Fréttablaðið - 21.11.2020, Blaðsíða 84
„Jæja,“ sagði Kata og glotti.
„Við verðum of sein!“
bætti hún við og hermdi
eir áhyggjurödd Konráðs
sem óttaðist fátt meira
en að vera of seinn.
„Ég er búin að heyra
þetta of o og nenni
ekki að heyra það
einu sinni í viðbót.“
Konráð byrjaði að
Konráð
á ferð og ugi
og félagar
430
Getur þú fundið leiðina í gegnum völundarhúsið??
???malda í móinn en hætti
svo við. „Það gerir ekkert
til að vera aðeins of sein,“
sagði Kata. „Það er aur
á móti gaman að glíma
við að nna rétta leið í gegnum völundarhús.“
Hún bretti upp ermarnar.
„Koma nú, inn með ykkur,
ég nn réttu leiðina og
sannið þið til, við verðum
ekkert of sein,“ sagði
Kata roggin um leið og
hún arkaði inn í dimm
göng völundarhússins.
Karl Noah Machalle Bondalo er
einn þeirra 70 reykvísku skóla-
barna sem fengu íslenskuverðlaun
unga fólksins 16. nóvember. Hann
er nemandi í Landakotsskóla.
Hvaðan ert þú upprunninn, Karl
Noah? Frá Filippseyjum.
Vildir þú stundum óska að þú
ættir heima þar? Nei, ég er ánægð-
ur á Íslandi.
Hversu lengi hefur þú átt heima á
Íslandi? Ég fæddist hér og hef búið
í Reykjavík allt mitt líf.
Hversu mörg tungumál kannt þú?
Íslensku, ensku, smá frönsku, smá
filippseysku, smá japönsku, smá
dönsku. Mamma er filippseysk og
við tölum saman á ensku, en ég tala
íslensku við vini mína þó að þeir
kunni líka ensku.
Hvert finnst þér vera fallegasta
íslenska orðið? Mér finnst fallegt
vera fallegasta orðið.
Hvernig væri það á þínu móður-
máli? Maganda.
Hvað f innst þér um veðrið á
Íslandi? Það er ekki alltaf gott en
mér finnst það samt þægilegt.
Hefur þú heimsótt Filippseyjar?
Já, átta sinnum.
Er alltaf hlýtt og gott veður þar? Já,
það er alltaf sól.
Hefur þú farið þangað þegar vetur
er hér? Ég held ekki. Ég hef aldrei
misst úr skóla þess vegna.
Hafið þið mamma þín ferðast um
Ísland? Já, við fórum einu sinni
fyrst um Suðurland og svo norður.
Hvar fannst þér fallegast? Á Egils-
stöðum, samt var smá rigning þegar
við vorum þar.
Hvert er uppáhaldsfagið þitt í
skólanum? Íþróttir, því að mér
finnst rosalega gaman í leikjum og
hreyfingu.
En leiðinlegasta? Mér finnst ekkert
leiðinlegt, mér finnst bara gaman í
skólanum.
Hver eru helstu áhugamálin þín?
Mér finnst gaman að gera allt – vera
með vinum, spila körfubolta, ég æfi
með Val. Svo finnst mér líka gaman
að vera heima með fjölskyldunni
minni.
Hvað í heiminum langar þig mest
að heimsækja? Norðurpólinn.
En hvað langar þig að verða þegar
þú verður stór? Ég veit það ekki
alveg, ég hef stundum hugsað um
að verða f lugmaður, kannski læri
ég það.
Finnst fallegt
fallegasta íslenska orðið
„Ég hef stundum hugsað um að verða flugmaður, kannski læri ég það,“
segir Karl Noah Machalle Bondalo. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR
Mér finnst gaman
að gera allt - vera
með vinum, spila körfu-
bolta, ég æfi með Val. Svo
finnst mér líka gaman að
vera heima með fjölskyld-
unni minni.Listaverkið
Lundinn sæti, nefnist þessi mynd sem Hera Rut Árnadóttir, sex ára, teikn-
aði fríhendis. Ferðalag um landið í sumar veitti henni innblástur.
Skrýtlur
Í gæludýrabúðinni:
Stelpa: „Ég ætla að fá fugla-
fræ.“
Afgreiðslukonan: „Hvað
áttu marga fugla?“
Stelpan: „Enga enn, en ég
ætla að sá fyrir nokkrum.“
Einu sinni voru tveir vit-
lausir karlar að hjálpast að
við að þvo bíl. – Annar hélt
á tuskunni og hinn keyrði
bílinn fram og til baka.
Í skólanum:
Nemandi: Fyrst maður
skrifar ýsa með ufsiloni,
skrifar maður þá ufsi með
ýsuloni?
Kennarinn: Hmm...
Tvær slöngur voru eitt sinn
saman úti að skríða þegar
önnur þeirra spurði - vand-
ræðaleg:
„Erum við eiturslöngur?“
„Já, hvers vegna spyrðu?“
sagði sú sem var með henni.
„Æ, ég beit óvart í tunguna
á mér.“
2 1 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R40 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
KRAKKAR