Fjölrit RALA - 30.11.2003, Qupperneq 57

Fjölrit RALA - 30.11.2003, Qupperneq 57
49 Skaðvaldar/Landgræðsla 2002 Ryðsveppir (132-9431) Árið 2000 hófst rannsóknaverkefnið Vamir gegn ryðsveppum á ösp og gljávíði. Ráðist var í þetta verkefni vegna þess að árið 1999 uppgötvaðist nýr ryðsjúkdómur í alaskaösp hér á landi og einnig hafði nýr ryðsveppur verið að breiðast út í gljávíði í nokkur ár. Meginmarkmið þessa verkefnis var að fmna ryðþolna klóna af þessum tijátegundum. Einnig var útbreiðsla ryðtegundanna körmuð árlega. í mati á smitunartilraunum á alaskaösp hefur komið í ljós að þótt allir klónar séu móttækilegir fyrir ryð að einhverju marki, þá eru nokkrir klónar sem skera sig úr hvað þol varðar. Enn liggja ekki fyrir óyggjandi niðurstöður varðandi gljávíðiklónana. Útbreiðslukönnunin leiddi í Ijós að asparryðið var fyrstu tvö árin að mestu bundið við Selfoss og Hveragerði en hefur nú náð sér á strik um allt sunnanvert landið og í Borgarfirði en það er þó ekki samfellt. Það hefur fundist á Hallormsstað og í Austur-Húnavatnssýslu. Útbreiðsla gljávíðiryðs nær nú frá Homafírði og til suðurhluta Borgarfjarðarsýslu. Þegar er farið að nýta niðurstöðumar í nýju kynbótaverkefni í ösp sem hófst árið 2002. Þremur klónum sem komið höfðu vel út í smitunartilraununum var víxlað við aðra efnilega klóna og innbyrðis, alls 18 víxlanir. Ræktun á röskuðum svæðum (132-9487) Reynd er notkun innlendra úthagaplantna í vegfláa í Hrunamannahreppi. Haustið 2001 hófust tilraunir til að prófa mismunandi aðferðir við ræktun á röskuðum svæðum. Prófaðar em sáningar, flutningur heilla gróðurtorfa og útplöntun. Arangur aðgerða verður mældur með gróðurgreiningu. Sáning haust 2001 og vor 2002. Eftirtaldar tegundir vom í sáðblöndu: Rauðsmári (Bjursele), baunagras (uppmni Snasir), umfeðmingur (uppmni Oddi), hvítsmári (uppmni Undrom), gullkollur (uppmni Korpa), blámjalta (uppmni Jötunheimar), birki (uppmni Fossvogur) og túnvingull (Sámur). Jarðvegssmit var notað fyrir gullkoll, baunagras og umfeðming. Bakteríusmit ræktað á æti var notað fyrir smára og blámjöltu. Eftirtaldar tegundir voru fluttar í torfum frá grenndarsvœðum inn í vegfláann haustið 2001: Gulmaðra, hvítmaðra, krossmaðra, hálíngresi, títulíngresi, túnvingull, vallhæra, stinnastör, þursaskegg, blóðberg, komsúra, vallelfting, klóelfting, túnsúra, hrafnaklukka. Eftirtalda tegundir voru rœktaðar ípottum og plantað ífláann vorið 2002: Eyrarrós, baunagras, holtasóley, umfeðmingur, gulmaðra, giljaflækja, kattartunga og vallerta. Vegagerð ríkisins styrkir þetta verkefhi. Eftirverkun seinleystra- og hefðbundinna áburðarsalta er mæld árlega í tilraun, sem staðið hefur síðan árið 1992. Tilraunaplantan er birki og er plöntuhæð mæld að vori og hausti.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Fjölrit RALA

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.