Fréttablaðið - 21.11.2020, Qupperneq 90
Hrist ryk á steini er yfirskrift sýningar Ólafar Helgu Helgadóttur sem s t e ndu r y f i r í Gerðarsafni. Titil
inn hripaði Ólöf á blað þegar hún
hristist um holótta vegi landsins í
aftursætinu: Hrist ryk á steini.
Í sýningarskrá segir: „Húmor og
dægurmenning einkenna verk Ólaf
ar og við sjáum vísanir í listasöguna
í mínímalískum en glettnum skúlp
túrum hennar þar sem fundin efni
og hversdagsleiki fá nýja vídd í
sýningarsalnum.“ Einnig segir: „Í
verkum sínum ýtir Ólöf hversdags
legu efni út fyrir sitt hefðbundna
hlutverk og varpar þannig óvæntu
ljósi á kunnugleg sjónarhorn. Efnið
sem hún notar hefur auk þess oft
sögulega merkingu sem er mjög
persónuleg.“
Þrjú verk eru á sýningunni. Þegar
gestir koma inn í salinn blasa við
þeim stórglæsilegar rauðar gard
ínur. „Þessar gardínur héngu uppi á
æskuheimili mínu í Grindavík um
1980. Ég man að þegar sólin skein
varð birtan í húsinu rauðleit. Þegar
mamma ætlaði svo að henda þeim
tók ég þær,“ segir Ólöf. „Það var eitt
hvað við þær sem heillaði mig. Ég
vissi ekki nákvæmlega hvað ég ætl
aði að gera við þær, en hugsaði með
mér að tíminn myndi leiða það í
ljós. Núna eru þær hér á sýningunni
nálægt gluggum og þegar sólin skín
skapast rauðleit birta.“
Annað verk á sýningunni heitir
Skúlptúr étur skúlptúr. „Það er
samansett af tveimur eldri verkum
sem ég sýndi á samsýningu í Lista
safni Árnesinga árið 2015. Um er að
ræða plasthólk utan af teiknirúllu
og inni í verkinu er pappír sem ég
eignaðist þegar ég var að vinna á
Landspítalanum. Þetta voru tveir
sjálfstæðir skúlptúrar sem hafa nú
sameinast.“
Þriðja verkið er myndbandsverk
þar sem lottókúlur og þvottavél
koma meðal annars við sögu. Hljóð
rás myndbandsins er unnin af raf
listakonunni Plasmabell.
„Maður fær ekki oft tækifæri
til að sýna í svona stórum sal. Öll
verkin spila saman og eiga að skapa
heildstæða sýningu. Ég vildi hafa
færri verk en fleiri og nýti einungis
gólfrýmið, nota ekki veggina,“ segir
listakonan.
Ólöf Helga útskrifaðist frá Listahá
skóla Íslands árið 2005 og lauk mast
ersnámi í myndlist frá Slade School
of Fine Art í London árið 2010. Árið
2001 stundaði hún örnám við Kvik
myndaskóla Íslands. Hún býr og
starfar á Siglufirði.
Sýningin er hluti af sýningaröð
Gerðasafns, Skúlptúr/Skúlptúr.
Skúlptúr / Skúlptúr
Með sýningunni Skúlptúr
skúlptúr skúlptúr á Kjar-
valsstöðum árið 1994 var
leitast við að svara áleitnum
spurningum um hvar íslensk
höggmyndalist væri stödd eftir
miklar sviptingar á því sviði
árin áður. Sýningaröð Gerðar-
safns sem með yfirskriftinni
Skúlptúr / Skúlptúr vísar til
þessarar tímamótasýningar
og reynir að velta upp þessari
spurningu aftur og aftur: Hvar
er íslensk höggmyndalist stödd
og í hvaða átt stefnir hún?
Listamennirnir sem sýna verk
sín leggja til að svarað sé með
framúrstefnulegri tilrauna-
mennsku í hversdagsleg efni og
óþrjótandi leik- og sköpunar-
gleði. Gestum sýninganna er
því boðið til skúlptúrskemmt-
unar í Gerðarsafni.
Fundin efni og hversdagsleiki
Ólöf Helga Helgadóttir sýnir verk sín í Gerðarsafni. Yfirskrift-
in er Hrist ryk á steini. Listaverkin á sýningunni eru þrjú og
listakonan segir að þau eigi að spila saman og skapa heild.
Ólöf við gluggatjöldin sem héngu á æskuheimili hennar. MYND/STEFÁN
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
ÉG VILDI HAFA FÆRRI
VERK EN FLEIRI OG
NÝTI EINUNGIS GÓLFRÝMIÐ,
NOTA EKKI VEGGINA.
BÆKUR
Ein
Ásdís Halla Bragadóttir
Útgefandi: Veröld
Fjöldi síðna: 225
Skáldsagan Ein eftir Ásdísi Höllu Bragadóttur er hluti af jólabókaflóðinu í ár. Um er að ræða
fyrstu skáldsögu Ásdísar Höllu sem
áður hefur gefið frá sér minninga
bækurnar Tvísaga og Hornauga.
Þessi fyrsta skáldsaga Ásdísar er
samtímasaga sem fjallar um ein
manaleikann á tímum veiru og vol
æðis, eitthvað sem þetta ár hefur
svo sannarlega boðið upp á. Lesandi
fær að kynnast þremur
ólíkum sögupersónum
sem tengjast á sinn
hátt. Í miðju sögulín
unnar er Sólrún, ungur
stjórnmálafræðinemi
frá Ísafirði sem starfar
í heimaþjónustu fyrir
eldri borgara. Þegar
sagan hefst hefur Sólrún
fundið einn af skjólstæð
ingum sínum látinn í
baðkarinu heima hjá sér.
Stjórnmálafræðinem
inn áttar sig f ljótt á að
eitthvað gruggugt er við
dauða Elísu, eða sendi
herrafrúarinnar eins og
hún er gjarnan kölluð, en
Sólrún er óviss hvernig
bregðast skal við.
Á sama tíma glímir
Klara, ungur læknir og
einka dóttir Elísu við
af leið ingar COVID 19
faraldursins í New York.
Lesandi fær að skyggnast
í fortíð Klöru og fjölskyldu
hennar sem er nokkuð
skrautleg. Síðast en ekki
síst fær lesandi að skyggnast inn í
hugarheim Friðriks, annars skjól
stæðings Sólrúnar og baráttu hans
við minningarnar. Fljótlega kemur
í ljós að ekki er allt sem sýnist hjá
söguhetjunum þremur og það sem
lesandi telur í upphafi er ekki end
anleg niðurstaða verksins.
Sem fyrr segir staðsetur Ásdís
Halla skáldsöguna vel í tíma og
rúmi. Þetta verður því líklega með
fyrstu skáldsögum sem lesendur
lesa sem tæklar COVID faraldurinn,
af leiðingar hans og hugarástand
landsmanna nær og fjær. Lesturinn
verður fyrir vikið nokkuð ljúf
sár, enda gæti sagan verið að eiga
sér stað akkúrat núna. Framvinda
verksins er vel skrifuð og f léttan
nokkuð spennandi án þess að fara
of geyst þar sem lesandi fær að
skipta inn í hugarheim söguhetj
anna til skiptis.
Einmanaleiki er helsta þema
verksins því allir einstaklingarnir
þrír glíma við einmanaleika á sinn
hátt. Sögulínan sjálf, frá upphafi til
enda er í raun ekki nema kannski
klukkutími þrátt fyrir að lesandi fái
að ferðast fram og til baka í hugar
heimi höfuðpersónanna. Í upphafi
Ein býður Ásdís upp á öll helstu
einkennismerki glæpasögunnar,
lík á f loti, einhver virðist vera með
óhreint mjöl í pokahorninu og for
vitnileg fortíð. Þegar líða fer á verk
ið kemur hins vegar í ljós að sagan
mun að öllum líkindum ekki bjóða
upp á þá hröðu framvindu sem
glæpasögur gera gjarnan. Sem gæti
verið ágætis tilbreyting fyrir suma.
Hins vegar eru persónurnar ekkert
gífurlega spennandi og ekki verið
að finna upp hjólið hér með neinu.
Það sem kannski helst situr eftir
er einmanaleikinn sem að hefur
verið í deiglunni á COVIDtímum
og lesandi situr eftir og vill hringja
í mömmu sína.
Bryndís Silja Pálmadóttir
NIÐURSTAÐA: Spennusaga um
einmanaleika á COVID-tímum sem
fær lesanda til að vilja hringja í for-
eldra sína.
(M)Einsemd farsóttarinnar
BÆKUR
Fjarvera þín er myrkur
Jón Kalman Stefánsson
Útgefandi: Benedikt
Fjöldi síðna: 491
Hver ritar fortíð okkar og framtíð? Hvað stýrir örlögum okkar?
Í nýjustu skáldsögu Jóns Kal
mans Stefánssonar, Fjarvera þín er
myrkur, má heyra kunnugleg stef úr
fyrri verkum höfundar. Hér er á ferð
saga um minningar og gleymsku,
og hvernig augnablik fortíðar búa
í beinum okkar, löngu eftir að þau
eiga sér stað. Margvíslegar per
sónur stíga fram og teygir persónu
galleríið sig tæpar tvær aldir aftur
í tímann, kynslóð fram af kynslóð.
Við fáum að kynnast manneskjum
sem hafa skapað sér líf á Ströndum
fyrir vestan, rétt við Hólmavík. Í
upphafi sögunnar hittum við fyrir
sögumanninn ónefnda sem staddur
er í gamalli sveitakirkju og virðist
hann hafa tapað öllum minningum
sínum. Á bekk fyrir aftan hann situr
annar ókunnur maður sem á eftir
að fylgja okkur í gegnum bókina
og hefur órætt hlutverk innan frá
sagnarinnar. Hægt og rólega bætist í
persónuflóruna eftir því sem minn
ingarnar safnast saman hjá sögu
manninum dularfulla og við blasir
heildstæð saga af margbrotnum
manneskjum sem hver á sinn minn
ingabanka.
Jón Kalman er þekktur fyrir leik
sinn með stöðu sögumannsins í
skáldsögum sínum og á það einnig
við hér og leiðir hann okkur um frá
sögnina í skipulagðri óreiðu. Þemu
sem birtast ítrekað í verkum Jóns
Kalmans; stærð heimsins, ómur
fortíðar og titrandi ástin og treginn
sem yfirtekur allt, eru svo sannar
lega allsráðandi hér og mynda
brú á milli bóka hans. Textinn er
áferðarfagur og verða aðdáendur
höfundarins ekki sviknir af þessu
nýjasta útspili hans.
Tónlist er áberandi í sögunni og
smám saman safnast í ágætis laga
lista eftir því sem líður á bókina,
„lagalista dauðans“, sem tekinn
er svo saman á síðustu blaðsíðum
bókarinnar. Ýmsir tónlistarmenn
koma þar saman hvaðanæva að
úr tónlistarsögunni; Bob Dylan,
GDRN, David Bowie, Regina Spekt
or, Kanye West og Olga Guðrún svo
dæmi séu tekin. Það er því ekki vit
laus hugmynd að hafa
Spotify við höndina
við lesturinn og fylgja
persónunum hægt og
rólega í gegnum listann.
Það er síðan blessuð
kynhvötin sem virðist
s t ý r a p e r s ónu nu m
umfram allt, svo sterkt
að sumum þætti nóg
um. Setningar Jóns Kal
mans eru oft og tíðum
eins og þær innihaldi
ákveðinn töframátt,
þótt orðskrúðinu og
tilfinningaf lóðinu sé á
köflum heldur ofaukið.
Að því leyti eru sögu
persónurnar ekki beint
trúverðugar, en líf ið
er ef til vill skemmti
legra ef við trúum því
að innra með rudda
legasta kotbónda búi
tilfinningasemi á stærð
við alheiminn.
Guðrún Baldvinsdóttir
NIÐURSTAÐA: Fjar-
vera þín er myrkur er
falleg saga af fjöl-
breyttum og djúpum
persónum.
Brot úr örlögum
Mánudaginn 23. nóvember næstkomandi opnar Vat nslit afélag Íslands
sýningu í Listasal Mosfellsbæjar.
Sýningin heitir Andstæður og það
er jafnframt þema hennar. Vatns
litafélag Íslands er nýstofnað félag
um 200 vatnslitamálara. Félags
mönnum var boðið að senda inn
verk og valdi sjálfstæð dómnefnd
erlendra listamanna þau verk sem
til sýnis verða á Andstæðum. Sýnd
verða 64 verk eftir 47 listamenn.
Listasalur Mosfellsbæjar er stað
settur inn af Bókasafni Mosfells
bæjar og er opinn á afgreiðslutíma
þess, kl. 1218 á virkum dögum og
kl. 1216 á laugardögum. Síðasti
sýningardagur er 20. desember.
Andstæður á
sýningu
Vatnslitamynd á sýningunni.
2 1 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R46 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð