Fréttablaðið - 21.11.2020, Qupperneq 72
Jóhanna María
Einarsdóttir
johannamaria@frettabladid.is
Þessi tónlistardrottning Íslands er 55 ára í dag. Björk hóf tónlistarferil sinn aðeins
12 ára gömul árið 1977 þegar út
kom plata þar sem hún söng meðal
annars þekkt íslensk barnalög.
Snemma á ferli sínum var hún í
nokkrum pönk- og djass-fusion
hljómsveitum. Á meðal hljóm-
sveita má nefna Jam ‘80, Exodus og
Draumsýn og Tappa tíkarrass. Árið
1983 stofnaði hún ásamt fimm
öðrum hljómsveitina Kukl, sem
síðan þróaðist út í alternative rokk-
hljómsveitina Sykurmolana. Með
þeirri hljómsveit hlaut Björk fyrst
heimsfrægð. En í tilefni dagsins má
geta þess að singúllinn Birthday
sem kom út með hljómsveitinni
árið 1987 var ofarlega á hlustunar-
listum á breskum og bandarískum
indie útvarpsstöðvum og voru
gagnrýnendur afar hrifnir af lag-
inu. Íslenska útgáfan Ammæli kom
út árið áður og fékk að fljóta með á
B-hliðinni á alþjóðlegu útgáfunni.
Sólóferill Bjarkar
Þegar Sykurmolarnir hættu árið
1992 hóf hún sólóferil sinn og skín
stjarna hennar enn í dag töluvert
skærar en flestar stjörnur nætur-
himinsins. Fyrsta sólóplata Bjarkar
er platan Debut sem kom út árið
1993. Í kjölfarið fylgdi Post (1995),
Homogenic (1997), Selmasongs
(2000), Vespertine (2001), Medúlla
(2004), Drawing Restraint 9 (2005),
Volta (2007), Biophilia (2011) og
Vulnicura (2015).
Nýjustu plötu sinni Utopia
(2017) fylgdi hún eftir á eftirminni-
legan hátt með tónleikaferðalaginu
Cornucopia. Á yfir fjörutíu ára
ferli sínum hefur Björk þróað með
sér einstakan tónlistarstíl þar sem
áhrif koma frá elektrónískri tón-
list, poppi, tilraunakenndri tónlist,
tripphopp, klassískri tónlist og
framúrstefnulegri tónlist.
Hæfileikar Bjarkar einskorðast
ekki við tónlistina en hún hlaut
verðlaun sem besta leikkona í aðal-
hlutverki á Cannes-kvikmynda-
hátíðinni árið 2000 fyrir leik sinn
í Lars von Trier kvikmyndinni
Dancer in the Dark. Þá fékk hún
einnig Óskarstilnefningu fyrir
besta frumsamda lagið sem var I’ve
seen it all.
Ætlast til að einhver illi...
Í íslenskum tímaritum kemur nafn
Bjarkar Guðmundsdóttur fyrst
fram í tímaritinu Æskunni 1983.
Þar kemur hún ný inn á vinsælda-
lista lesenda og er valin þar önnur
vinsælasta söngkonan af lesendum
tímaritsins Æskunnar, með 337
stig, eftir Röggu Gísla sem hlaut þá
413 stig. Í viðtali ári síðar í sama
tímariti segir Björk, þá átján ára
gömul: „Ég þarf að syngja, ég bara
finn það. Það er eitthvað lífsnauð-
synlegt fyrir mig. Ég fer og ég syng.
Fólk getur bara ekki ætlast til
meira af mér.“ En þarna söng hún
með hljómsveitinni Kukl, eftir að
hafa verið meðlimur í Tappa tíkar-
rassi.
Um plötuna sem þá var að koma
út segir hún: „Við pældum rosalega
í þessu með enskuna. Sko við erum
íslensk – og þá syngjum við bara
á íslensku. Svo fórum við að pæla
í því hvort þetta væri réttlátt – að
ætlast til að einhver illi sem heyrir
í okkur, að ætlast til að hann tali
íslensku.“
Í dag er hennar dagur
Afmælisbarn dagsins í dag er engin önnur en hin eina
sanna Björk Guðmundsdóttir (f. 21. nóvember 1965).
Þessi kona er og mun líklega alltaf vera ein sú allra besta
landkynning sem Ísland hefur átt og alið af sér.
Björk á sviðinu í Eldborg 2016 á
Iceland Airwaves. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Björk á tónleikum í Laugardalshöll
árið 2007. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Björk tók þátt í Ertu að verða náttúrulaus? – stórtónleikum gegn eyðilegg-
ingu hálendisins ásamt Múm, Damien Rice, Lisu Hannigan, Ghostigital,
Damon Albarn, Egó, Möggu Stínu, Mugison, Sigur Rós, KK, Ham, Hjálmum
og mörgum fleiri listamönnum. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Hér má sjá Björk á sviði á Cornucopia-tónleikaferðalaginu í desember í Stokkhólmi 2019. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Bleiki kjóllinn
sem Björk
klæddist á
frumsýningu
Dancer in the
Dark í Cannes
var umtalaður.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Stofnendur Sykurmolanna voru Bragi Ólafsson, Björk Guðmundsdóttir,
Einar Örn Benediktsson, Einar A. Melax, Friðrik Erlingsson og Sigtryggur
Baldursson. Myndin er tekin í París 1991. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 1 . N ÓV E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R