Fjölrit RALA - 30.11.2003, Side 62
Möðruvellir 2002
54
Þegar tölur eru bomar saman í töílunni er mikilvægt að hafa í huga að heyin og þurreínis-
hlutfall em nokkuð breytileg á milli úthalda, en hvom tveggja hefur áhrif á það magn sem
kemst í hvem bagga. Til að mynda batt nýlega lauskjama vélin einungis há sem venjulega
þjappast betur en hey af fyrsta slætti, en á móti vegur lægra þurrefhisstig sem lækkar
rúmþyngd bagga. Þá hefur maðurinn sem vinnur verkið mikil áhrif á gæði bindingar og
pökkunar.
Sambyggða fastkjama vélin er með stillanlegum heyskemm og stillanlegu þvermáli
sem var stillt á 1,4 m. Fastkjamavélin var með mesta rúmmálið og þyngstu baggana.
Lauskjama vélamar em ekki með stillanlegu þvermáli er það á bilinu 1,2-1,3 m. Baggahólf
ferbaggavélarinnar er 0,80 * 0,88 m með stillanlegri lengd, sem á Möðmvöllum var stillt á 1,8
m. Er það talið með því lengsta sem mögulegt er. Ferbaggamir vora minnstir að rúmmáli og
magn þurrefnis í hveijum bagga var næst minnst. Rúmþyngdin var mest í ferböggunum og
minnst í gömlu vélinni. Rúmmál bagga var nokkuð breytilegt og var ffávikshlutfall ffá
meðalrúmmáli 4-9 % sem verður að teljast vel viðunandi. Ekkert úthald skar sig þó úr hvað
þetta varðaði.
Gæði pökkunar má meta m.a. með því að fylgjast með myglu í böggunum þegar þeir
em opnaðir fyrir gjöf. Strax á fyrri hluta innistöðunnar vom þó nokkrir baggar úr fastkjama
vélinni áberandi skemmdir af myglu sem náði oft inn að rúllumiðju. Samkvæmt upplýsingum
frá verktaka var það vegna galla í pökkunarbúnaði sem nú er búið að laga. Engin mygla
faimst í rúllum sem bundnar vora með nýlegu lauskjama vélinni. Mygla fannst í einstaka
ferbagga og rúllubagga úr gömlu vélinni, sem rekja mátti til galla við pökkun.
Gjaldtaka verktaka miðast, að þeirra sögn, oftast við kostnaðarútreikninga Hagþjón-
ustu landbúnaðarins og áætlað magn í meðalbagga. Þegar upp var staðið var samt talsverður
munur á kostnaði milli verktaka reiknað á kíló þurrefnis eins og sést í meðfylgjandi töflu. Þar
er auk þess sýndur heildarkostnaður eftir aðferðum. Vinna bóndans (bústjórans) er þó ekki
innifalin, en hún er mismikil eftir því hvaða leið er farin. Vinna bóndans er mest ef hann
bindur allt sjálfur en er minnst með verktökum 1 eða 3. Ef verktaki 3 hefði verið ráðinn til
þess að heyja allt á Möðmvöllum hefði hann kostað um 180.000 kr. meira en ef verktaki 1
hefði verið ráðinn. Þá kemur á óvart hvað heimabundið hey sker sig lítið úr.
Kostnaður við heyöflun með mismunandi verktökum eða heimabundið.
Krónur á kg þe.
verktaki heild
Verktaki 1 2,51 9,61
Verktaki 2 2,53 9,63
Verktaki 3 3,02 10,12
Heimabundið 0,00 9,71
Niðurstaðan er því sú að hagkvæmast er að ráða verktaka til þess að sjá um bindingu og
pökkun á Möðruvöllum. Við val á verktaka er eðlilegt að hafa eftirfarandi í huga:
1. Áætlað verð á hvert þurrefniskíló.
2. Gæði pökkunar.
3. Stundvisi verktaka.
4. Einsleitni bagga.
5. Magndreifa.