur.
Umsóknarfrestur er til og með 30. nóvember 2020.
Umsóknir óskast fylltar út á www.vinnvinn.is.
PFS hvetur einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um starfið.
Umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Ánægðir viðskiptavinir
eru okkar besta auglýsing
Sérfræðingar í
ráðningum
lind@fastradningar.is
mjoll@fastradningar.is
FAST
Ráðningar
www.fastradningar.is