Fréttablaðið - 21.11.2020, Page 88
KARAKTERARNIR ERU
ÞARNA OG ÚTILOKAÐ
FYRIR MIG AÐ BETRUMBÆTA
NOKKURN SKAPAÐAN HLUT.
Þegar heimurinn lok-aðist . Pet samo-ferð Íslendinga 1940, er ný bók eftir Davíð Loga Sigurðsson. Þegar ferðir milli Íslands og Evrópu
lögðust af vegna styrjaldarinnar
voru víða um lönd Íslendingar sem
þráðu að komast heim. Þjóðverjar
og Bretar samþykktu að senda
mætti Esjuna, til að sækja fólkið í
einni ferð. Davíð Logi segir sanna
sögu af þrjúhundruð Íslendingum,
sem lögðu í sögulega hættuför frá
Norðurlöndum og meginlandi Evr-
ópu til Petsamo við Norður-Íshafið.
Dramatískur efniviður
„Þegar ég byrjaði að skrifa hafði ég
fullan hug á því að þetta yrði skáld-
saga. Ég var með nokkrar raun-
verulegar persónur í huga sem mig
langaði til að nota sem fyrirmyndir,
byggja við og fylla inn í eyður. Efni-
viðurinn er sannarlega nægilega
dramatískur,“ segir Davíð Logi.
„Við höfum um borð í Esjunni á leið
heim frá Petsamo ungan Íslending
sem er orðinn stuðningsmaður nas-
istanna og siglir heim með vafasöm
áform.
Við erum með fátæka grasekkju,
Elínu Söebech, sem mætt hafði ein-
stökum áskorunum í persónulega
lífinu en gerðist síðar ljóðskáld
og gaf út þrjár bækur án þess að
hennar merki hafi verið haldið á
lofti. Við höfum líka fyrstu íslensku
blaðakonuna, Þórunni Hafstein,
sem festist inni í Kaupmannahöfn
um vorið.
Við höfum gamla skipstjórann
á Gullfossi, Sigurð Pétursson, sem
naut á sinni tíð meiri virðingar á
Íslandi en f lestir aðrir menn; inn
í huga hans vildi ég rýna þar sem
hann sat fastur á skipi sínu og fékk
hvergi að fara, ekki frekar en aðrir
úr áhöfn skipsins. Varð svo að skilja
skipið sitt eftir, sem hann var bund-
inn tryggðaböndum, og sá aldrei
aftur.
Við erum með Gísla Jónsson,
síðar alþingismann, bróður Guð-
mundar Kamban skálds, sem varð
svo óþreyjufullur þegar biðin eftir
ferðinni heim, eftir Petsamo-ferð-
inni, dróst á langinn, að hann rigg-
aði upp eigin fararkosti, litlum vél-
bát, Frekjunni, og sigldi heim ásamt
sex öðrum.
Við erum líka með Lárus Pálsson
leikara sem hafði verið að gera það
gott á leiksviðinu í Kaupmanna-
höfn en aðhylltist kommúnisma og
sá sína sæng upp reidda þegar Þjóð-
verjar voru komnir til Danmerkur.
Pétur Pétursson hafði verið í gler-
iðnaðarnámi í Antwerpen í Belgíu
en flúði þegar leiftursókn Þjóðverja
hófst inn Niðurlöndin og Frakkland
um vorið, fór til Dunkirk meðal
annars, en komst lífs af og hélt
heim um haustið um Petsamo. Og
Leif Muller höfum við í Osló sem
líka leiddist biðin, en kaus að fara á
endanum hvergi þegar færið loksins
gafst – og fékk að súpa seyðið af því,
endaði í fangabúðum nasista. Við
höfum líka Georgíu sendiherrafrú
og síðar húsfreyju á Bessastöðum –
og Tryggva „svörfuð“ Sveinbjörns-
son sem var nýbúinn að þurfa að
una því að meistari Þórbergur gerði
hann að kómískri persónu í sinni
bók, Íslenskum aðli. Tryggvi og Jón
Krabbe léku lykilhlutverk í því að
Petsamo-ferðin komst í kring, með
störfum sínum í sendiráði Íslands í
Kaupmannahöfn.“
Fyrir venjulegt bókafólk
Davíð Logi hætti við að skrifa
skáldsögu. Spurður um ástæðuna
segir hann: „Sannleikurinn var
eiginlega betri saga en hægt var að
skálda eða sem ég að minnsta kosti
treysti mér til að skrifa. Mér fannst
líka hæpið að skálda allt of mikið í
eyðurnar, nema með því að breyta
nöfnum fólks. Og þá hefði svo margt
glatast. Karakterarnir eru þarna og
útilokað fyrir mig að betrumbæta
nokkurn skapaðan hlut.“
Davíð segir að bókin hafi fæðst
í allra upprunalegasta formi sínu
sem eins konar útdráttur að leik-
inni sjónvarpsþáttaröð. „Ég hafði
heyrt Skarphéðin Guðmundsson,
dagskrárstjóra í Sjónvarpinu, tala
um að norrænu ríkissjónvarps-
stöðvarnar væru að leita að heppi-
legum verkefnum sem þær gætu
framleitt saman. Og ég hugsaði með
mér að það væri varla til heppilegra
verkefni en einmitt Petsamo-ferðin
– saga sem í reynd gerist í öllum
Norðurlöndunum fimm; í Dan-
mörku og Noregi þegar Þjóðverjar
hernema löndin 9. apríl 1940, með
áherslu á Kaupmannahöfn, enda
Íslendingar f lestir þar af borgum
Norðurlandanna. Í Svíþjóð – því að
þangað lá leið Íslendinganna þegar
loks var hægt að koma ferðinni í
kring – og í Finnlandi, frá suðri til
norðurs, alla leið til íshafshafnar-
innar í Petsamo. Og auðvitað að
síðustu á Íslandi, með viðkomu á
Orkneyjum.
Ég hef alltaf verið áhugamaður
um kvikmyndir og sjónvarpsefni
og finnst þetta enn þá alveg frá-
bær hugmynd að leiknu efni, alveg
burtséð frá því hver myndi vinna
það. Sem að vísu yrði gríðarlega
kostnaðarsamt og flókið.
Þegar til kom hófst ég því handa
við að skrifa þessa bók. Þegar aðrir
eru ekki að grípa hugmyndirnar
á lofti verður maður bara að gera
hlutina sjálfur – í þessu formi, fyrst
annað er ekki á boðstólum.
Hins vegar gerði ég mitt besta
til að skrifa þessa bók nánast sem
reyfara. Hafði kaflana stutta og með
afmarkaðan fókus, hvern og einn,
gerði mitt besta til að gera þetta eins
lesvænt og hægt var. Fyrir venjulegt
bókafólk, ekki sagnfræðinörda.“
Betri saga en hægt var að skálda
Davíð Logi Sigurðsson segir hádramatíska sögu í bók sinni Þegar heimurinn lokaðist. Hann ætlaði fyrst að
skrifa skáldsögu um mjög spennandi efni, en í staðinn varð til sönn saga fyrir venjulegt bókafólk.
Efniviðurinn er sannarlega nægilega dramatískur, segir Davíð Logi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Anna Þorbjörg Ingólfsdóttir, lektor verður með hádegis-fyrirlestur í opnu streymi
í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns
Íslands þriðjudaginn 24. nóvem-
ber þar sem hún fjallar um sögu og
gildi Vísnabókarinnar. Bókin hefur
sérstöðu meðal íslenskra barna-
bóka og Anna Þorbjörg veltir upp
spurningum um framtíð hennar í
þeim ríka myndheimi sem nútíma-
börn alast upp við.
Allt frá því að Vísnabókin kom
fyrst út árið 1946, eða í nærri sjötíu
og fimm ár, hefur hún notið mikilla
vinsælda og hefur margsinnis verið
endurútgefin, nú síðast á þessu ári.
Myndir teiknarans Halldórs Pét-
urssonar (1916 – 1977) eiga ríkan
þátt í vinsældum bókarinnar.
Anna Þorbjörg þekkir
Vísnabókina eins og lóf-
ann á sér. Hún er lektor í
íslensku við Menntavís-
indasvið Háskóla Íslands
þar sem hún kennir verð-
andi leik- og grunnskóla-
kennurum meðal annars
barnabókmenntir.
Fyrirlesturinn verður
í opnu streymi fyrir alla
að njóta. Hann verður
f luttur í gegnum Teams
livestream og nánari upp-
lýsingar eru á heimasíðu
safnsins.
Myndin sem sést hér til
hægri er víðfræg mynd
Halldórs Péturssonar af
Grýlu með pokann sinn.
Fyrirlestur um Vísnabókina
2 1 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R44 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING