Fjölrit RALA - 10.10.1992, Blaðsíða 30

Fjölrit RALA - 10.10.1992, Blaðsíða 30
26 Umræður Meðferð Um 80% túnanna fá búfjáráburð oft, einungis 5% fá aldrei búfjáráburð. Þetta er heldur hærra hlutfall en á Vestur- og Austurlandi. Á Suðurlandi er meira um að búfjáráburði sé dreift á vorin en í hinum landshlutunum. Rúm 50% túnanna á Suðurlandi fá tilbúinn áburð eftir slátt. Samsvarandi tala á Austurlandi var 22%, 10% á Vestfjörðum og 40% á Vesturlandi. Mjög lítill hluti túnanna var alfriðaður fyrir beit. Mun fleiri tún eru friðuð á vorin en á haustin. Á vorin er nær eingöngu sauðfjárbeit en haustbeitin er blönduð. Innan við 10% túnanna eru tvíslegin sem er heldur minna en á Austurlandi en svipað og á Vesturlandi. Gróðurfar Með því að brjóta land og sá í það er verið að breyta náttúrulegu gróðurfari þess í þeim tilgangi að fá gróður sem fullnægir óskum um uppskeru, fóðurgildi og fleira. Oft víkur sáðgresið fyrir öðrum gróðri með tímanum eða hlutföll milli einstakra tegunda raskast. Þessar breytingar ganga mishratt fyrir sig, það ræðst m.a af ýmsum ytri skilyrðum eins og veðri, jarðvegi, framræslu, meðferð o.fl. Það er því æskilegt að sá tegundum sem henta vel aðstæðum á hverjum stað. Eins er mikilvægt að búa túngrösunum vaxtarskilyrði sem gera þeim kleift að lifa lengi (framræsla, kölkun o.fl). Ein grasfræblanda hefur verið ráðandi á markaðnum um allt land síðastliðin 20-30 ár, þ.e. blanda með 50% vallarfoxgrasi og um 25% af hvoru fyrir sig túnvingli og vallarsveifgrasi. Vallarfoxgrasið er notað vegna þess að það er uppskerumikið og gott fóðurgras. Hinar tegundimar gefa meiri endurvöxt og það er ákveðin trygging fólgin í því að sá saman fleiri en einni tegund. Skilyrði geta verið óhagstæð einni tegundinni þannig að hún hverfur fljótt, en hagstæð hinum sem þá lifa lengur. Þá þykir vallarfoxgrasið ekki mynda eins góðan svörð og t.d. vallarsveifgrasið. Sá ókostur fylgir því hins vegar að sá fleiri tegundum saman, að sú tegund sem við helst viljum hafa í túnunum getur horfið fyrr en ella vegna samkeppni frá hinum sáðgrösunum. Þetta þarf að hafa í huga þegar sáðblöndur eru búnar til. Þar til á allra síðustu árum hafa verið notaðir fremur veikir túnvingulsstofnar, þannig að túnvingull hefur jafnan verið lítið áberandi þar sem blöndu með honum hefur verið sáð. Undanfarin ár hefur norski túnvingulsstofninn Leik verið á markaðnum hérlendis. Hann virðist mun sterkari en forverar hans og kemur það m.a. fram í því að hann getur náð yfirhöndinni í blöndu með vallarfoxgrasi. Þetta vekur spumingar um það hvort rétt sé að sá svona sterkum túnvingulsstofni með vallarfoxgrasi. Það er líka spuming hvort túnvingull á heima í venjulegri túnblöndu þar sem hann gefur lakara fóður en bæði vallarfoxgras og vallarsveifgras (Guðni Þorvaldsson og Hólmgeir Bjömsson, 1990).

x

Fjölrit RALA

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.