Fréttablaðið - 21.11.2020, Side 98
BÍÐIÐI BARA
ÞANGAÐ TIL
ALLT FER Í
KLESSU OG
HEIMURINN
HRYNUR OG
ÞIÐ FARIÐ AÐ
RÍFAST OG
BLEBLEBLE…
Þetta er uppgjörsplata við 24 ára samband. Ekki bara við manninn minn heldur líka bara við sjálfa mig og það eru sko engar árásir þarna,“
segir tónlistarkonan Elín Bergljótar,
um sína fyrstu sólóplötu sem hún
ætlar að gefa út í janúar.
Elín segir plötuna í raun fjalla um
leit hennar að leið út úr aðstæðum
sem henni líður illa í. „Og hvernig
maður reynir að krafsa sig út úr því
og finna leiðina að hamingjunni.“
Fyrsta smáskífulagið af plötunni,
Ég rís upp, er þegar komið út, en í
því næsta mun kveða við allt annan
tón. „Ég er svona að mjatla þessu út
og næsti síngúll kemur 2. desember
og svo kemur platan öll í lok janúar.
Næsta lag heitir Stríð og fjallar um
af brýðisemina og tilraunir til þess
að hugsa sig út úr aðstæðum. Hvern-
ig maður reynir að láta sér líða betur
þótt maður sjái ekki alveg hvernig
það á að vera hægt.“
Upprisusóló
Elín segir plötuna í raun hverfast um
allar þær tilfinningar sem sitja eftir
þegar leiðir skilja eftir langt sam-
band. „Staðan er svolítið þannig
þegar maður er nýfarinn, eða nýskil-
inn, að maður stendur og horfir til
baka og hugsar bara: „Er þetta það
sem stendur eftir? Vonbrigði, tár og
erfiðleikar, og lagið Ég rís upp fjallar
nákvæmlega um þetta og hvernig
maður getur risið upp úr því.“
Elín segir lítið um eymd og vol-
æði á plötunni og reiðin fái aðeins
að krauma í einu lagi, annars sé
áherslan á það jákvæða sem getur
fylgt miklum breytingum. „Vinátta
kemur líka við sögu, en ég er ein-
hvern veginn búin að sanka að
mér mörgum nýjum vinum og vin-
konum og það er rosa gott að finna
stuðning frá öðrum.
Þetta er allt á þessari plötu þann-
ig að þetta er ekki bara einhver sam-
bandsslit. Þetta er meira bara ég að
hjálpa sjálfri mér og vonandi ein-
hverjum öðrum í leiðinni.“
Ljóðrænar hugsanir
Elín var um langt árabil í hljóm-
sveitinni Bellstop ásamt sínum fyrr-
verandi og saman gáfu þau út þrjár
breiðskífur, þar á meðal eina í Kína
þar sem þau bjuggu í nokkur ár.
„Við gerðum allt efni á ensku en
þessi fyrsta sólóplata mín er öll á
íslensku, sem er eitthvað sem mig
er búið að langa að gera í mörg ár
og hún varð til þannig að ég skrifa
kannski meira einhvers konar ljóð,
einhverjar pælingar og hugsanir sem
ég vinn svo með áfram og breyti yfir
í texta laganna.
Ég byrjaði nú að semja eitthvað af
þessum textum fyrir nokkrum árum
þannig að þetta verður kannski til á
svona þremur árum. Ég skildi síðan
fyrir ári þannig að þetta er svona
fyrir skilnað, á meðan á skilnaði
stendur og eftir hann. Þannig að
þessir textar eru að koma á svolítið
löngu tímabili.“
Mesta ógeðið
Reiðin og af brýðisemin taka sem
fyrr segir völdin í laginu Stríð, sem
kemur út sem smáskífa í byrjun
desember. „Af brýðisemin er rosa-
lega erfið tilfinning og sennilega það
sem fólk kvíðir mest fyrir þegar það
ákveður að skilja,“ segir Elín og snýr
sér að upphafi stríðsins.
Engar árásir í skilnaðaruppgjörinu
Söngkonan Elín Bergljótar var árum saman með sínum fyrrverandi í hljómsveitinni Bellstop en rís upp á fyrstu
sólóplötu sinni, afgreiðir ógeð afbrýðiseminnar, gerir upp við hjónabandið en þó kannski fyrst og fremst sjálfa sig.
Elín Berg-
ljótar leggur
mikla áherslu
á að vera sönn
og sjálfri sér
samkvæm og
kjarninn í öllu
sem hún tekur
sér fyrir hendur,
tónlist eða
hlaðvarpi, er að
hlæja og hafa
gaman af öllu
saman.
Elín rís upp í
fyrstu smáskífu
breiðskífunnar
þar sem hún
gerir upp við
hjónabandið og
sjálfa sig.
„Þetta var nú þannig að eins og
gengur þegar maður skilur þá byrjar
fyrrverandi maki manns fyrr eða
síðar að deita annað fólk og maður
fær svona einhverjar fregnir af því
og þetta er sko ógeð,“ segir Elín með
kaldhæðnislegum áhersluþunga.
„Þetta er ógeðið við þetta og
maður veit að þetta mun gerast
en þegar það gerist þá er það bara
ógeð,“ segir Elín og leggur áherslu á
að hún vilji alls ekki hljóma eins og
„bitur, gömul kerling“ enda sé hún
það alls ekki.
„En þegar það gerðist þá bara
rumpaðist út úr mér einhver svona
romsa um af brýðisemi og eitthvað
svona. Ég hugsaði síðan að það væri
nú kannski ekkert sniðugt að vera
að hafa þetta á plötunni en svo
vildi ég bara vera einlæg. Sérstak-
lega við sjálfa mig og fyrst ég var
að gera þetta af svona mikilli ein-
lægni og ekki í einhverri vinsælda-
keppni þá hugsaði ég: Nei, þetta
verður að vera með. Þetta er partur
af þessu öllu saman. En þetta er ekki
þannig lag að eldri frænkur mínar
muni hringja í mig og segja: Mikið
er þetta fallegt hjá þér, Elín mín,“
segir söngkonan og hlær.
„Ég samdi þetta lag í júní eða júlí
þegar ég var með þetta af brýði-
semisrant sem ég hálfpartinn rappa
í laginu. Þetta er svona eitthvert
rapptal og ég fann nú varla melódíu
við þennan takt. Mig vantaði líka
fyrri part vegna þess að ég gat ekki
verið með lag sem væri bara svona,“
segir Elín sem fann upphaf Stríðs í
Hljómskálagarðinum.
Drullan í höfðinu
„Ég var búin að vera að hjóla og sat
ein í Hljómskálagarðinum á ofboðs-
lega fallegum degi og sá ungt par
sem var þarna að ganga. Þau voru
þarna með tvö lítil börn og voru svo
falleg og hamingjusöm. Það var sól
og yndislegt veður og þau voru að
hlæja og hafa gaman.
Og ég horfði á og hugsaði bara:
Vá, hvað þau eru eitthvað falleg og
líður vel og eitthvað þannig og stóð
síðan sjálfa mig allt í einu að því að
hugsa: Bíðiði bara. Bíðiði bara þang-
að til allt fer í klessu og heimurinn
hrynur og þið farið að rífast og ble-
bleble…
Drullan bara fyllti hausinn á mér
og þarna var fyrri parturinn á þetta
lag bara kominn. Vegna þess að það
er allt svo fallegt og dásamlegt og
yndislegt í byrjuninni og maður
heldur að maður sé ósnertanlegur
og að þetta sé alltaf fullkomið og
svo allt í einu bara BÚMM!
Þannig að lagið Stríð er um þetta.
Það er um af brýðisemina en líka
það að horfa á eitthvað of boðslega
fallegt og verða svona eiginlega
pínu af brýðisamur út í það. En það
er bara þetta eina lag sem er svona.
Stríð. Þetta verður að vera með og
þótt þetta sé ógeðslega klikkað og
skrítið og svona, þá er þetta bara
partur af þessu öllu saman.“
20 sekúndna hugrekki
Elín segir það hafa verið bæði gef-
andi og frelsandi að greiða úr til-
finningaflækjum skilnaðarins með
tónlistinni. „Ég veit ekki einu sinni
hvernig ég hefði komist í gegnum
þetta án þess að gera þetta. Ég er
bara þannig að ég hef alltaf haft
rosalega þörf fyrir að tjá mig í tón-
list. Eða bara skrifum. Það er mér
eiginlega bara lífsnauðsynlegt að
skrifa hlutina niður og ég er rosa-
lega stolt af sjálfri mér að hafa bara
farið í það að gera þessa plötu.
Ég missti líka vinnuna í COVID
í lok maí. Ég hef verið að reka veit-
ingastaði og það var bara lokað
þannig að ég bara ákvað að keyra
á þetta og taka sumarið í að klára
þessa plötu,“ segir Elín sem gerðist
svo djörf að fá sjálfan Guðmund
Jónsson, kenndan við Sálina hans
Jóns míns, til þess að aðstoða sig.
„Ég þekkti hann ekki neitt en hef
sundum sagt að í lífinu þurfi maður
ekki nema tuttugu sekúndur af hug-
rekki þegar maður þorir ekki eða
er í óvissu. Ef maður bara leyfir sér
tuttugu sekúndur til að gera bara
eitthvað sem maður myndi venju-
lega ekki þora þá getur það annað
hvort orðið að engu eða einhverju
frábæru og það var svolítið þannig
með þessa plötu.
Ég sendi honum póst og hann
var til í þetta. Ég reyni alltaf að
vera sönn og sjálfri mér samkvæm
og þetta byggir allt á því. Ef maður
gerir eitthvað þá gerist eitthvað.“
Það má allt
Og það er allt að gerast hjá Elínu og
ekki nóg með að platan sé á leiðinni
þar sem hún hefur fundið annan
vettvang til þess að fá útrás fyrir
einlægnina.
„Ég var í uppistandi í gamla daga
og mikið í pistlaskrifum. Ég var líka
með einhverja útvarpsþætti þegar
ég var bara unglingur og núna er
ég líka að byrja með hlaðvarp sem
tengist svolítið þessu öllu saman.
Að vera einlæg og hafa gaman að
hlutunum, spjalla og hlæja. Bara
taka viðtöl við alls kyns fólk um alls
kyns málefni og það er ekkert sem
má ekki tala um í þessu podcasti
sem heitir einfaldlega Podcast með
Elínu Bergljótar,“ segir tónlistar-
konan, sem er að fara að senda frá
sér lagið Stríð, hleypa hlaðvarpinu
af stað á næstu vikum og gefa út
breiðskífu í byrjun næsta árs.
toti@frettabladid.is
2 1 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R54 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ